Breiðfirðingur - 01.04.1977, Blaðsíða 84
Magnús Þorgeirsson
Höllustöðum
Magnús var fæddur á Höllustöðum í Reykhólasveit 12.
maí 1898 og þar lézt hann 16. júlí 1976. Foreldrar hans
voru Kristrún Jóhannsdóttir og Þorgeir Þorgeirsson búend-
ur þar. Foreldrar Kristrúnar voru Anna Guðmundsdóttir
og Kristínar er bjuggu í Bænum í Bjarneyjum, fólk af
breiðfirzkum eyjaættum -— og Jóhann Jónsson frá Spena
í Miðfirði, húnvetnskra ætta
Foreldrar Þorgeirs á Höllustöðum voru Guðrún Andrés-
dóttir og Þorgeir Einarsson frá Klettakoti í Eyrarsveit, en
hann drukknaði af hákarlaskipinu Snarfara 11. des. 1861,
áður en Þorgeir fæddist. Guðrún var föðursystir skáld-
kvennanna Herdísar og Olínu, en dóttir „Guðrúnar minnar
í Miðbæ“, systur Þóru Einarsdóttir í Skógum. Eru að þeim
breiðfirzkar ættir.
Magnús var naumast meðalmaður á hæð, samsvaraði sér
vel, þéttvaxinn en þó grannholda. Sviphreinn. Kvikur í
hreyfingum en án asa. Tiltakanlega skriðdrjúgur á göngu,
því hann bar fæturna svo hratt. Handsterkur með ólíkind-
um, öruggur klettamaður, lipur sjómaður, verkhygginn og
afkastamikill. Sjálfmenntaður í öllu, fullfær smiður við
allar byggingar. í reikningshaldi og allri talnameðferð
stóð hann skólagegnum á sporði.
Málhagur með ágætum, kjarnyrtur, fjölfróður, glögg-