Breiðfirðingur - 01.04.1977, Blaðsíða 16
14
BREIÐFIRÐINGUR
kynslóð fram af kynslóð, dular og þrekmiklar í gleði sinni
og hörmum, ættbornar dætur hafsins og hinna skjólsælu
hrauna?“
(Þorkell Jóhannesson: Lýðir og landshagir, II. b. bls.
166).
Nokkurra manna af þessari horfnu og hverfandi kynslóð
vildi ég gjarnan minnast með fáeinum orðum.
Faðir minn Elímundur Ogmundsson fæddist að Steins-
búð í Einarslóni 30. sept. 1876. Á þessu ári eru því 100 ár
liðin frá fæðingu hans. Hann var barn að aldri þegar for-
eldrar hans fluttu að Görðum í Beruvík. Þar missti hann
móður sína, og eftir það ólst hann upp hjá föður sínum,
og áttu þeir heima ýmist í Beruvík, á Gufuskálum eða á
Ondverðarnesi, þar til þeir fluttu inn á Hellissand árið
1896. Stundaði faðir minn róðra frá öllum þessum stöðum,
varð verstöðvunum þaulkunnugur og svo miðunum útifyrir.
Árið 1898 fór hann á seglskip með dönskum skipstjóra, og
var með honum í nokkur ár, aðallega hér við land, en eitt
ár í Danmörku, og sigldu þeir frá Kaupmannahöfn til hafna
við Eystrasalt. Árið 1902 kom faðir minn heim aftur og
gerðist formaður í Keflavík undir Jökli, á áttæring sem
hann eignaðist. Stundaði hann formennsku um tvo áratugi.
Gísli Stefánsson, sem einnig var formaður í Keflavík, gerði
þessa vísu um föður minn árið 1908:
Þegar liðin löng er nótt,
lítt má veður baga,
Elímundur fer þá fljótt
fram um ránar haga.