Fréttablaðið - 28.02.2012, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 28.02.2012, Blaðsíða 13
ÞRIÐJUDAGUR 28. febrúar 2012 Virðing RéttlætiVR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS F í t o n / S Í A Þann 1. febrúar hækkuðu laun samkvæmt kjarasamningum VR. Almenn launahækkun er 3,5% en þeir sem fá greitt samkvæmt taxta hækka um 11.000 kr. Þessi hækkun tekur til launa frá og með febrúar og kemur því til útborgunar 1. mars. Munið launahækkunina! Nú fögnum við á nýju ári aftur Mottumars svokölluðum sem hefur að markmiði að ýta undir árvekni karla gegn krabbameini og einkennum þess. Þetta er frá- bært framtak og hefur lukkast í alla staði mjög vel undanfarin ár og hafa karlmenn látið sér vaxa skegg og þannig sýnt stuðning sinn í verki og aukinheldur safnað áheitum til stuðnings Krabba- meinsfélaginu í rannsóknir, fræðslu og forvarnir. Ég fagna heilshugar þessu átaki en á sama tíma finnst mér gæta ákveðins misskilnings á hlutverki þessarar vakningar. Við læknar og heilbrigðisstarfsfólk erum að hvetja karlmenn almennt til að átta sig á krabbameini, ekki ein- göngu blöðruhálskirtilsmeini eða eistnakrabba. Hvorugt þessara meina, eins og fram hefur komið í umræðunni, gefur okkur tilefni til að skima með skipulegum hætti eftir þeim. Landlæknir sá sig knúinn til þess að birta yfirlýsingu vegna fyrirhugaðrar hópleitar karl- manna 50 ára og eldri og gagn- rýna slíkt fyrirkomulag með vísan í erlendar leiðbeiningar og álit sérfræðinga hérlendis. Víða í löndum í kringum okkur er boðið upp á skoðanir fyrir karl- menn og sérstaklega með tilliti til þess að gera þá bæði þreifingu á kirtli um endaþarm og einnig að mæla PSA sem er sértækt mæli- gildi fyrir blöðruhálskirtilinn. Gildið hefur þann ókost að vera ekki eingöngu hækkað hjá þeim sem eru með mein heldur getur bólga eða sýking í kirtlinum valdið slíku, reykingar, offita og svo einnig kynþáttur hafa hér áhrif. Þetta er vel þekkt og ekkert nýtt sem kemur fram í yfirlýs- ingu landlæknis, en rétt að ítreka að karlmenn eru hvattir til þess að hitta lækni sinn með eða án einkenna og ræða kosti og galla skimunar og þá það sem niðurstöð- urnar kunna að leiða til. Það eru mögulega frekari rann sóknir og jafnvel lyfjameðferð og aðgerðir greinist krabbamein hjá einstak- lingnum. Valið að fara í skoðun er einstaklingsbundið en viðkomandi verður að vera vel upplýstur. Undirritaður hefur um ára- bil verið einlægur áhugamaður um forvarnir gegn hvers kyns sjúkdómum og hefur reglubundið heilsufarseftirlit verið mér ofar- lega í huga. Til okkar í Heilsu- vernd hafa leitað fjöldamargir einstaklingar sem láta sig heilsu sína varða og vilja gjarnan fá skoðun og áhættumat. Það er sér- staklega minnistætt þegar við buðum fyrstir allra í mars 2011 upp á sérstaka skoðun fyrir karl- menn með almennar forvarnir í huga við sannarlega frábærar undirtektir. En við höfum sinnt slíkum skoðunum reglubundið síðan. Mér er fyrirmunað að skilja hvers vegna ekki er lögð meiri áhersla á þá sjúkdóma sem hægt er með sannanlegum hætti að skima fyrir eins og til dæmis ristilkrabbamein, en Landlæknir hefur gefið út leiðbeiningar um slíka skimun fyrir 10 árum og uppfært síðast árið 2009. Alþjóð- legar leiðbeiningar hafa lítið breyst frá þeim tíma en þær segja til um að greina skuli dulið blóð í hægðum hjá einkennalausum einstaklingum beggja kynja 50 ára og eldri á hverju ári. Það er meira að segja svo að mánuðurinn mars er tileinkaður forvörnum og árvekni gegn krabbameinum í ristli og endaþarmi í Bandaríkjun- um, Þýskalandi, Kanada og Ástr- alíu svo eitthvað sé nefnt. Það er ljóst að ristilkrabba- mein er næst algengasta dánar- orsök af völdum krabbameina á Íslandi og þriðja algengasta mein beggja kynja. Það látast að meðal- tali fleiri af völdum slíkra meina en af blöðruhálskirtilsmeini og þeir greinast yngri. Þá er einnig áhugavert að skoða dánartíðni af völdum ristilkrabbameins í sam- anburði við þau mein sem skimað er fyrir í dag sem eru legháls, legbolur og brjóstakrabbamein, en fleiri falla fyrir ristil- og enda- þarmsmeini. Það er því ljóst að við erum að vissu leyti á villi götum ef við einblínum einvörðungu á karl- læg krabbamein í mars. Nú verðum við að taka höndum saman og ná jafn glæstum árangri í forvörnum gegn ristilkrabba- meini og við höfum náð nú þegar með mein kvenna, en dánar- tíðni hefur farið ört lækkandi þar á undanförnum árum, þökk sé skimun, betri greiningu og meðferð en áður. Samstarfsverkefni við meltingar lækna á Landspítala var hrint í framkvæmd í fyrravor í leit að ristilkrabbameini þar sem fylgt er í hvívetna leið beiningum landlæknis, en greiningarpróf með eftirfylgni hefur verið fáan- legt í öllum apótekum Lyfju á landsvísu síðastliðna mánuði við ágætar undirtektir. Leit að ristilkrabbameini skiptir máli, þar eru fagaðilar allir sam- mála. Láttu skoða þig! Misskilin motta!? HEILSA Teitur Guðmundsson læknir Mér er fyrirmunað að skilja hvers vegna ekki er lögð meiri áhersla á þá sjúkdóma sem hægt er með sannanlegum hætti að skima fyrir eins og til dæmis ristilkrabbamein, en Landlæknir hefur gefið út leiðbeiningar um slíka skimun fyrir 10 árum og uppfært síðast árið 2009. AF NETINU Geir Jón tók forystu Geir Jón Þórisson tók klára forystu í baráttunni um sæti annars varafor- manns Sjálfstæðisflokksins. Sakaði ónefndan þingmann Vinstri grænna um að hafa stjórnað óeirðum við Alþingishúsið 20. janúar 2009. Hann átti við Álfheiði Ingadóttur. Björn Bjarnason, þáverandi ráðherra, hafði áður sakað hana um að hafa stjórnað aðgerðum um farsíma innan úr húsinu. Þeim mörgu, sem tóku þátt í búsáhaldabyltingunni 2009, er ekki skemmt. En Geir Jón getur ekki sannað fullyrðingu sína, né geta aðrir hafnað henni. Hún er því skothelt innlegg í áróðri til að koma inn hjá flokkshestum, að Geir Jón sé réttur frambjóðandi. http://jonas.is/ Jónas Kristjánsson

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.