Breiðfirðingur - 01.04.1990, Page 137
BREIÐFIRSKIR SKEMMTUNARMENN
135
Bragarbót Harastaða-Einars,
Athugasemd við prentun í Breiðfirðingi 1961-1962
Þar kom að Einar kvað Bragarbót til Hannesar sem var í
rauninni logandi háð, sem allir máttu skilja, nema þá
Hannes sjálfur í skáldskaparyfirlæti sínu, en sagt er að
honum hafi líkað vel og varð að orði: „Mikið skáld er
Einar!“ Bragarbót Einars er prentuð í áðurnefndri grein í
Breiðfirðingi 1961-1962, bls. 90-91, og er þá ekki við hæfi að
taka hana upp aftur fremur en háðbrag Einars um róðra
Hannesar undir Jökli: „Blessun flýði blakkinn sjós.“ Þó
verður að geta þess að í Bragarbót hafa laumast inn villur
sem leiðrétta má eftir skrifuðum blöðum með hendi Krist-
jáns Jóhannssonar. Blöðin eru í einkaeigu og voru áður
notuð í þætti um Kristján í riti Magnúsar Gestssonar, Mann-
líf og mórar í Dölum. Kristjáni var kveðskapur Einars
kunnur, þótt aldursmunur væri mikill, Kristján fæddur 1868.
Báðir héldu uppi glaðværð í byggðarlaginu með skopi og
gamansemi í kveðskap og þarf ekki að efa að Kristján hefur
kunnað að meta kveðskap forvera síns og var ekki líklegri
en aðrir til að aflaga það sem hann fór með. Upphaf að
Bragarbót og næstsíðasta erindið, þar sem texti er sýnilega
færður úr lagi í prentaðri útgáfu, er þannig í handriti
Kristjáns, bls 55 (Fyrirsögnin þar: „Bragarbót til Hannesar
frá Harastaða-Einari“):
Upphaf að Bragarbót:
Hannes ljóða herðir kvak,
hrygga gjörir káta,
er hann skálda yfirtak
upp á vissan máta.