Árbók VFÍ - 01.01.1992, Page 123
Landsvirkjun 121
út árið 1989 en tilboð opnuð í febrúar 1990. Eftir samanburð á þeim kom í ljós að ekki yrði
unnt að ganga til samninga við bjóðendur áður en gildistími tilboða rynni út. Fór svo að eig-
endur hagkvæmustu tilboðanna voru beðnir að framlengja tilboð sín fram í apríl 1991. Á síðari
hluta ársins hófst vinna við undirbúning að gerð útboðsgagna fyrir aðra verkþætti sem boðnir
voru út í ársbyrjun 1991.
Tilhögun Fljótsdalsvirkjunar hefur verið tekin til gagngerðrar endurskoðunar á undanfömum
árum. Á árinu var því starfi haldið áfram og niðurstaðan sú að hagkvæmasta miðlunarstærð sé
500 Gl og uppsett afl 210 MW. Ráðgjafar Landsvirkjunar við hönnun og gerð útboðsgagna
fyrir virkjunina eru Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen hf., Almenna verkfræðistofan hf. og
Rafhönnun hf. auk Electrowatt Engineering Services, Sviss.
Töluverðar rannsóknir voru gerðar á fyrirhuguðu stæði aðrennslisganga á Fljótsdalsheiði.
Boraðar voru 8 kjarnaholur alls um 1.360 m vegna rannsókna á eiginleikum bergsins. Niður-
stöður margvíslegra rannsókna á holunum benda til að bergið lienti vel til jarðgangagerðar.
Lokið var við jarðfræðikort af virkjunarsvæðinu og langsnið er sýnir gerð og legu einstakra
jarðlaga á gangastæðinu.
Á stíflustæðinu við Eyjabakka voru einnig boraðar kjarnaholur og gerð og þykkt lausra
jarðlaga í stíflustæðinu kannaðar. Efnisnámur fyrir steypu- og stífluefni voru skoðaðar og sýni
tekin til rannsóknar.
í ágúst voru send út forvalsgögn til væntanlegra bjóðenda í aðrennslisgöngin. Alls óskuðu
12 aðilar eftir að verða valdir til þátttöku í tilboðsgerð. Var ákveðiö að gefa öllum fyrir-
tækjunum kost á að bjóða í verkið. Um miðjan desember voru síðan útboðsgögn fyrir gerð
aðrennslisganga send fyrirtækjunum.
3 Línurannsóknir
Undirbúin var bygging 220 kV háspennulínu frá Fljótsdalsvirkjun til Akureyrar (Fljótsdalslína
l), samtals 195 km, og þaðan að stækkun Búrfellsvirkjunar (Búrfellslína 4), 230 km, og síðan
að tengivirkinu við Hamranes sunnan Hafnarfjarðar (Búrfellslína 3A og 3B), 120 km. Frá
Hamranesi er ráðgert að byggja tvær línur að álverinu á Keilisnesi.
Lokið var teikningu langsniðs el'tir loftmyndum af Fljótdalslínu 1, línustæðið hælað út að
mestu og gerðar kannanir á jarðvegi á línustæði og líklegum efnisnámum. Unnið var að
hönnun línunnar, ákvörðun tekin um gerð burðarmastra og gildleika leiðara.
Mynd 13 Aðalstíflustœöi Fljótsdalsvirkjunar á Eyjabökkum. AusturjaÖar Vatnajökuls í baksýn. Eyja-
bakkajökull er lengst til hœgri, en miðlunarlónið mun ná inn að honum. Jarðbor frá Rœktunarsambandi
Flóa og Skeiða er að störfum á stíflustœðinu um miðjan ágúst 1990.