Breiðfirðingur - 01.04.1990, Page 124
122
BREIÐFIRÐINGUR
Höfn í Hornafirði. Þaðan flutti hann til Reykjavíkur og varð
starfsmaður hjá Grænmetisverslun ríkisins og síðast forstjóri
Áburðarsölunnar.
3. Jón Kristján Jónsson frá Vffilsmýrum í Önundarfirði tók
kennarapróf 1917. Var kennari á Hellissandi einn vetur.
Stofnaði Kaupfélag Önfirðinga 1918 og var þar kaupfélags-
stjóri í 4 ár. Hvarf aftur að sjómennsku og flutti til Banda-
ríkjanna og drukknaði þar af togara 1951.
4. Halldór Jónsson frá Tröllatungu í Steingrímsfirði, bú-
fræðingur frá Hvanneyri. Varð síðan símstjóri og póstaf-
greiðslumaður á Selfossi d. 1932 eða ’34 (sjá Strandamenn).
5. Jón Kjartansson frá Efri-Húsum í Önundarfirði tók kenn-
arapróf 1915. Kennari um tíma, ritstjóri Skinfaxa og kaup-
félagsstjóri Kaupfélags Reykjavíkur í nokkur ár. Hefur
rekið búskap, (Helgavatni á Þverárhlíð), útgerð og verslun.
Framkvæmdastjóri sælgætisgerðarinnar Víkings, um langt
skeið.
6. Þorvaldur Stephensen frá Holti Önundarfirði. Hefur
fengist við útgerð.
7. Guðbrandur Thorlacíus frá Saurbæ á Hvalfjarðarströnd.
Lengi bóndi að Kalastaðakoti og kaupfélagsstjóri á Hval-
fjarðarströnd.
8. Guðmundur Þorláksson frá Korpúlfsstöðum, Mosfells-
sveit. Lengi bóndi á Seljabrekku í sömu sveit.
9. Flosi Jónsson frá Hörðubóli, Dalasýslu, lengst af bóndi
þar.1
Auk kennslustundanna voru fluttir fyrirlestrar í sambandi
við námskeiðið, oftast einu sinni í viku, flestir um samvinnu-
hreyfinguna á íslandi. Fóru þeir fram í Góðtemplarahúsinu
(uppi) og voru þar viðstaddir auk kennara og nemenda,
ýmsir samvinnumenn í Reykjavík og grennd. Á eftir fyrir-
lestrunum voru samræðufundir við kaffidrykkju.
1. Seinna bættust við Jón Guðmundsson frá Ólafsdal í Dalasýslu og Ólafur Lárusson frá
Skagaströnd. (Tímarit ísl. samvinnufélaga 1918, bls. 124 - 127).