Breiðfirðingur - 01.04.1977, Blaðsíða 40
38
BREIÐFIRÐINGUR
En auk þess væru þau viðfangsefni til, sem sjálfsagt
væri að átthagasambandið annaðist að öllu leyti svo sem
kynningu, skipulagningu, yfirsýn og fjármögnun, en afnot
slíkra framkvæmda yrðu þá einnig sameiginleg. Mætti þar
nefna fólkvang í grennd við borgina t. d. Viðey, átthaga-
sal, sem yrði sameiginlegt húsnæði átthagafélaga í borg-
inni til móta, samkomuhalds og námskeiða, minnjasafn
átthagafélaga o. fl.
Fólksvangur, átthagasalur og minjasafn mundi allt kosta
ærið fé. En þarna ætti auðvitað kynning og forysta að
hvíla sérstaklega á átthagasambandinu. Fjármagn kæmi og
yrði að koma að miklu frá borg og ríki, þótt sjálfsagt væri
að átthagafélög og einstaklingar, sem áhuga hefðu kæmu
þar myndarlega við sögu.
En það er margt fleira og auðveldara í framkvæmd og
að marki, sem átthagasamband gæti unnið að.
Skulu hér nefnd nokkur atriði:
Námskeið um félagsstörf, fundi og félagsmál ásamt
kynningu á hinum dreifðu og einkum afskekktu byggðar-
lögum landsins.
Mót og fundir þar sem átthagafélögin kynntust hvers
annars starfsháttum, lærðu hvert af öðru og eignuðust sam-
eiginleg áhugamál og ánægjustundir.
Ársmót, með hátíðasamkomu t. d. í sambandi við þing
samtakanna væri einnig sjálfsagt verkefni.
En slík mót eru einmitt árlegur viðburður í átthagasam-
tökum erlendis og oft hélgað sérstöku héraði hverju sinni
með íþróttum ,söngvum og sýningum.
Útgáfustarfsemi hefur verið nefnd sem þýðingarmikill
þáttur erlendra átthagasamtaka. — Hún er svo dýr að ein-