Breiðfirðingur - 01.04.1990, Page 158
156
BREIÐFIRÐINGUR
Kleifar í Gilsfirði. Ljósm. Magnús Jónsson.
bróðir hans, sem Sigmundur hét og var upp alinn hjá Jóni
Ormssyni. Guðmundur var maður vel gefinn, gáfaður og
smiður góður. Jón bóndi átti dóttur, er Þuríður hét, og var
hún yngst barna hans. Það er sagt, að þeir legði báðir hug á
hana, Jón og Guðmundur. Guðmundur var hvefsinn nokkuð
og stríðinn, og stríddi hann oft Jóni, og var fremur í nöp við
hann.
Það var einhvern tíma að áliðnum vetri, að Jón var sendur
út á Skarðsströnd. Kom hann við í Fagradal á heimleið og
fann að máli systur sína, og varð þeim sundurorða og deildu
langa hríð, en gátu eigi orðið sammála, og fylgdi hún bróður
sínum á veg. Heyrði fólkið, að þau voru að yrðast. Gekk
hún með honum inn að Deild, gili, er skiptir löndum á milli
Fagradals og Tjaldaness. Var þá farið að fjúka nokkuð, og
sneri hún heim á leið, en Jón hélt inn eftir. Ekki kom Jón
heim um kvöldið og ekki daginn eftir, og hélst hríðin óslitið
allan þann tíma. En er veður batnaði, var farið að leita Jóns,