Breiðfirðingur - 01.04.1990, Síða 58
56
BREIÐFIRÐINGUR
heimildir fyrir því að enginn dæi á Skarði af járnbitnu sári
meðan kista Geirmundar væri kyrr, enda lagðist vopna-
burður af laust eftir siðaskipti eða um líkt leyti og Jón lærði
var þar. Jón Ólafsson á Grímsstöðum í Breiðuvík, sem
fæddur var 1691 í Efri-Langey og var á Skarðsströnd til
1729, segir í annál sínum, að um miðja 16. öld hafi Björn
sonur Þorleifs Pálssonar, sem síðar getur, „verið fyrirliði að
ná upp kistu Geirmundar heljarskinns úr Andakeldu innan
Skarðs; höfðu menn náð hringnum, og slitnaði hann úr, og
skall niður kistan aptur, og sýndist þeim þá allt leika í loga.“
Björn þessi stakk síðar Jón frá Kjallaksstöðum svo að hann
hlaut bana af. Svo má skilja annálinn, að menn hafi álitið að
samband hafi verið á milli vígsins og þess að Björn hafði
reynt að ná kistunni.37 Kunnugleg er sögnin um að allt sýnist
leika í loga þegar verið er að grafa eftir fólgnu fé. Eggert
Jónsson á Ballará sagði um Andakeldu 1817:
Kelda þessi eru ófærudý. Þó er sagt að bóndinn á Skarði
Þorsteinn Guðbrandsson sem bjó þar hér um 1780 hafi
kannað keldu þessa og þóst verða var við kistuna. Það er
annars merkjandi að fjöldi fólks hefur þá meiningu, að
þeim verði að sök er leita eftir að grafa fé úr jörðu og
með því að þeir meina slíkt gjöri ólán, freista færri til en
annars mundu ef ei hefðu þessa hjátrú.38
Það voru fleiri en Jón lærði sem skrifuðu um Ólöfu ríku og
dráp Björns bónda hennar. í ritgerð sem Jón Gissurarson
lögréttumaður á Núpi í Dýrafirði, hálfbróðir Brynjólfs bisk-
ups Sveinssonar, samdi 1644 segir:
Björn ríki var í hel sleginn í Rifi, af Engelskum, vegna
upphlaups, sem varð milli hans og þeirra; þar renna
ævintýr til. Hustrú Ólöf var í það sinn inn á Helgafelli, er
hún frétti lát Björns bónda síns, hún sagði: „ekki skal
gráta Björn, heldur safna liði,“ hvað hún gjörði, klæddi
sig hríngabrynju og þar yfir kvennmannsbúnaði, dró svo
með útbúið lið, komst með kænsku (á) Jónsmessu og
hennar fólk að Engelskum, og drap þeirra mikinn fjölda,
utan kokkinn, sem naumlega fékk líf, fyrir það hann