Breiðfirðingur - 01.04.1990, Page 134
132
BREIÐFIRÐINGUR
esi lýst af góðvilja og persónulegum kunnugleika í grein eftir
Olínu Andrésdóttur, Áttaviltir fuglar sem birtist í Eimreið-
inni 1926. Þar á bls. 247 er vísa Hannesar: „Nú leikur hér við
lýði lukkunnar hverfult hjól“, og eru tildrög sögð eftir því
sem Ólínu minnti, en hún var viðstödd. Þá er kveðskapur
eftir Einar og Hannes í grein í Breiðfirðingi, 20-21. ári 1961-
1962, bls. 84-92, og er misjafnt kveðið hjá Hannesi, sem við
mátti búast.
Af kveðskap Harastaða-Einars um Hannes var sitthvað
hent á lofti sem skoplegt þótti og vel kveðið. Þar á meðal var
gamanbragur þar sem Einar dró upp skrumskælda og ýkju-
fulla mynd af sjómennsku Hannesar undir Jökli og skiptum
hans við Jöklara: „Blessun flúði blakkinn sjós í Bervíkinni“.
Var bragurinn festur í minni og hafður til skemmtunar í
sveitum við Breiðafjörð, á meðan ekki var sjónvarp. Brag-
urinn er prentaður í greininni í Breiðfirðingi 1961-1962, bls.
87-88, og er ekki annað fyrir hendi en vísa til hans þar.
Fleira smálegt hefur geymst sem Einar kvað til Hannesar og
fólk skemmti sér við fyrir vestan, en varla miklu víðar.
Þó fékk ein háðvísan vængi og barst á óvæntan hátt inn á
stúdentafund í Kaupmannahöfn. Frá því segir séra Lárus
Halldórsson prestur á Breiðabólstað á Skógarströnd í hand-
ritaðri bók sem varðveitt er í Landsbókasafni íslands og
hefur þar safnmarkið Lbs. 2455 4to. Á forsíðu velur séra
Lárus bókinni heiti og segir á henni deili: „Fimbulþul. Marg-
háttaður alþýðufróðleikur íslenzkur. Lárus Halldórsson frá
Miðhrauni hefur safnað og saman ritað á árunum 1902
Frásögn séra Lárusar með vísum Hannesar og Einars er í
handritinu á bl. 183r-184r. Aðalsöguna hefur hann eftir
Brynjólfi Kúld, syni frú Þuríðar prófastsmaddömu í Stykkis-
hólmi sem kemur við aðra frásögn. Séra Lárusi segist svo frá
(þess skal getið ef tekið væri að fyrnast yfir skáldamálið að
„mundar svell“ í vísu Hannesar er góð og gegn kenning um
silfur sem höfuðskáld nota ótrauð):