Morgunblaðið - 07.04.1994, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 07.04.1994, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRIL 1994 47 Hjónaminning Guðlaug Klemens- dóttir og Hermann Guðmundsson Guðlaug Fædd 28. nóvember 1906 Dáin 16. mars 1994 Hermann Fæddur 27. apríl 1902 Dáinn 31. mars 1994 Það varð stutt milli þeirra bless- aðra og þurfti engan að undra sem til þekkti, svo samtaka höfðu þau verið í lífinu. Guðlaug lést 6. f.m. og Hermann nú í dymbilvikunni. I annað sinn á nokkrum mánuðum verð ég vitni að því, að hjón, sem ég hef haft kynni af á lífsleiðinni og dáðst að hve samrýnd og sam- taka hafa verið fylgjast að yfir landamærin. Ég þekkti ekki til Guðlaugar og Hermanns, þegar þau settu bú forð- um uppi í Borgarfirði full af bjart- sýni í miðri kreppunni, var reyndar ekki fæddur. Þau festu kaup á jörð- inni Litla-Skarði í Stafholtstungum full áhuga að yrkja jörðina. Guðlaug var alin upp í Borgarfirðinum og leit jafnan á hann sem æskuslóðir, en annars var hún ættuð úr Dölunum eins og bóndi hennar, Hermann. Ég hef heyrt sagt, að leitun hafí þótt á glæsilegra ungu fólki á þeim árum, hann hávaxinn og myndarlegur, hún fríð svo af bar; fríðleikssvipnum hélt hún til hinstu stundar. En þau voru ekki aðeins ytri kost- um búin. Á annað atgervi reyndi síðar og þar voru þau einnig vel af guði gerð. Því það er nú svo, að engin veit sína ævina fyrr en öll er og stundum finnst manni þau örlög, sem sköpuð eru, undarleg. Vágest- urinn mikli, berklaveikin, barði að dyrum hjá þessum þróttmiklu ungu hjónum, sem svo mörgum á þeim árum. Þá höfðu þau búið tæpan ára- tug á jörð sinni, lítilli að vísu, en þar var bæði lax og hin fegursta náttúra. Húsbóndinn varð að dvelj- ast langdvölum á heilsuhæli. Þetta var mikið áfall fyrir atorkumann og nú reyndi ekki síður á húsfreyjuna með stóran barnahóp. Árið 1944 brugðu þau á það ráð, að flytjast til Reykjavíkur og settust að í Miðt- úni 6, sem síðan varð hreiður þeirra og fjölskyldunnar meðan kraftar entust. Síðustu árin dvöldu þau í hjúkrunarheimilinu Skjóli. í tvo áratugi samfellt barðist Hermann við þennan illvíga sjúkdóm og alla ævi bar hann merki hans. Vinnan varð því stundum stopul. En Guðlaug var starfsöm og útsjón- arsöm og stundum fannst manni hún vera tveggja manna maki í verki. Hún vann sér og öðrum, eins og það er kallað, og meðal annars lagði hún hönd á plóginn við heimilishald tengdaforeldra minna og síðar okkar hjóna. Guðlaug var slík mannkosta- manneskja að brátt myndaðist þarna vinátta og sterk bönd. Dóttir okkar sótti mikið til stóríjölskyldunnar í Miðtúni og vistaðist þar jafnvel um skeið, þegar foreldrarnir fóru á flakk og dótturdótturin Elsa varð einn helsti uppalandi stelpu. Lætur að lík- um að dagsverkið hjá Guðlaugu minni varð stundum drjúgt, en aldr- ei sýndi hún merki þreytu, veit ekki hvort hún kannaðist við það orð. Hún hafði fengið í vöggugjöf bjart- sýni, sem sigraðist á öllum erfiðleik- um, glaða lund, sem miðlaði öðrum í stað þess að vorkenna sjálfri sér, þó að siglingin hljóti stundum að hafa verið brött. Þar voru þau sam- hent, Hermann fróðleiksmaður og fékkst meira að segja við að yrkja með góðum árangri; Guðlaug, sem við, eðli málsins samkvæmt, kynnt- umst auðvitað betur, var næm á menn og málefni og bjó í ríkum mæli yfir þeim íslenska eiginleika, sem ég vil kalla að vera mannfróður. í síðasta skipti sem ég heimsótti Hermann og Guðlaugu var farið að halla undan fæti. Hermann sat í hjólastól frammi í almenningnum, en kom með okkur inn í herbergið þeirra, fylgdist vel með sem fyrr, en átti nú erfiðara að leggja orð í belg en hans var vandi. Guðlaug hafði lagt sig og var svolítinn tíma að átta sig. Hún var þá orðin mikið veik og mér brá, að hún skyldi ekki fagna okkur á þann hátt sem hún var vön. En Elli kerling tekur sinn toll og óvenju lengi hafði Guðlaug fengið að halda reisn sinni; nú var hún farin að nálgast nírætt. En svo rofaði til og sú höfðinglega gjöfula hlýja, sem jafnan streymdi frá þess- ari íslensku alþýðukonu, braust fram að nýju. Gömlu hjónin litu hlýtt hvort til annars og ég sá fyrir mér ungu hjónin á nýju jörðinni sinni fyrir 64 árum. Blessuð sé minning þeirra. Sveinn Einarsson. Þegar ég frétti andlát vinar míns Hermanns Guðmundssonar 31. mars sl. kom mér það vissulega ekki á óvart. Æviferill hans var orðinn langur og oft hafði all freklega gef- ið á bátinn á langri vegferð. Fyrir nákvæmlega hálfum mánuði andað- ist kona hans Guðlaug og varð því stutt milli brottkvaðningar þeirra hjóna, en þau höfðu deilt ævidögum sínum saman í sextíu og fjögur ár. Bæði önduðust þau á Hjúkrunar- heimilinu Skjóli, en þar höfðu þau dvalið frá árinu 1990. Hermann var fæddur að Leys- ingastöðum í Hvammssveit í Dölum 27. apríl 1902 og skorti því nokkra daga til að fylla nítugasta og annað aldursárið. Ungur að árum fluttist hann að Ljárskógarseli í Laxárdal í sömu sýslu með foreldrum sínum, Guðmundi Jónssyni og Guðfríði Guð- mundsdóttur. Synir þeirra hjóna voru tveir, Hermann og Skarphéð- inn, en sá síðarnefndi var skósmiður í Reykjavík og andaðist 1944. Hermann missti móður sína skömmu fyrir fermingu og hefur það eflaust haft mikil áhrif á svo ungan og viðkvæman dreng. Heimili hans mun hafa leyst upp skömmu síðar og ungur að árum fór hann í vinnu- mennsku á nærliggjandi bæi í þeim tilgangi að létta undir með þröngum efnahag í heimahúsum. Þegar hann náði meiri þroska stundaði hann vertíðarvinnu á Suðurnesjum á vetr- um, en vann að sveitastörfum á sumrin. Barna- og unglingafræðsla var mjög af skornum skammti í íslensk- um afdvalasveitum í byrjun þessarar aldar. Hermann naut þeirrar fræðslu sem þá var völ á þó námstíminn væri oft skammur, en hann mun hafa notfært sér þá fræðslu vel, því drengurinn var óvenju námfús og snemma meðtækilegur fyrir allan fróðleik, hvort sem hann var í bundnu eða óbundnu máli. En skóli lífsins mun samt hafa kennt honum mest og sannaðist á honum að löng skólaganga hefur aldrei reynst rétt- látur mælikvarði á haldgóða mennt- un. Ljárskógarsel er fjallajörð, sem nú er löngu komin í eyði, en þar ólst Hermann upp í nábýli við ungan dreng sem hét Jóhannes Jónasson, sem varð síðar þekktur undir nafn- inu Jóhannes úr Kötlum. Náinn kunningsskapur mun brátt hafa myndast milli þessara ungu sveina þótt Jóhannes væri nær þremur árum eldri, fæddur 1899. Þeir voru leikfélagar í æsku og bundust góðum vináttuböndum. Seint á þriðja áratugnum fluttist Hermann úr Dölum suður til Borg- arfjarðar og gerðist vinnumaður að Hvassafelli í Norðurárdal. Þar bjó þá afi þess er þetta ritar, Klemens Baldvinsson, og síðari kona hans Kristín Jónsdóttir miklu rausnarbúi. Á Hvassafelli kynntist Hermann konuefni sínu Guðlaugu móðursyst- ur minni og gengu þau í hjónaband árið 1930. Þau hófu búskap í Litla- Skarði í Stafholtstungum það sama ár. Jörðina byggðu þau upp og bættu að miklum mun á ótrúlega skömm- um tíma. Eftir níu ára búskap þar sýktist Hermann af berklaveiki og varð að dveljast á Vífilsstöðum með nokkrum hléum til ársins 1958, eða í nærfellt tvo áratugi. Árið 1944 brugðu þau hjón búi og fluttu til Reykjavíkur og festu þá kaup á húseigninni Miðtúni 6. Þar áttu þau heima meðan heilsa og kraftar beggja leyfðu, en fluttust þá á Hjúkrunarheimilið Skjól eins og fyrr er greint frá. Það mun ekki hafa verið sárs- aukalaust fyrir Hermann og Guð- laugu frænku mína að flytjat frá Litla-Skarði og á mölina. Bæði unnu þau gróðursæld borgfirskrar gróð- urmoldar og höfðu þegar séð góðan árangur af starfi sínu í þau fjögur ár, sem þau höfðu þar búsetu. Nátt- úrufegurð í Litla-Skarði er rómuð eins og víðar í Borgarfirði og þau bönd sem Hermann batt við þann stað, þar sem hann vann að helsta ævistarfi sínu, rofnuðu aldrei meðan hann lifði. Á síðari árum tókst þeim hjónum ásamt böfnum sínum að reisa lítið sumarhús á fögrum stað í Litla- Skarðslandi. Þar áttu Hermann og kona hans nokkrar sælar unaðs- stundir á elliárunum. Útsýni frá sumarhúsinu er stórfenglegt og sést þaðan vítt um hinar breiðu byggðir Borgarfjarðar. Þegar Hermann hafði náð sæmi- legri heilsu eftir dvöl sína á Vífils- stöðum fékk hann vinnu í Ofnasmiðj- unni í Reykjavík og starfaði þar svo lengi sem kraftar entust. Hermann og Guðlaug eignuðust fimm börn, sem öll eru á lífi, en þau eru: Guðfríður, Kristín, Klemenz, Guðbjörg og Pétur. Ég minnist þess að fyrstu kynni mín af Hermanni voru fyrir rösklega sextíu og fimm árum. Þá kom hann oft að Klettstíu á heimili foreldra minna. Ég man hvað við Karl bróðir minn, sem er tveimur árum eldri en ég, höfðum mikla ánægju af þessum heimsóknum hans. Hann var ætíð glaður og hress og hafði frá mörgu að segja, sem kætti geð ungra sveina. Hann kunni vissulega að umgangast börn og lék sér við okk- ur eins og við værum allir á líku reki. Á hinni löngu dvöl sinni á Vífils- staðahælinu mun Hermann í fyrsta . skipti á ævinni hafa átt þess kost að kynnst miklu úrvali bóka og not- aði hann sér það í ríkum mæii. Hann hafði dálæti á Ijóðum, sögulegum fróðleik og þá var ættfræði honum mjög hugleikin. Hermann var ágæt- lega hagmæltur og hafði gott brag- eyra. Hann lagði það aldrei í vana sinn að flíka vísnagerð sinni þótt nokkrar af vísum hans hafi birst á prenti. Venjulega voru það kunningj- ar hans sem komu þeim á framfæri og þá oft í óþökk höfundar. Her- mann skrifaði all nákvæmar dagbækur í nær hálfa öld og hef ég heimildir fyrir því að þær hafí að geyma merkilegan fróðleik úr lífs- baráttu alþýðumanns, sem aldrei gafst upp, en horfði björtum augum til framtíðar þótt oft syrti í álinn. Þessar dagbækur hans ásamt safni hans af vísum og kviðlingum eru nú í vörslu bama hans. Hermann gerðist brátt eftir að hann kom að Vífilsstöðum félagi í félagssamtökum berklasjúklinga og var um tíma virkur þátttakandi i þróttmiklu starfi SÍBS. Hann taldi þau samtök ávallt mjög merkileg, sem mörgu góðu hafa komið til leið- ar með gífurlegu starfi. Þegar ég að leiðarlokum kveð ■ minn ágæta vin Hermann Guð- mundsson er mér efst í huga þakk- læti fyrir allar hinar góðu og ánægjulegu samverustundir sem við áttum í áranna rás. Hann var mjög heilsteyptur maður að allri gerð. Hann unni af heilum hug öllum fróð- leik og fylgdist vel með því sem gerðist í þjóðfélagsmálum, og því var gaman að spjalla við Hermann um liðna tíma því minni hans var næstum óbrigðult lengi fram eftir ævi. Hann hafði mjög góða kímni- gáfu, ágætur frásagnarmaður og jafnan léttur í lund. En minnisverð- astur er hann mér fyrir innri sálarró og andlegan styrk og gat að jafnaði séð „sólskinsblett í heiði“ þótt erfið- leikarnir virtust oft og tíðum lítt viðráðanlegir. Ég og fjölskylda mín sendum öll- um aðstandendum hans hugheilar samúðarkveðjur. Far þú í friði, gamli vinur. Bless- uð sé minning Hermanns frá Litla- Skarði. Klemenz Jónsson. Björg Olafs- dóttir - Minning Fædd 6. nóvember 1927 Dáin 26. mars 1994 Á Hvallátrum við Látrabjarg er vestasta byggð á íslandi. Bæirnir standa við vík sem er umlukin fjöll- um á þijá vegu, en mót vestri er opið Atlantshafið. Þarna getur oft verið kalt og veðrasamt, en hrikaleg fegurðin í umhverfi Látrabjargs ásamt björtum vornóttum og löngum sumardögum gera þenann stað að einum af náttúruperlum íslands. Á þessum stað fæddist Björg Ól- afsdóttir 6. nóvember 1927. Hún var dóttir hjónanna Önnu Eggertsdóttur og Ólafs Halldórssonar. Björg átti einn bróður sem var fimm árum yngri en hún. Á uppvaxtarárum Bjargar var fjölmenni á Látrum. Þar voru þijú aðalbýli, Heimabær, Mið- bær og Húsabæir. Þarna var jöfnum höndum stundaður sauðfjárbúskap- ur og sjósókn enda stutt á gjöful fiskimið. Einnig var mikil fugla- og eggjataka í Látrabjargi. A Heimabæ bjuggu móðurforeldr- ar Bjargar, Eggert Eggertsson og kona hans, Halldóra Gísladóttir. Þau eignuðust fjögur börn, Ólöfu, Daní- el, Önnu og Sigríði. Systkinin öll ásamt mökum sínum settust að á Látrum hjá foreldrum sínum. Ólöf og Anna giftust bræðrum. Jörðinni Heimabæ var skipt niður í parta og þau stunduðu búskapinn eins og gert hafði verið frá ómunatíð á þess- um stað. Sambúðin á Heimabæ var mjög náin og sérstæð og sátt og samlyndi ríkti ávallt á milli fjöl- skyldnanna. Systur Önnu, þær Ólöf og Sigríð- ur, eignuðust börn, Ólöf eignaðist tvær dætur og börn Sigríðar urðu tíu og voru þau ásamt Björgu og Halldóri, börnum Önnu, alin upp saman og þótti vænt hvert um ann- að sem væru þau systkini. Okkur börnum Ólafar og Sigríðar var Björg meira en kær frænka. Hún er í huga okkar sem systir og þann- ig munum við minnast hennar um ókomin ár, svo nátengd er hún öllum æskuminningum okkar frá Látrum. Sérstaklega voru þær frænkurnar Björg og Hulda, dóttir Sigríðar, miklar vinkonur. Nöfn þeirra tveggja voru ávallt nefnd í sömu andránni, svo samrýndar voru þær. Vinátta þeirra hefur haldist alla tíð síðan. Björg var einkar vel gerð kona. Hún var fríð sínum, hæg og prúð í fasi en kát og glöð að eðlisfari og það breyttist ekki þó að hún gengi með langvinnan og kvalafullan sjúk- dóm um árabil. Björg sleit barnsskónum á Látr- um. Um tvítugt fór hún á Húsmæð- raskólann á Staðarfelli, en árið 1949 giftist hún eftirlifandi manni sínum, Magnúsi Guðmundssyni frá Patreks- firði. Þau eignuðust fimm börn. Elsta drenginn sinn misstu þau af slysför- um. Hin börnin eru: Aron, Ingibjörg, Anna og Flosi. Fyrstu búskaparár sín bjuggu þau í Reykjavík en síð- ustu þijátíu árin hafa þau búið á Patreksfirði, þar sem Magnús starf- ar nú sem flugvallarstjóri. Við vottum Magnúsi og börnum svo og fjölskyldum þeirra ásamt Halldóri og fjölskyldu hans okkar dýpstu samúð. Guð blessi minningu Bjargar Ól- afsdóttur. Frændsystkinin frá Heimabæ. FESTIN G A J ÁRN ■ ■ OG KAMBSAUMUR Þýsk gæðavara — traustari festing HVERGI MEIRA URVAL Armúlu 29 IOK Rcykjavík sinmr 38640 .iK 686IIM)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.