Árbók VFÍ - 01.01.1992, Page 138
136 Árbók VFÍ 1990/91
Þegar hefur verið dælt, með
góðum árangri, hundruðum tonna
af tilbúnum múrblöndum á veggi,
bæði innan og utanhúss. Það er
samdóma álit þeirra múrara senr
nota þessa tækni, að þetta er það
sem koma mun í íslensku múr-
verki. Til marks unt hraðann sem
hægt er að ná með notkun þessara
tækja má geta þess að um 200 m2
veggflötur einbýlishúss var rapp-
aður að utan, á innan við klukku-
stund og síðan múraður á einni
helgi.
Múr sem blandaður er á stað-
num er „persónugervingur" þeirrar áralöngu hefðar sem skapast hefur í múrverki hérlendis.
Það verða því að vera góð rök fyrir því að hann muni hörfa fyrir tilbúnum verksmiðjufram-
leiddum þurrblöndum.
Kostir tilbúinna þurrblandna eru mjög
margir:
- Meiri gæði og þau stöðug, þekkt og
skilgreind.
- Aukin afköst, bætt vinnutækni.
- Betri nýting á efni.
- Efnislager á vinnustað tekur lítið
pláss (síló, sem getur innihaldið um
30 tonn þarf aðeins um 6 m2).
- Þægilegur og hagkvæmur pöntunar-
og afhendingarmáti, sérstaklega ef
efnið er keypt á sílóum.
og sfðast en ekki síst:
- Stórbætt vinnuumhverfi múrara, með
tilliti til erfiðis, hávaða, rykmengun-
ar, óþrifa og þess háttar. Ef efnið er
keypt á sílóum losna menn alveg við
allan pokaburð og eyðingu umbúða.
3 ÍMÚR-kæðning, íslenskt múreinangrunarkerfi
Notkun klæðninga hérlendis hefur aukist verulega síðasta áratuginn. Þar hefur margt komiö til,
eins og til dæmis endureinangrun vegna illviðráðanlegra steypuskemmda, lekavandamál, ónóg
varmaeinangrun og einangrun nýbygginga utanhúss.
Þær klæðningar, sem til voru á markaðinum voru aðallega úr innfluttu efni, en með tilkomu
íslenskrar framleiðslu á steinullareinangrun og tilbúnum sementsbundnum ntúrblöndum fóru
Myntl 3 SEMKÍS M220 innimúr sprautað á vegg.
Mvnd 2 Síló með hurrefnifyrir utan hygeingarstað.