Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands. - 01.05.2009, Blaðsíða 81
einnig lítið til. Ekki er heldur hægt að
aldursgreina þá nánar út frá lögun
þeirra. Einungis bronspottana er hægt
að tímasetja til 14. aldar eða stuttu
síðar. Aðrir málmfundir gefa ekki
svigrúm til nákvæmra aldursgreininga
en þeir mæla heldur ekki gegn þeirri
tímasetningu sem fyrir liggur um
staðinn.
Fundaskrá málmgripa
Strandrústirnar
UF6 Hnoðnagli, flatur og rétthyrntur stilkur, rúnaður haus. Lengd ca. 4 sm, þykkt
hauss 1,2 sm, breidd 0,3 x 0,2 sm. 735 sm frá A-brún, 30 sm frá N-brún, dýpt 15 sm
(mynd 52i).
UF12 Tvö brot af rónöglum, flöt og rétthyrnt, með píramítalaga haus (sambærilegt
form á UF23, 25, 55 og BF16, 46). Lengd 5,1 sm, breidd 0,7 x 0,4 sm. 685 sm frá A-
brún, 10 sm frá N-brún, dýpt 30 sm (mynd 52c).
UF18 Brot af rónagla (eða blindingja), stilkur aðeins varðveittur. Lengd 4,6 sm, breidd
0,4 x 0,3 sm. 150 sm frá A-brún, 40 sm frá N-brún, dýpt 25 sm (mynd 52k).
UF22 Tvö brot af rónagla, oddur boginn. Lengd 5,0 sm. 380 sm frá A-brún, 20 sm frá
N-brún, dýpt 45 sm.
UF25 Brot af rónagla, með píramítalaga haus og efri hluta stilks (sambærilegt form á
UF12, 23, 55 og BF16, 46). Lengd 3,2 sm, 530 sm frá A-brún, 25 sm frá N-brún, dýpt
35 sm (mynd 52g).
UF27 Nagli, með flötum haus (sambærilegt form á UF37, 59, 60, 64). Lengd 7,5 sm,
þykkt 0,5 x 0,5 sm. 580 sm frá A-brún, 15 sm frá N-brún, dýpt 32 sm.
UF37 Nagli, stilkur boginn (sambærilegt form á UF27, 59, 60, 64). Lengd 7,0 sm,
þykkt 0,5 x 0,4 sm. 500 sm frá A-brún, 15 sm frá N-brún, dýpt 30 sm (mynd 52d).
Minjar úr málmi fundust einungis, líkt
og leirkerabrotin, í kringum naustið, á
strandsvæðinu, sem og dreifðar um
fjöruna. Í eftirfarandi skrá eru þessir
fundir taldir upp og notkunargildi
þeirra túlkað þegar því var við komið.
Öfugt við leirkerabrotin, þá voru
málmfundirnir ekki skráðir í númera-
röð vegna þess að ekki var búist við því
að þeir findust dreifðir, heldur að þeir
heyrðu saman. Eins var ekki búist við
því að þeir væru ekki eins margir og
leirkerabrotin. Nákvæm fundastað-
setning þeirra er hins vegar gefin upp
en til þess að gera staðsetningu fundar-
staðanna mögulega á flatarteikningu 14
og myndum 23-26, miðuðust skráning-
arnar hér líka við mörk hvers upp-
graftarsvæðis en ekki hnitin X og Y.
Fyrir lýsandi brot eru gefin upp
myndanúmer.
__________
81