Nýtt Helgafell - 01.10.1959, Blaðsíða 19

Nýtt Helgafell - 01.10.1959, Blaðsíða 19
HLUTFALLIÐ MILLI LÍFS OG DAUÐA 89 Hann svaraði: — Auðvitað er konan nauðsynleg til að viðhalda lífinu og séð frá þeim sjónarhóli er ástin nauðsynleg líka. En ekki er hægt að neita því, að það er eitthvað skemmtilegt við konuna, einhver þægileg tilfinning að vita af henni á næstu grösum. Sumir hafa gaman af að segja af sér kvennafarssög- ur. Ég hef meira gaman af að hlusta á menn tala um heilsufar sitt. Þetta stafar senni- lega af því, að það er eitthvað óskaplega ]>rósaískt og óskáldlegt í öllu upplagi mínu. Mér finnst það nauðsynlegt til að vera lista- maður. Fyrir mörgum árum fór ég í húð í Kaupmannahöfn. Mér var vísað upp á loft og þar kom ég í langan gang. Þegar ég gekk eftir ganginum, sá ég mann koma á móti mér og hugsaði: — Mikið helvíti er hann súr þessi. En þegar nær kom, sá ég að fyrir framan mig var spegill og maðurinn, sem kom á móti mér í gauginum, var eng- inn annar en ég. En þú varst að tala um ástina. Þegar hana ber á góma, dettur mér í hug karl fvrir austan. Honum leið illa og það, sem að honum gckk, var það að hann var heilbrigður. Hann hafði fengið þá flugu í höfuðið, að það hlyti að vera cftir- sóknarverðast af öllu að vera veikur. Hann skrapp því til Seyðisfjarðar og keypti sér hitamæli og upp frá því mældi hann sig oft á dag í þeirri von, að nú yrði hann eitthvað veikur. Eitt sinn fór hann í sólbað uppi í fjalli og sofnaði í sólinni. Þegar hann vakn- aði, var hann lerkaður og leið illa. Hann hafði heyrt, að menn gætu fengið sólsting, ef þeir sofnuðu í sól og varð harla glaður, því nú hélt hann að sú stóra stund væri loks upp runnin. Hann tók mælinn — og sjá: mælirinn sýndi 52 stig! Þá sagði karl- inn: — 52 stig eftir fjörutíu ár, það er bara töluverður handleggur! Hljóp svo eins og fætur toguðu niður af fjallinu og lagðist í rúmið. En einhvern veginn fannst honum nauðsynlegt að mæla sig aftur og ])á gerð- ist það versta, sem fyrir gat komið: mælir- inn sýndi ekki nema 37 stig. Þetta urðu hon- um mikil vonbrigði, en þó huggaði hann sig með því, að hann gæti farið aftur í sól- bað á fjallinu. Hitt vissi hann ekki, að mæl- irinn hafði dottið úr rassinum á honum, meðan hann var að mæla sig á fjallinu, og legið í steikjandi sólinni. Þeir sem tala mik- ið um ástina, minna mig á karlinn. Ástin er ekki nema þessi venjulegu 37 stig og mér finnst bæði barnalegt og tilgangslaust að streitast við það alla ævi að koma henni upp í 52 stig, sem ekki eru til. En viltu ekki kaffi? Það er bezt ég helli upp á könnuna. Svo gekk hann fram í eldhús, en ég skrapp inn í vinnustofurnar lians. Við vest- urvegginn stóð stórt, hálfgert málverk af sjómönnum á fiskiríi. Ég horfði lengi á þessa sterku liti og þóttist þess fullviss, að þetta væri ekki nema grunnmálningin. Á þessum stað fann ég betur en áður, að Gunnlaugur hefur helgað listinni allt sitt líf og alla sína krafta. Ég kallaði fram í eldhúsið til hans: — Þú lifir ekki fyrir annað en listina, Gunnlaugur. — Já, hina sönnu list, svaraði hann og ég heyrði, að hann hló. — Hina sönnu list og hina sannarlegu tólg, bætti hann svo við. Hefurðu heyrt söguna af því? nei. Jæja, bezt ég segi þér hana, meðan ég er að hita kaffið. En þú verður að bera hana undir Kjarval, ef þú skrifar hana: Kunningi minn einn sagði mér, að hann hefði verið á málverkasýningu. Auk hans voru þar tveir gestir, kona ein hér í bæ og svo Kjarval. Þau skoða nú myndirnar um stund. Þá gengur konan til Kjarvals og spyr, hvernig lionum líki sýningin. Hann segir: — Mér líkar hún ágætlega. IJetta er mjög falleg sýning. Konan segist ekki trúa honum: — Þú meinar þetta ekki, segir hún. Jú, hann fullvrðir, að svo sé. Þá segir kon- an: — En ef þú berð þetta nú saman við þínar myndir? Kjarval segir, að þetta komi sínum myndum ekkert við: — Þetta hér er hin sanna list, segir hann. — Að þetta sé hin sanna list, kemur mér sannarlega á ó- vart, segir þá konan, en Kjarval svarar og segir: —- Já, það er ekki hægt að neita því, að þetta er hin sanna list, ef hún er til. Það er að sínu leyti eins og með tólgina, hina
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Nýtt Helgafell

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.