Morgunblaðið - 09.09.1980, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
202. tbl. 68. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 1980
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Helmut Schmidt kanzlari Vestur-Þýzkalands flytur ávarp á útifundi i Dortmund á laugardag í upphafi kosningabaráttu
Sósialdemókrata vegna þingkosninganna í október. Schmidt hefur hér tyllt sér upp á tóman bjórkassa. simamynd. - ap.
Pólland:
Yeigamiklar breytingar á
stjórnun efnahagsmála?
Varsjá, 8. sept. AP.
HENRYK Kisiel varaforsætisráó-
herra Póllands skýrði i dag frá
veigamiklum breytingum er
gerðar hafa verið á stjórnun
efnahagsmála i Póllandi á sama
tíma og þaðan berast fregnir af
nýjum verkfollum. Þá fór Stanis-
law Kania, nýkjörinn leiðtogi
pólska kommúnistaflokksins,
óvænt og skyndilega i ferð til
nokkurra Eystrasaltsborga, þar
sem verkföllin voru hvað mögn-
uðust, og átti hann m.a. viðræðu-
fundi við flokksleiðtoga i Gdynia
og Gdansk. Kania fer að öllum
likindum til Katowice, fyrrum
heimabæjar Giereks fyrrum
flokksleiðtoga, á morgun, sömu
erinda.
Kisiel skýrði frá því að nýskip-
an efnahagsmálanna væri fyrst og
fremst fólgin í dreifingu valdsins,
ákvarðanatakan í ýmsum málum
yrði færð út í héruðin og verk-
smiðjurnar. Um væri að ræða
aðgerðir í húsnæðismálum, vega-
gerð, innanríkisverzlun og í ýms-
um þjónustugreinum. Forstöðu-
mönnum verksmiðja væri jafn-
framt gefnar frjálsari hendur með
stjórnun þeirra. Þá hefði verið
sett á laggirnar 20 manna ráð er
Kisiel veitti forystu, og er því
ætlað að gera tillögur um enn
frekari endurbætur á stjórnun
efnahagslífsins heima fyrir.
Á blaðamannafundi, sem Kisiel
hélt í dag, kom fram, að beint
framleiðslutap vegna verkfall-
anna hefði numið um einum millj-
arði Bandaríkjadala. Hann sagði
að launahækkanir, fjölskyldubæt-
ur og aðrar úrbætur, er pólskir
verkamenn náðu fram með verk-
föllunum, hefðu í för með sér
tæplega fjögurra milljarða dollara
útgjaldaaukningu fyrir ríkissjóð,
Starfsmenn Mielec-samgöngu-
tækjaverksmiðjunnar í suðaustur-
hluta Póllands mættu ekki til-
vinnu fjórða daginn í röð í mót-
mælaskyni við tilraunir flokks-
leiðtoga til að koma í veg fyrir
myndun frjáls verkalýðsfélags í
verksmiðjunum. Verkamennirnir
hafa lagt fram lista með kröfum
sínum, og er ein þeirra á þá lund
að flokksleiðtoginn verði settur af.
Þá staðfesti pólska fréttastofan
PAP, að verkföll væru enn í
Stanislaw Kania
verksmiðjum í borginni Bialystok
við sovézku landamærin í Elk og
Kamienna Gora, og meðal starfs-
fólks við almenningssamgöngur í
borginni Tarnow við tékknesku
landamærin.
Svartir gengu
berserksgang
Pretoríu. 8. september. AP.
UM 1.500 þeldökkir námsmenn
gengu i dag berserksgang i
hverfi hvitra i demantsvinnslu-
borginni Kimberley. brutust inn
i hús og unnu spjöll á mannvirkj-
um. Handteknir voru 19 náms-
menn er til átaka kom milli
þeirra og lögreglu.
Allt frá því í marzmánuði síð-
astliðnum hafa námsmenn í skól-
um þeldökkra og kynblendinga
mótmælt kennslukerfi S-Afríku,
og er aðgerðirnar mögnuðust,
greip stjórn landsins til þess ráðs
að loka skólum viðkomandi í
Kimberley.
Námsmennirnir létu fyrst til
skarar skríða er Ferdie Hartzen-
berg menntamálaráðherra bjóst
til að ávarpa foreldra þeldökkra
námsmanna á útifundi, og skýra
þeim sjónarmið stjórnarinnar
varðandi lokun skólanna. Brenndu
þeir bækur sínar í mótmælaskyni
við aðgerðir stjórnarinnar. Er
lögregla bað námsmennina að
hverfa af vettvangi, gripu þeir til
grjótkasts, sem lögreglan svaraði
með því að varpa táragassprengj-
um í hópinn.
Breytingar
hjá Suarez
Madrid. 8. september. AP.
TILKYNNT var um það opinber-
lega í kvöld. að Adolfo Suarez,
forsætisráðherra hefði gert
margar og óvæntar breytingar á
stjórn sinni, og að Juan Carlos
konungur hefði lagt blessun sina
yfir ákvarðanir Suarezar. Jafn-
framt var frá þvi skýrt, að ný
stjórn mundi sverja embættiseiða
á morgun, þriðjudag.
Kunnugir segja, að með breyt-
ingunum sé Suarez fyrst og fremst
að reyna að lækka í þeim sem
hvað óánægðastir eru með stjórn-
ina, en hann hefur legið undir
þungri gagnrýni upp á síðkastið
vegna verðbólgu, atvinnuleysis og
hryðjuverka á Spáni.
Sérstaklega kom á óvart, að
Suarez skildi láta Marcelino Oreja
víkja úr embætti utanríkisráð-
herra, með tilliti til þess að á
morgun hefst í Madríd undirbún-
ingsfundur Öryggisráðstefnu Evr-
ópu, en Oreja átti að opna fund-
inn. Við embætti Oreja tekur Jose
Pedro Perez Llorca er farið hefur
með málefni þjóðarbrota er hlotið
hafa sjálfsforræði. Oreja hefur
verið ákafur talsmaður þess, að
Spánverjar gangi í NATO, en
formælendur utanríkisráðuneytis-
ins sögðu í dag, að breytingin
hefði í raun og veru engin áhrif á
utanríkisstefnu Spánar.
Framsókn í
Afganistan
Nýju Dflhl, Moskvu. 8. urptember. AP.
SOVÉZKAR hersveitir, sem sér-
staklega hafa verið þjálfaðar til
viðureignar við skæruliða. hafa
sótt yfir 30 kilómetra inn i
Panjshir-dalinn, sem afganskir
skæruliðar hafa haft algjörlega á
sinu valdi siðustu mánuði. Fregn-
ir frá Afganistan herma, að
siðustu daga hafi komið til hörð-
ustu bardaga i striðinu i Afgan-
istan til þessa, og að eyðilegging
hafi verið mikil. Sovézku herirnir
hafi notið tilstyrks afganskra
leiguliða i viðureigninni um
Panjshir-dalinn. sem er hernað-
arlega mikilvægur.
Heimildir, er hingað til hafa
reynzt áreiðanlegar, hermdu, að
komið hefði til blóðugra bardaga
og að mannfall hafi verið mikið í
röðum beggja. Þriðjungur allra
mannvirkja hafi verið lagður í
rúst í loftárásum Rússa, sem verið
hafi geysimiklar. Sókn Rússa hef-
ur verið þyngri en nokkru sinni
fyrr, sögðu heimildirnar, og hafa
þeir lagað heri sína betur að
baráttu við skæruliða.
Þeir hefðu orðið sér út um 500
leiguliða úr röðum innfæddra í
Paktia-héraði í suðausturhluta
Afganistans, en heimildir herma,
að leiguliðarnir hafi flestir fallið á
fyrstu dögum sóknarinnar miklu í
Panjshir-dal, sem hófst fyrir
rúmri viku.
Nefnd háttsettra hernaðarsér-
fræðinga var í dag send til Kabúl
til að leggja mat á frammistöðu
Rauða hersins í Afganistan, að
sögn vestrænna diplómata.
Vangaveltur voru um það, að þeir
myndu leggja til breyttar bar-
dagaaðferðir, einkum að sérstakar
og mjög hreyfanlegar víkinga-
sveitir kæmu meira til skjalanna í
viðureigninni við þjóðfrelsisöflin,
en slíkum sveitum hefur orðið vel
ágengt í Afganistan að undan-
förnu, samkvæmt fregnum þaðan.
Ó1 heilbrigðan son
meðvitundarlaus
Tel Aviv,
8. september. AP.
RÚMLEGA þritug kona, sem
missti meðvitund í bilslysi fyrir
fimm mánuðum og hefur ekki
vaknað úr dái síðan. ól i dag
ellefu marka son, er tekinn var
með keisaraskurði. Drengurinn.
sem var alheili, var til að byrja
með látinn i öndunarvél, en var
tekinn úr henni eftir nokkrar
klukkustundir. þar sem hennar
gerðist ekki þörf.
Læknar ákváðu strax eftir
slysið að binda ekki endi á
þungun konunnar, sem þá var
komin fjóra mánuði á leið, en
vegna höfuðmeiðsla, er konan
hlaut í slysinu, urðu þeir að gera
sérstakar skurðaðgerðir til að
létta þrýstingi af heila hennar og
lungum.