Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands. - 01.05.2009, Blaðsíða 38
Þar gátu engu að síður staðið naust.
Hvort þau hafa verið notuð á sama
tíma og aðrar búðir í Gautavík eða þau
hafi enst lengur, er ekki hægt að áætla
út frá niðurstöðum rannsóknanna á
staðnum.
Naust og múrsteinahús
(suðursvæði)
Minjarnar
Í um 5 m fjarlægð frá fjörunni fundust
leifar U-laga byggingar, milli hnitanna
X 102 og X 110 sem og Y 518 og Y
526, sem í bráðabirgðaskýrslu voru
nefndar naust. Byggingin, sem stóð í
NA-SV, var opin mót hafi. Á yfirborð-
inu voru útveggir sýnilegir sem lágir
garðar í landslaginu. SV-hliðin var
betur varðveitt en þar rufu nokkrir
steinar grassvörðinn (myndir 19 og
20). Yfirborð rústarinnar gaf innanmál
u.þ.b. 2 x 5 m. Það sýnir að hér hefur
einungis verið hægt að geyma lítinn
bát.98 Mæling á langhliðinni sýndi fram
á u.þ.b. 50 sm hæðarmun milli innra
rýmis og hæsta punkts framveggsins
(mynd 19). Sambærileg þvermæling
sýndi mismun upp á 35 til 40 sm
(mynd 19). Grafið var á 5 x 8,5 m
stóru svæði, sem tók mið af sýnilegum
minjum á yfirborðinu og var því skipt í
fjóra hluta (myndir 21 og 22). Norður-
hlutinn var 2 x 4,5 m stór, vestur-
hlutinn 3 x 4,5; austurhlutinn 2 x 3 og
suðurhlutinn 3 x 4. Til þess að öðlast
tilfinningu fyrir upprunalegu ástandi
naustsins var austurhlutinn opnaður
fyrst. Nokkrum sentimetrum undir
grasrótinni kom í ljós upprunaleg lega
útveggjarins í samhangandi stein-
hleðslu. Stór hluti grjóthleðslunnar
hafði fallið úr veggnum inn í rýmið. Á
u.þ.b. 30 sm dýpi var malarlag, sem
náði um metra inn í naustið. Efnið
líkist mölinni í fjörunni fyrir utan, svo
hingað hefur ströndin náð áður og
Mynd 20. Naustið úr A.
98. T. Capelle, Bericht
über eine vorläufige
Untersuchung des mitter-
alterlichen Handelsplatz-
es Gautavík im Südosten
Islands, Archäologisches
Korrespondenzblatt 9,
1978, 254.
__________
38