Breiðfirðingur - 01.04.1977, Blaðsíða 96
94
BREIÐFIRÐINGUR
dóttur bæjarstjóra og skattstjóra í Neskaupstað og síðar
í Kópavogi Sigfússonar bónda á Svínafelli og konu hans
Ingibjargar Einarsdóttur bónda á Fljótsdalshéraði Sölva-
sonar. Ragna lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á
Akureyri vorið 1936.
Ung bundust þau Ragnar og Ragna tryggðum á mennta-
skólaárum sínum og gengu í hjónaband hinn 11. nóv. 1939.
Þeim varð þriggja barna auðið en þau eru Ragnar bygg-
ingaverkamaður, Ingibjörg kennari og Guðrún gift Arna
Jónassyni verkfræðingi. Hjónaband þeirra var hið farsælasta
og í hópi vina var Ragnars og Rögnu jafnan getið í sömu
andrá. Og er ég þess fullviss, að hvorugs mun verða minnst
án hins. Ragna reyndist manni sínum hinn traustasti lífs-
förunautur til hinztu stundar og bezt þá er mest á reyndi,
hin löngu og ströngu veikindaár. Hún var björkin, sterk-
byggð og traust, er bognaði að vísu en brotnaði ekki en
veitti manni sínum öryggi og skjól í langri og strangri bar-
áttu hans við veikindi og dauða.
Ragna var hin styrka stoð hans í lífinu en lang stærst
og sterkust síðustu árin, þegar hann var farinn að heilsu
og kröftum. Hann andaðist í Borgarspítalanum í Reykjavík
hinn 16. nóv. 1976, langt um aldur fram, 63 ára gamall.
Vinir hans harma fráfall hans á bezta aldri. En lausnin
var honum líkn, eins og jafnan, þegar langri sjúkdómsraun
líkur og allar vonir um bata eru brostnar. Dauðinn er fagn-
aðarefni þeim, sem þjáður er, en lokið hefur miklu og far-
sælu ævistarfi.
Mörg löngu liðin atvik koma upp í hugann, þegar Ragn-
ars Jóhannessonar er minnst. Gamlir samferðamenn muna
hann sem óvenjulega glæsilegan æskumann í Menntaskól-