Breiðfirðingur - 01.04.1977, Blaðsíða 44
LJtsýni af áttundu hæð
Viðtal við Geir Sigurðsson frá Skerðingsstöðum
Maðurinn, sem ætlar að spjalla við lesendur Breiðfirðings
í dag, heitir Geir Sigurðsson. Hann er Dalamaður að upp-
runa, hann hefur stundað búskap, kennslu og sitthvað fleira
um dagana, hefur hvarvetna reynzt góður liðsmaður. Á unga
aldri leitaði leitaði hann sér menntunar í Samvinnuskólan-
um, og þá tókst sú vinátta með honum og Jónasi Jónssyni,
skólastjóra Samvinnuskólans, sem síðan entist á meðan báð-
ir lifðu.
Uppvaxtarár og búskapur í Dölum.
Geir Sigurðsson kennir sig jafnan við Skerðingsstaði í
Dalasýslu, og þess vegna liggur beint við að spyrja?
— Er þetta fæðingarbær þinn, sem þú kennir þig við,
Geir?
— Nei. Ég fæddist í Sælingsdal 10. okt. 1902. Þegar
ég var á fimmta aldursári, fluttist ég með foreldrum mín-
um að Skerðingsstöðum, þar sem fjölskyldan átti heima í
tvö ár, en fyrri veturinn, sem við vorum þar, andaðist faðir
minn. Þegar þessi tvö ár voru liðin, fluttist móðir mín frá
Skerðingsstöðum að Glerárskógum og giftist þar öðru sinni,
og þar átti ég síðan heima í þrjátíu ár. Allir þessir bæir,
sem ég hef nefnt, Snælingsdalur, Skerðingsstaðir og Gler-
árskógar, eru í sömu sveitinni, Hvammhreppi í Dalasýslu.
í desembermánuði árið 1925 varð stjúpfaðir minn úti í