Nýtt Helgafell - 01.10.1959, Blaðsíða 13

Nýtt Helgafell - 01.10.1959, Blaðsíða 13
HLUTFALLIÐ MILLI LÍFS OG DAUÐA 83 ég byrjaði að mála mynd, gæti ég ekki hugs- að mér að mála ofan á mynd einhvers annars. Það verður að vera eitthvert tómt rúm á léreftinu. Og hin fullkomna list er eins og rangeyg stúlka, sem við elskum. Hún er jafnvel enn fegurri vegna sinna ljótu augna. Astin breytir Ijótleikanum í fegurð. Þannig er þetta með listina, hún afvopnar okkur, öll gagnrýni fellur um sjálfa sig. Eg spurði Gunnlaug úti á þekju, hvort hann hefði ekki orðið fvrir margvíslegum áhrifum? — Ahrifum, ójú, ég get sagt þér dálitla sögu af því. Þegar ég var i sjúkrahúsi fvrir fimmtán árum, fór ég að tala við Kristin Arinbjarnar lækni um mataræði og minnt- ist á kenningar náttúrulækningamanna. Svo kom að því, að ég spurði, hvort hann teldi hollara að borða mat úr dýraríkinu eða jurtaríkinu. Hann svaraði: — Maðurinn er alæta. Hann étur jafnt dýr sem plöntur. Sama má segja um mig, þegar talað er um áhrif á myndirnar mínar. Eg er alæta. Ég ét allt, sem ég finn, að ég get nærzt á. En auðvitað með misjafnlega góðri lyst. Eg minnti hann á innblásturinn. — Já, innblásturinn, ég þekki hann lítið. Ég mála af þekkingu, en ekki tilfinningu eða innblæstri. Ég gæti hugsað mér, að þetta sé eins og þegar vísindamaður vinnur á verk- stæði sínu. Hann byggir á því, sem aðrir hafa gert á undan honum, en stoðirnar und- ir kenningum hans eru reynsla hans sjálfs. — En hvað þá um tilfinninguna? spurði ég. — Jú, ætli hún hafi ekki síðasta orðið, eg gæti trúað því, svaraði Gunnlaugur. Þeg- ar ég legg plönin að myndunum, sem er mikið verk og erfitt, þá ræður tilfinningin, en það þarf auðvitað vitsmuni og þekkingu tú að hún njóti sín. — Ætli það sé ekki ástríða að mála? spurði ég. — Nei, heldurðu það? svaraði hann. — Alér dettur það í hug. Svo spurði ég, hvenær hann hefði byrjað að mála. — Ég hef málað frá því ég var drengur. Og ég hef alltaf haft gaman af myndum. Ég skoðaði allar myndir, scm ég fann í bókum, og varð stundum hræddur við þær og þorði ekki að fletta upp á þeim. Eitt sinn fann ég tvær spýtur í rusli og ímvndaði mér, að þær væru súlur. Svo langaðs mig að skreyta þær og risti með nagla. Ég átti blá- an blýant og málaði í skorurnar til að gera þær skýrari, en það var enginn rauður blý- antur til á heimilinu, svo ég stakk mig í fingur og notaði blóðið til skrauts. Já, kannski þetta sé ástríða, ég veit það ekki. En daginn eftir var rauði liturinn orðinn svart- ur og það þótti mér ákaflega l'eiðinlegt. Þannig er þetta stundum, að rauði liturinn breytist með tímanum og verður svartur. Ég minntist aftur á goðsagnirnar. — Þetta er engin hetjudýrkun, sagði hann, ef þú heldur það. Ég vel þessar fyrirmyndir úr lífi og starfi sjómanna einungis vegna þess að mér finnst gaman að vinna með þær. Sjórinn kemur hreyfingu i myndirnar, það verður þarna eitthvert samspil sævar- ins, bátsins og mannsins. Einhver hrynjandi, já eitthvert drama. Sumir halda, að ég geri mennina svona stóra til að vega upp á móti smæð þeirra. En þetta er myndrænt atriði, eins og ég sagði áðan. Ég teikna á ákveðinn flöt og fylli hann út, eins og mér þykir fall- egt. Þegar maðurinn er stór, verður mynd- in mónúmental. í baráttunni við náttúru- öflin er maðurinn alltaf stór. Nú fórum við að tala um ýmislegt annað og ég sagði Gunnlaugi, að ég hefði hcyrt hann væri bæði sjóveikur og sjóhræddur. — Hvort tveggja er að mestu leyti rangt, sagði hann. Ég hef lítið stundað sjó, en þá sjaldan ég hef skroppið út fyrir pollinn hef ég aldrei orðið sjóhræddur og aðeins sjó- veikur í byrjun ferðar. En fólk vill liafa þetta svona. Það má ekki taka skáldskapinn frá fólkinu. Ég hef engan áhuga á, að menn leggi sama skilning í myndirnar mínar og ég geri sjálfur. Menn mega misskilja mig. Eg vona bara, að þeir misskilji mig rétt. Þegar hér var komið, gekk ungur maður
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Nýtt Helgafell

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.