RM: Ritlist og myndlist - 01.06.1947, Page 16

RM: Ritlist og myndlist - 01.06.1947, Page 16
RM HJALMAR BERGMAN hann angrar hana með þessu hvella jóðli. Og vísirinn mjakast svo hægt á- fram — svo óumræðilega hægt . . . Það er líklega bezt að fara á fæt- ur. Hún getur þá skroppið eitthvað á bátnum sínum. Hún getur róið yfir að járnbrautarstöðinni og svo heim aftur — hún er röskan klukkutíma að því. Erindi? Hún getur spurt um bréf. — Nei, það þorir hún ekki. Ekki spyrja eftir bréfi . . . En hún getur róið þetta, þótt hún hafi ekkert erindi. Hún sprettur á fætur, steypir morgunkjólnum yfir sig, dregur gluggatjöldin frá. Sólin er ekki komin hátt á loft, hún gægist aðeins fram milli toppanna á trján- um á Eikiey. Hún verður að komast hærra — miklu, miklu hærra. Hér um bil í hádegisstað. Himinninn er hvítblár, vindurinn hefur sópað burt hverju skýi. Máfarnir sitja úti á sjón- um. Jú — þarna situr drengurinn í ról- unni, hoppar og gargar og lætur miklu verr en nokkur máfur. Hún hefur ekki séð hann fyrr. Þetta er grannur drengur, magur, fölur og veikindalegur. En lungun eru áreið- anlega ógölluð. Og lífsfjörið er ólam- að. Þvílík læti sem eru í honum. Ljóst, hrokkið hárið er orðið dökkt af svita. Skyldi hann ætla að láta svona í allan dag? Fyrir utan gluggann hennar? Nei — hann verður svo vænn... Hún opnar gluggann. Hvers vegna óskapastu svona, drengur minn? Þarftu að hafa svona hátt, þó að þú sért að leika þér? Hann hægir á sér, starir, munnur- inn opinn. Hann virðist vera að reyna að átta sig á ótilhlýðilegu ávarpi ó- kunnrar konu. En þögnin varir ekki nema eitt andartak. í næstu andrá skælir hann sig hressilega framan í hana og snýr í hana bakinu. Hún klæðist í skyndi. Henni liggur þó i rauninni ekkert á, hún hefur meira en nógan tíma — allt of mik- inn. Nú man hún eftir því, að hún þarf að greiða sér öðruvísi. Eins og hann var vanur, að hún greiddi sér. Eða er hún kannske orðin of gömul til þess? Tvö ár! Og ef hann kæmi svo ekki eftir allt saman? Þá yrði hún að telja sér trú um, að eitthvað hafi tafið ferð hans — eitthvert ófyrirsjáanlegt óhapp. Hún bindur klút yfir höfuðið á sér og hleypur niður stigann. Loftið er svalt, en hún skal róa sér til hita. Hún ætlar að róa alla leið út að Eikiey, þar sem sólin gægðist nú fram milli trjátoppanna. Hún hleypur niður að bryggjunni, leggst á hnén og opnar lásinn á bátfestinni. Þá heyrir hún eitthvert más. — Drengurinn stendur hjá henni, lýtur fram á og styður höndunum á hnén. Hún sér æðarnar þrútna á enni hans undir grábleiku hörundinu. Ætlarðu að róa út á sjó? spyr hann, og röddin er óþægilega hvell. Þá kem ég með þér. Hún getur ekki að því gert — hún 14
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

RM: Ritlist og myndlist

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: RM: Ritlist og myndlist
https://timarit.is/publication/1205

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.