Breiðfirðingur - 01.04.1990, Page 55
SKARÐVERJAR
53
Loptur orti um Kristínu háttalykil hinn dýra. Þá arfi var
skipt eptir Lopt hlaut hver sona hans hálft fimmtánda
hundraða hundraða, og tvær dætur jafnt við annan
þeirra. Ingibjörg kona hans andaðist á sama ári.30
Það var ekki lítið af jörðum sem Loftur átti og er þessi upp-
hæð rétt; það sanna bréf, sem enn eru til. í gjafabréfi Lofts
til sona sinna með Kristínu sem enn er til og dagsett 20. apríl
1430 er elsta heimildin fyrir því, að Loftur hafi átt Skarð.31
Kvæði nefnt Háttalykill er til, eignað Lofti ríka í hand-
ritum frá 17. öld. Á kvæðið að vera kveðið til Kristínar hjá-
konu Lofts, en traustar heimildir um höfund eru ekki til.32
Eins og nafnið bendir til er hvert erindi einnig sýnishorn
bragarháttar. Hér er til sýnis sett 13. erindi kvæðisins:
Hvað þeinkir þú,
þýðust hringa brú, (hringa brú = kona)
muni minnka nú
margföld ást og trú,
að við bundum blíð
á bestri elsku tíð?
Man eg menja hlíð (menja hlíð = kona)
mest ár og síð.
Eins og að framan gat dóu Loftur og Ingibjörg 1432 og enn
er til í eftirritum skiptabréf þeirra gert sama ár.33
Ólöf ríka Loftsdóttir
Af Ólöfu er sagt í 8.-15. erindi. Maður hennar var Björn
Þorleifsson af ætt Vatnsfirðinga, sem var mjög voldug á
þeim tíma og hafði Björn hirðstjórn frá 1464 til dauðadags
1467. Höfundur kvæðisins hefur þekkt miklar sagnir um
hana og á 17. öld hafa þær gengið. Margar gamlar sagnir um
Ólöfu nefnir Jón Samsonarson í útgáfu sinni á Bændahætti
(s. 46), en yngri sagnir eru einnig til, sem ekki verður reynt
að tína allar saman hér. Einnig hefur mér virst að svo mikið
orð hafi farið af Ólöfu, að sagnir hafi verið að myndast um