Breiðfirðingur - 01.04.1990, Síða 168
166
BREIÐFIRÐINGUR
sá hann um lagningu vegar frá Krosshólaleiti að Hvammsá.
Það sumar stakk Theódóra alein út úr fjárhúsunum á Hóli
og tók upp mó, auk annarra heimilisstarfa.
Mjög var gestkvæmt á Hóli og oft næturgestir um lengri
eða skemmri tíma. Sumir gistu í allt að vikutíma. Stundum
kom fyrir að guðað var á glugga eftir að húsfreyjan var
gengin til hvílu, dauðþreytt eftir erfiði dagsins. Hún fór
ávallt á fætur og tók gestum sínum vel, en hún minnist þess
að oft var erfitt að reisa höfuð frá kodda í slíkum tilvikum.
Vorið 1946 tóku þau Theódóra og Óskar á móti 30
nemendum Gagnfræðaskóla Reykjavíkur, sem voru á skóla-
ferðalagi um Barðaströnd og Dali ásamt kennara sínum,
Steinþóri Guðmundssyni, en hann var kvæntur Ingibjörgu
Benediktsdóttur, sem var góð vinkona Theódóru. Það er til
marks um hug gestanna til gestgjafa sinna á Hóli að þegar
suður kom sendu þeir Theódóru Kvæðasafn Davíðs Stefáns-
sonar, í þremur bindum, og Óskari bókina Lýðveldishátíðin
1944. Á saurblöð bókanna er þetta skrautskrifað: „Með
þökk fyrir höfðinglegar móttökur, vorið 1946. Nemendur
Gagnfræðaskóla Reykjavíkur.“ Einu sinni kom Kristján,
bróðir Theódóru, ásamt skólabróður sínum, Magnúsi Thor-
lacius, og dvöldu þeir félagarnir hjá Theódóru í um það bil
hálfan mánuð og lásu undir stúdentspróf. Vistin á Hóli skil-
aði þeim í gegnum prófin og inn í Háskóla íslands, þar sem
báðir lásu síðan lögfræði.
Þau Óskar og Theódóra áttu þrjú börn, Huldu Jófríði
(fædd 1931), Marínó (fæddur 1932) og Grétu (fædd 1934).
Þá ólu þau upp Agnar Kristjánsson (fæddur 1939) og Maríu
Kristjánsdóttur (fædd 1942). Að auki dvöldu hjá Theódóru
nokkur sumur synir Guðrúnar systur hennar, þeir Axel,
Einar Gunnar, Kristján Ingi og Sverrir Einarssynir. Enn má
nefna að um mitt búskapartímabil Theódóru á Hóli var þar
farskóli. Það má því nærri geta að húsfreyjan hafi haft í
mörg horn að líta og mörgum að sinna, en jafnframt
umfangsmikilli búsýslu og heimilisstjórn var hún ótrúlega
afkastamikil á sviði félagsmála.