Breiðfirðingur - 01.04.1977, Blaðsíða 39
BREIÐFIRÐINGUR
37
Markmið þessarra samtaka eru margvísleg. Flest stefna
að því, sem nefna mætti sameiginlega útgáfustarfsemi og
víðtækari markaði fyrir það, sem út er gefið til fræðslu og
eflingar þjóðrækni.
Þá er sameiginlegt samkomuhald, sem ber sig miklu bet-
ur, ef unnt er að undirbúa mótin og skemmtanirnar fyrir
stærra svæði og fleira fólk. Slíkar samkomur þykja einnig
eftirsóknarverðari og hægt að leggja meira í kostnað við
undirbúning þeirra og framkvæmd.
Sama er að segja um ferðalög hvort heldur til fræðslu
eða skemmtunar. Þar geta fleiri félög í samstarfi, svo ekki
sé talað um átthagasamhand heillar borgar, fylkið eða lands-
náð öruggari árangri og betri tökum. Svona líta þá ná-
grannalöndin á málið um átthagasambönd.
En mundi ekki gilda hér nákvæmlega sama. En auk þess
er hér að ýmsu leyti hægara um vik þar eð við erum til-
tölulega fleiri utan af landsbyggðinni og átthagaástin yfir-
leitt vel vakandi hjá eldri kynslóðum hér ennþá.
Yerkefni Atthagasambands á íslandi gætu vissulega
verið mörg. Samt verður að sjálfsögðu einhver ágreiningur
um þau.
Hér skal samt bent á hin helztu, sem virðast liggja beint
við. En vissulega verður að gæta þess að taka þar aðal-
lega það, sem hin einstöku félög geta ekki notið síu við,
og alls ekki þannig að verið sér að blanda sér í starfsemi
einstakra sveita og svæða, þar sem fólkið af svæðinu vill og
veit hvað gera skal og hverju hægt er að fórna.
Hins vegar væri átthagasamband tilvalinn starfsvett-
vangur og starfskraftur, sem unnt væri að leita til um þau
verkefni, sem hverju einstöku átthagafélagi reyndist ofviða.