Fréttablaðið - 28.02.2012, Page 36
28. febrúar 2012 ÞRIÐJUDAGUR20
BAKÞANKAR
Magnús
Þorlákur
Lúðvíksson
Maður einn er á leið á áfangastað og má engan tíma missa. Eftir stutta för
kemur hann að gatnamótum þar sem hann
þarf að velja á milli tveggja vega. Annar
liggur í vestur og hinn í austur en báðir
hlykkjast þeir með tíð og tíma til norðurs
í átt að áfangastaðnum. Maðurinn er ekki
kunnugur vegunum, lætur kylfu ráða kasti
og fer í vestur. Nokkrum tímum síðar er
hann kominn á áfangastað en hann er seinn
og verður því pirraður. Nú gæti maðurinn
eftir þetta langa ferðalag bölsótast út í veg-
valið. Þær skammir eiga þó aðeins rétt á
sér ef hinn vegurinn var styttri. Hafi hann
verið lengri getur maðurinn skammast út í
það eitt að hafa ekki lagt fyrr af stað.
SÉ vilji til þess að meta gæði ákvörðunar
þar sem einn valkostur af mörgum var
valinn, ber nefnilega að líta til fleira en
einungis hinna sjáanlegu afleiðinga. Það
þarf einnig að líta til þess hvaða afleiðingar
aðrar mögulegar ákvarðanir hefðu haft.
Þess vegna lítum við þá öðrum augum
sem slasa annan við sjálfsvörn en þá
sem beita ofbeldi af tilefnislausu.
AÐ líta til allra mögulegra valkosta
og afleiðinga er sérstaklega mikil-
vægt þegar meta skal frammistöðu
stjórnenda. Þess vegna er það miður
hve sjaldan þeirri nálgun er beitt í
þjóðmálaumræðunni. Það er kannski
ekki hægt að gera þá kröfu til stjórn-
málamanna að þeir fjalli á þennan veg
um málefni en fjölmiðlar, álitsgjafar og
kjósendur ættu að gera það. Forsvarsmenn
ríkisstjórnarinnar hreykja sér af því að
hafa komið hagvexti af stað á ný. Gott og
vel en þar með er umræðunni um árangur
stjórnarinnar ekki lokið. Sú spurning
stendur eftir hvort annað stjórnarsamstarf
hefði náð betri, verri eða sama árangri.
Það er vitaskuld ekki auðvelt að svara því
en það hlýtur að vera mælikvarðinn sem
skipta á kjósendur máli. Svona í ljósi þess
að engin meiri háttar ytri áföll hafa dunið
hér eftir hrun má til dæmis leiða að því
líkur að hagvöxtur hefði einnig glæðst
undir annars konar ríkisstjórnarsamstarfi.
Enda ákvarðanir stjórnvalda ekki upphaf
og endir umsvifa í hagkerfinu.
AÐ sama skapi er það ekki sérlega djúp
umræða þegar rætt er um skattastefnu
ríkisstjórnarinnar eingöngu út frá beinum
áhrifum hennar: þeim að fleiri krónur eru
teknar úr vösum skattborgara. Það þarf
einnig að líta til þess niðurskurðar ríkisút-
gjalda sem leggjast hefði þurft í án skatta-
hækkana eða þá þess aukavaxtakostnaðar
sem enn meiri hallarekstur ríkisins hefði
haft í för með sér. Þótt gagnrýni á skatta-
stefnu ríkisstjórnarinnar eigi að nokkru
leyti rétt á sér þá missir hún marks þegar
ekki er minnst á afleiðingar hinna valkost-
anna í stöðunni. Það verður nefnilega ekki
sleppt og haldið, allra síst í stjórnmálum.
Sleppt og haldið
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Pondus Eftir Frode Overli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Barnalán Eftir Kirkman/Scott
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
LÁRÉTT
2. uss, 6. í röð, 8. skammst.,
9. atvikast, 11. tveir eins, 12. smáu,
14. suð, 16. tónlistarmaður, 17. skaut,
18. stansa, 20. bókstafur, 21. þraut.
LÓÐRÉTT
1. ofsi, 3. umhverfis, 4. skáldsaga,
5. pumpun, 7. möttull, 10. skamm-
stöfun, 13. þunnur vökvi, 15. litur,
16. hugfólginn, 19. tvíhljóði.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. suss, 6. rs, 8. möo, 9. ske,
11. gg, 12. litlu, 14. kvabb, 16. kk,
17. pól, 18. æja, 20. ká, 21. raun.
LÓÐRÉTT: 1. ærsl, 3. um, 4. sögubók,
5. sog, 7. skikkja, 10. etv, 13. lap,
15. blár, 16. kær, 19. au.
Allt í lagi, ég
tek vinnunni!
Ég skal þjálfa
ykkur!
Frábært,
pabbi!
Ég hef marga fjöruna sopið
í boltanum. Ég skal koma
ykkur í svakalegt form og búa
til uppstillingu sem fær and-
stæðingana til að hræðast og
kikna í hjánum.
Ég skal
ausa visku
minni yfir
ykkur!
Eigum við
ekki að
teygja?
Það er
frekar
kvenlegt!
Stundum langar mig að
gera eitthvað klikkað
sem ég myndi sjá eftir.
En svo
stoppa ég
sjálfan mig
og man að það
er þitt hlutverk.
Hlutverk?
Það er köllun
mín!
Erfða-
skrá
Og beinin sem eru
grafin undir trénu í
garðinum fær Snati.
Lóla fær tuggðu
tennisboltana og
Hugó fær inniskóna
sem ég elskaði að
naga...
Nýi forfalla-
kennarinn var
svo ljúfur í tíma
í gær!
Nú? Hann sagði: „Solla! ef þú snýrð þér
ekki við og hættir að tala sendi
ég þig til skóla-
stjórans!“
Það er nú ekkert
sérstaklega ljúft.
Var hann að
skamma þig?
Hann fær svo
sæta spékoppa
þegar hann
reiðist.
Lesendur okkar
eru á öllum aldri
með ólíka
sýn á lífið
– og við þjónum
þeim öllum
Allt sem þú þarft