Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.04.1949, Blaðsíða 16

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1949, Blaðsíða 16
12 SVEITARST J ÓRNARMÁL 30 þingmönnum, en jafnframt skal þá fjölga kjördæmum að sarna marki. Fylkisstjóri skal kosinn af kjósendum fylk- isins eins og forseti, og sé afstaða hans til fylkisþinga svipuð og forsetans til Alþingis. III. Alþingi skiptist í tvær deildir, efri deild og neðri deild. í efri deild skulu sitja 18 fulltrúar, 3 úr hverju fylki, kosnir á fylkisþingum, hlut- bundnum kosningum. Kjörgengir eru aðeins menn búsettir í fylkinu. I neðri deild skulu sitja 30 þingmenn, kosnir í einmenningskjördæmum. Kjördæma- skipun skal þannig háttað, að sem næst jafn- margir kjósendur verði í hverju kjördæmi, og skulu kjördæmin að öðru leyti ákveðin sem samfelldust, eftir því sem staðhættir leyfa. Sveitarfélagi má ekki skipta milli kjör- dæma, nerna hvor eða hver hluti verði meg- inhluti kjördæmis. Kjördæmaskipun skal endurskoðuð á tíu ára fresti og gerðar á henni þær breytingar, sem nauðsynlegastar reynast til þess, að fylgt verði áðurgreindri meginreglu um jafna kjósendatölu í kjör- dæmum. Endurskoðun þessi skal gerð af þriggja manna nefnd. Skal einn nefndar- manna tilnefndur af hæstarétti, annar af Al- þingi og þriðji af forseta. Engu fylki má skipta í fleiri en 10 kjör- dæmi. Báðar þingdeildir og forseti rnega hafa frumkvæði að lagasetningu. Fórseti skal leggja frumvarj) til fjárlaga fyrir hvert reglu- legt Alþingi eigi síðar en viku eftir, að þing kemur saman. Ef lagafrumvarp, sem samþykkt hefur ver- ið í annarri deild þingsins, er fellt í hinni, skal það afgreitt í sameinuðu þingi, nerna fellt hafi verið með % hluta atkvæða í ann- arri hvorri þingdeild. Ekkert frumvarp má hljóta fullnaðar- afgreiðslu sem lög frá Alþingi fyrr en forseta hefur gefizt nægilegur frestur til að skýra þinginu frá viðhorfi sínu til frumvarpsins. Forsetinn getur látið fara fram þjóðarat- kvæðagreiðslu um lagasetningar, og falla lög úr gildi, ef meiri hluti atkvæða fellir þau við atkvæðagreiðslu. Þegar brýna nauðsyn ber til, og Alþingi situr ekki, geta forsetar Alþingis eftir beiðni forseta ríkisins sett bráðabirgðalög. Ætíð skulu þau lögð fyrir næsta Alþingi á eftir. Forseti hefur heimild til þess að kalla saman aukaþing, ef hann telur brýna þörf bera til. IV. Forseti skal kjörinn beinum kosningum af þeim, er kosningarrétt hafa til Alþingis. Það forsetaefni, sem flest fær atkvæði, er rétt kjörinn forseti. Hvert forsetaefni skal hafa varamann. Forseti myndar ríkisstjóm. Heimilt skal sameinuðu Alþingi að samþykkja rökstudda tillögu um vantraust á ríkisstjóm forseta. Ef slík tillaga verður samþykkt, skulu fara fram almennar kosningar til Alþingis. Jafnframt skulu fara fram forsetakosningar, og fer for- seti þá frá, nema hann verði endurkjörinn. Verði forseti endurkjörinn, má ekki bera fram á Alþingi vantrauststillögu á ríkissjóm hans í næstu 2 ár. Ef Alþingi afgreiðir ekki fjárlög áður en fjárlagaár hefst, skal greiðslum úr ríkissjóði hagað eftir fjárlagafrumvarpi forseta það fjárhagsár. V. Dómsvaldinu skal skipað með sérstökum lögum.

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.