Breiðfirðingur - 01.04.1990, Síða 95
BERNSKUMINNING
93
hjónin Jóhanna Guðnadóttir frá Bálkastöðum í Hrútafirði
og Guðmundur Matthíasson frá Gjarðey. Hjá þeim var Ingi-
björg, móðursystir bónda, og var hún að vinna á túninu með
kláru, en það verkfæri hafði ég ekki séð áður og er mér þetta
minnisstætt. Heima voru notaðar venjulegar heyhrífur til
þessa verks, en seinna kom svo taðkvörn og enn síðar slóði.
Áfram var nú haldið ofan í Straumsnes, en þar lentu eyja-
menn oft bátum sínum. Þar beið okkar nú farkostur, sem ég
hafði ekki áður séð, sem sé áttæringur með rá og reiða. Eig-
andi bátsins, Jónas bóndi Jóhannsson í Öxney, var þar
kominn ásamt piltum sínum til þess að flytja okkur til fyrir-
heitna landsins yfir stutt sund, um eina sjómílu, sem er á
milli lands og Gvendareyja.
Nú var búslóðinni komið fyrir í bátnum og því næst
kúnum. Síðast steig fólkið um borð og svo var ýtt frá landi
og segl dregin upp. Nú hófust fyrstu kynni mín af sjónum
ég held um leið einhver þau verstu, því að mér fór strax að
líða mjög illa þótt veður væri gott og báturinn liði áfram í
hægum andvara án alls veltings.
En brátt fauk allur kjarkur og karlmennska út í veður og
vind, ég fór að hágráta og enginn fékk huggað mig, ekki einu
sinni mamma, fyrr en ferðin var á enda. Það sem vakti mesta
undrun mína, þegar komið var til Gvendareyja var íbúðar-
húsið, en það var portbyggt timburhús og í því hvítmáluð
stofa. Þetta hús stendur reyndar ennþá óbreytt 1990. Ég
hafði aðeins vanist torfbæjum og ómáluðum baðstofum.
Annan daginn sem ég átti heima í Gvendareyjum var ég
staddur niður við sjó í bátalendingunni. Pabbi var þar
eitthvað að aðhafast og var ég þar hjá honum. í lendingunni
flaut lausaþang, en það er þannig tilkomið, að í öldugangi
slitnar það af klöppunum, sem það upphaflega var fast á,
rekur svo með straumi og vindi, en staðnæmist í víkum og
vogum og velkist þar stundum tímunum saman, uns það
tekur út aftur eða fúnar niður. í logni og ládeyðu flýtur
þangið við landsteinana án þess að bærast.
Svo hagaði til í þetta skipti að hásjávað var. Ég var á