Breiðfirðingur - 01.04.1990, Page 167
THEÓDÓRA GUÐLAUGSDÓTTIR
165
aðar á Álafossi veiktist Theódóra af brjósthimnubólgu og
lungnabólgu og var hætt komin. Henni var ráðlagt af lækni
að fá sér vist á Vífilsstöðum, eða fara upp í sveit öðrum kosti
og varð það að ráði. Óskar var búfræðingur að mennt og
hafði búið á Hóli í Hvammssveit 1918-20, átti heimili þar og
rak nokkurn búskap þó hann ynni jafnframt hjá Álafossi
árin 1920-26. Það varð því úr að þau Theódóra ákváðu að
hefja búskap á Hóli árið 1926. Óskar vann þó áfram hjá
Álafossi fram á haustið, en Theódóra fór vestur strax um
vorið og tók við búsforráðum á Hóli.
Það voru blendnar tilfinningar sem hrærðust í brjósti ungu
konunnar, sem var allt í einu stödd á meðal ókunnugs fólks
í framandi umhverfi. Eftirvænting og vilji til að takast á við
ný verkefni á nýjum stað toguðust á við eftirsjá eftir ætt-
ingjum og vinum og velþekktu umhverfi. Það var í samræmi
við kynfylgju Theódóru að þessar tilfinningar fengju útrás í
ljóði og eru þessar hendingar úr kvæði, sem hún orti þá um
sumarið:
Ein ég stóð og engan þekkti,
allt var horfið sjónum mér.
Umhverfið og allt mig blekkti
áður en ég kynntist þér.
Nú er gott að mega muna
minning slíka í huga sér.
Þegar Theódóra kom vestur að Hóli þekkti hún varla
önnur sveitastörf en heyvinnu, en gekk strax til allra verka
bæði úti og inni og vann af mikilli elju og dugnaði alla sína
búskapartíð. Óskar, maður hennar, gegndi ýmsum trúnað-
arstörfum, er tóku drjúgan tíma frá bústörfum, sem féllu í
þeim mun ríkari mæli í hlut Theódóru. Óskar var í stjórn
Kaupfélags Stykkishólms og útibússtjóri þess og afgreiddi
vörur í Hjallanesi. Hann átti lengi sæti í hreppsnefnd og í
sýslunefnd um tíma, var formaður Ræktunarsambands
Vestur-Dala um skeið og af því að hann var bráðlaginn við
dýralækningar var talsvert leitað til hans af þeim sökum. Þá