Fréttablaðið - 28.02.2012, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 28.02.2012, Blaðsíða 36
28. febrúar 2012 ÞRIÐJUDAGUR20 BAKÞANKAR Magnús Þorlákur Lúðvíksson Maður einn er á leið á áfangastað og má engan tíma missa. Eftir stutta för kemur hann að gatnamótum þar sem hann þarf að velja á milli tveggja vega. Annar liggur í vestur og hinn í austur en báðir hlykkjast þeir með tíð og tíma til norðurs í átt að áfangastaðnum. Maðurinn er ekki kunnugur vegunum, lætur kylfu ráða kasti og fer í vestur. Nokkrum tímum síðar er hann kominn á áfangastað en hann er seinn og verður því pirraður. Nú gæti maðurinn eftir þetta langa ferðalag bölsótast út í veg- valið. Þær skammir eiga þó aðeins rétt á sér ef hinn vegurinn var styttri. Hafi hann verið lengri getur maðurinn skammast út í það eitt að hafa ekki lagt fyrr af stað. SÉ vilji til þess að meta gæði ákvörðunar þar sem einn valkostur af mörgum var valinn, ber nefnilega að líta til fleira en einungis hinna sjáanlegu afleiðinga. Það þarf einnig að líta til þess hvaða afleiðingar aðrar mögulegar ákvarðanir hefðu haft. Þess vegna lítum við þá öðrum augum sem slasa annan við sjálfsvörn en þá sem beita ofbeldi af tilefnislausu. AÐ líta til allra mögulegra valkosta og afleiðinga er sérstaklega mikil- vægt þegar meta skal frammistöðu stjórnenda. Þess vegna er það miður hve sjaldan þeirri nálgun er beitt í þjóðmálaumræðunni. Það er kannski ekki hægt að gera þá kröfu til stjórn- málamanna að þeir fjalli á þennan veg um málefni en fjölmiðlar, álitsgjafar og kjósendur ættu að gera það. Forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar hreykja sér af því að hafa komið hagvexti af stað á ný. Gott og vel en þar með er umræðunni um árangur stjórnarinnar ekki lokið. Sú spurning stendur eftir hvort annað stjórnarsamstarf hefði náð betri, verri eða sama árangri. Það er vitaskuld ekki auðvelt að svara því en það hlýtur að vera mælikvarðinn sem skipta á kjósendur máli. Svona í ljósi þess að engin meiri háttar ytri áföll hafa dunið hér eftir hrun má til dæmis leiða að því líkur að hagvöxtur hefði einnig glæðst undir annars konar ríkisstjórnarsamstarfi. Enda ákvarðanir stjórnvalda ekki upphaf og endir umsvifa í hagkerfinu. AÐ sama skapi er það ekki sérlega djúp umræða þegar rætt er um skattastefnu ríkisstjórnarinnar eingöngu út frá beinum áhrifum hennar: þeim að fleiri krónur eru teknar úr vösum skattborgara. Það þarf einnig að líta til þess niðurskurðar ríkisút- gjalda sem leggjast hefði þurft í án skatta- hækkana eða þá þess aukavaxtakostnaðar sem enn meiri hallarekstur ríkisins hefði haft í för með sér. Þótt gagnrýni á skatta- stefnu ríkisstjórnarinnar eigi að nokkru leyti rétt á sér þá missir hún marks þegar ekki er minnst á afleiðingar hinna valkost- anna í stöðunni. Það verður nefnilega ekki sleppt og haldið, allra síst í stjórnmálum. Sleppt og haldið ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Pondus Eftir Frode Overli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Barnalán Eftir Kirkman/Scott 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 krossgáta LÁRÉTT 2. uss, 6. í röð, 8. skammst., 9. atvikast, 11. tveir eins, 12. smáu, 14. suð, 16. tónlistarmaður, 17. skaut, 18. stansa, 20. bókstafur, 21. þraut. LÓÐRÉTT 1. ofsi, 3. umhverfis, 4. skáldsaga, 5. pumpun, 7. möttull, 10. skamm- stöfun, 13. þunnur vökvi, 15. litur, 16. hugfólginn, 19. tvíhljóði. LAUSN LÁRÉTT: 2. suss, 6. rs, 8. möo, 9. ske, 11. gg, 12. litlu, 14. kvabb, 16. kk, 17. pól, 18. æja, 20. ká, 21. raun. LÓÐRÉTT: 1. ærsl, 3. um, 4. sögubók, 5. sog, 7. skikkja, 10. etv, 13. lap, 15. blár, 16. kær, 19. au. Allt í lagi, ég tek vinnunni! Ég skal þjálfa ykkur! Frábært, pabbi! Ég hef marga fjöruna sopið í boltanum. Ég skal koma ykkur í svakalegt form og búa til uppstillingu sem fær and- stæðingana til að hræðast og kikna í hjánum. Ég skal ausa visku minni yfir ykkur! Eigum við ekki að teygja? Það er frekar kvenlegt! Stundum langar mig að gera eitthvað klikkað sem ég myndi sjá eftir. En svo stoppa ég sjálfan mig og man að það er þitt hlutverk. Hlutverk? Það er köllun mín! Erfða- skrá Og beinin sem eru grafin undir trénu í garðinum fær Snati. Lóla fær tuggðu tennisboltana og Hugó fær inniskóna sem ég elskaði að naga... Nýi forfalla- kennarinn var svo ljúfur í tíma í gær! Nú? Hann sagði: „Solla! ef þú snýrð þér ekki við og hættir að tala sendi ég þig til skóla- stjórans!“ Það er nú ekkert sérstaklega ljúft. Var hann að skamma þig? Hann fær svo sæta spékoppa þegar hann reiðist. Lesendur okkar eru á öllum aldri með ólíka sýn á lífið – og við þjónum þeim öllum Allt sem þú þarft

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.