Nýtt Helgafell - 01.10.1959, Blaðsíða 55

Nýtt Helgafell - 01.10.1959, Blaðsíða 55
KAREN BLIXEN 125 fyrstu verður hann því einmana og einangr- aður. Þá kemur til hans vinur og segir hon- um sögu, að hann mætti af henni læra. Eitt sinn var Guð orðinn áhvggjufullur vegna stöðugra kvartana mannanna yfir lífinu. Iíver er ætlunin með lífinu? Hví er það svona miskunnarlaust og grimmt? Ilvers vegna? Guð stígur þá sjálfur niður til jarðarinnar og að þrjátíu og þrem árum liðnum hverfur hann aftur til himna. „Ég er kominn úr ferð minni mn jörðina. Nú hef ég kynnzt kjörum mann- anna. Enginn þekkir þau betur en ég. Ég sá auinur á þeim og lofaði að líkna þeim. Ég unni mér hvorki svefns né hvíldar, fyrr en loforð mitt var efnt. Ég hef sætt mannshjart- að við kjör þessa heims, sem ég hef búið því. Ég skýrði fyrir þessum óvitum og dauð- !egu dárum, hvernig þeir verða ofsóttir og rægðir, hæddir og húðflettir. Ég kenndi þeim, að þeir verði hengdir á kross. Ég hef veitt mönnunum þá lausn á heimsgátunni, sem þeir grátbændu mig um. Ég gaf þeim frels- unina (bls. 169)“. Nú kann einhver að spyrja: í hverju er frelsunin fólgin? Er hún fólgin í kenningum Krists? Nei, ekki er það sá kristni dómur og raunar alls ekki kristindómurinn. Svarið hljóðar eitthvað á þ essa leið: Lífið er misk- unnarlaust og það er þýðingarlaust að ætla að reyna að komast hjá greiðslunni á auð- veldan hátt. Lífið er dýrt og greiðist með þjáningunni. Karen Blixen nefnir þessa grundvallarskoðun sína venjulega ,,nemisis“ og skýrir hana svo: „í sem stytztu máli og alþýðlegustu get ég sagt, að hugtakið feli í sér álit á verði og vöru. Það er kenningin um, að það borgi sig að kaupa eins dýrt og fram- ast er unnt — eða um það, að ekki er liægt að gera ódýr kaup.“ Þcssa meginhugmynd er að finna í næstum öllum ævintýrunum, lítið eitt dulbúna oft og tíðum eins og henni er tamt. Má þar nefna sögurnar: Den gamle vandrende ridder“, „Den unge viand med nelliken“, „En op- kyggelig historie“ og „Helo'ise". Hér að framan var því vísað á bug, að kristindómurinn væri, að skoðun Karen Blix- en. hin rétta ráðning á lífsgátunni. Ilún notar að vísu oft kristnar hugmyndir, en hún er ekki kristin. Eins og getið var um í upphafi er hún alin upp undir áhrifum unitara. Kenn- iag þeirra er m. a. fólgin í því, að guðdóm- urinn sé einn og óskiptur, þess vegna nefn- ast þeir unitarar. Hinni kristnu kenningu um þríeinan guð er varpað fvrir borð. En hver er jiá Jesús? Hann er ekki af guðdóminum, heldur fyrirmynd — fordæmi. Hann sýndi okkur hvernig við eigum að lifa Hfinu, eins og greint er frá í sögunni um Eirík konung. Hin rétta lausn á vandamálum okkar er að sætta sig við lífið á sama liátt og Jesús gerði. Jesús er hin fullkomna fvrirmynd, sem við eigum að líkjast. Okkur er því ekki ætlað að trúa á kenningu Jesú, heldur fara að dæmi hans. Ef við ættum að skoða Jcsú sem guð, segir Karen Blixen, jiá myndi líf hans missa gildi sitt, brevtast úr harmleik í skop- leik. Hugsið vkkur einhvern heilagan Georg, sem gengur til orrustu við drekann vitandi það með vissu, að hann muni sigra. Blixen fjallar snilldarlega um þetta vanda- mál í sögunni „Sorg-agre“. Þar er hinum alls- ráðandi Seifi teflt fram gegn hinum máttar- minni Óðni í samtali þeirra óðalsbóndans og frændans. Ennfremur í „Syndjloden over Norderney“, þar sem kardínálinn og greifa- frúin Nat — og — Dag ræða þetta vanda- mál. Þau bera saman einvaldskonung ann- ars vegar og borgarakónginn Loðvík Filipns hins vegar. Karen Blixen segist að sjálfsögðu vera kóngserfðasinni, en eins og hennar er vandinn ber ekki eingöngu að skilja Jiað stjórnmálalegum skilningi heldur líka trúar- legum. Anne Marie í „Sor</-a<7re“-sögunni er for- dæmi á sama liátt og Jesús. Enn betur er þó jiessi hugmvnd sett fram í ævintýrinu um „IIeloise“. í fransk-þýzka stríðinu 1870 er lítill hópur manna handtekinn. Þar eru nokkrir franskir smáborgarar og ungur Englendingur, sérfræð- ingur í trúarbragðasögu. Þjóðvcrjar ætla að skjóta ])á sem njósnara. Þó býður liðsforing- inn að náða ])á, ef ung og fögur kona úr hópn- um hverfi til lians í Evuklæðum. Hún gríp- ur hendi snöggt fyrir brjóst sér, en síðan snýr hún sér til þjáningasystkina sinna og lætur þeim eftir að taka ákvörðun. Þau kjósa öll hið dýrkeypta, hafna tilboðinu einum rómi. En þýzki liðsforinginn hrífst svo af vilja- styrk og kjarki ungu konunnar, að hann náð- ar þau öll. Sjö árum síðar rekst Englending- urinn á konuna aftur og kemur þá í ljós, að hún er nektardansmær að atvinnu. ITenni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Nýtt Helgafell

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.