Breiðfirðingur - 01.04.1990, Page 114
112
BREIÐFIRÐINGUR
góðan þokka. Hún var móðir Áslaugar konu sr. Bjarna
Jónssonar dómkirkjuprests. Parna var ég í fæði meðan ég
dvaldi í skólanum. Fljótlega barst í tal við frú Önnu að mig
vantaði húsnæði og útvegaði hún mér inni til bráðabirgða
hjá einum kostgangara sínum sem hafði herbergi á Herkast-
alanum og var ég hjá honum 1-2 vikur, þar til ég fékk her-
bergi.
Fljótlega eftir að ég kom til Reykjavíkur fór ég að leita
mér upplýsinga um samvinnunámskeiðið sem ég sótti um og
átti að byrja upp úr 7. jan., en til þess þurfti ég að finna
skrifstofu S.Í.S. Gekk það greiðlega. Hún var á 4. hæð í húsi
Nathan & Olsen þar sem nú er Reykjavíkurapótek. Þar
hafði Sambandið tvær samliggjandi stofur til umráða og einn
maður starfandi í hvorri stofu, en það voru þeir Jón Árnason
síðar bankastjóri og Svavar Guðmundsson síðar útibússtjóri
Landsbankans á Akureyri. En þetta var nú 1918. Þarna fékk
ég þær fréttir að námskeiðinu hefði verið frestað til 15. febr.
af óviðráðanlegum ástæðum og hefði mér verið sent skeyti
um það, en það kom ekki fyrr en ég var farinn að heiman.
Var mér vísað til Tryggva Þórhallssonar í Laufási, sem hefði
með þetta að gera í forföllum Jónasar Jónssonar frá Hriflu,
sem átti upphaflega að hafa umsjón með námskeiðinu og
stjórna því. Vegna veikinda konu sinnar varð hann að fara
norður í Þingeyjarsýslu og átti ekki afturkvæmt vetrarlangt.
Það kom því í hlut Tryggva að sjá um þetta að öllu leyti.
Lagði ég nú leið mína í Laufás, þar sem ég mætti alúð og
góðvilja Tryggva. Sagði hann mér, að fyrst svona hefði tekist
til fengi ég greiddan fæðiskostnað þennan tíma þar til nám-
skeiðið hæfist. Auk þess bauðst hann til að sjá mér fyrir
kennslu í ensku, dönsku, íslensku og reikningi mér að kostn-
aðarlausu, og fékk hann til þess ágætan kennara, Guðgeir
Jóhannsson, síðar skólastjóra í Vík í Mýrdal. Hann varð
líka einn aðalkennarinn á námskeiðinu.
Nú fannst mér mest aðkallandi að fá mér herbergi til
afnota. Sumarið áður hafði hópur Reykvíkinga verið á ferð
vestur í Dölum á hestum. Ein hjón úr hópnum beygðu af