Breiðfirðingur - 01.04.1990, Page 175
THEÓDÓRA GUÐLAUGSDÓTTIR
173
Steinunni svilkonu sinni á Breiðabólstað út að Staðarfelli.
Þá var slegið upp balli og dansað og sungið fram á nótt.
Ófáar námsmeyjar Staðarfellsskóla minnast þessara stunda
með gleði svo og sveitungar, sem einnig nutu góðs af, ekki
síst þeir sem sóttu góð gjaforð til Staðarfells. Það er ekki
ólíklegt að einhverjir þeirra hafi stigið sín fyrstu dansspor
með konuefninu við undirleik Theódóru á Hóli.
Á fundi kvenfélagsins Guðrúnar Ósvífursdóttur, sem
haldinn var að Laugum sunnudaginn 22. maí 1955 sagði
Theódóra af sér formennsku í félaginu eftir 28 ára starf. Hún
hvatti stallsystur sínar til þess að rækja vel félagsskapinn og
mælti einnig hlý og falleg orð til félagsins og félagskvenna
yfirleitt og óskaói þeim heilla og blessunar. Þá lagði hún til
að fáni, sem hún hafði gefið félaginu á tuttugu ára afmæli
þess, yrði látinn standa á altari við kistu félagskonu þegar
útför hennar færi fram. Þessi tillaga var samþykkt. Þá var
Theódóra kært kvödd af félagskonum, sem gáfu henni
klukku að skilnaði með þökk fyrir „allt sem hún hafði fyrir
fél. gert og verið félagskonum", eins og segir í fundargerð.
Hún var seinna gerð að heiðursfélaga kvenfélagsins.
Skömmu seinna fluttust þau Theódóra og Óskar búferlum
norður að Vatni á Höfðaströnd í Skagafjarðarsýslu og
bjuggu þar til ársins 1959, er þau fluttu til Reykjavíkur og
hefur Theódóra búið þar síðan. Óskar lést árið 1980.
Eftir að Theódóra fluttist úr Dölum gaf hún sig ekki að
félagsmálum. Hún hefur hins vegar haldið áfram að vekja
fólki gleði og kátínu með sinni léttu lund, reynst bág-
stöddum hjálparhella og elskað kirkju sína og guð af engu
minni alúð en forðum. Eindrægni hennar og heiðarleik hefur
ávallt verið við brugðið, svo og blátærri skynsemi sem
stendur föstum fótum á jörðinni. Þá hefur þrek hennar
reynst með ólíkindum mikið og hefur hún gengið til starfa í
kjötbúðinni Borg allt fram undir þeniian dag. Hún er ern og
heldur öllu sínu andlega, þó að líkaminn sé farinn að bila. Á
tímum plastiks og æsistíls stendur Theódóra Guðlaugsdóttir
eins og klettur úr hafi gervimennsku og refsskapar, sem tákn