Morgunblaðið - 27.03.1984, Side 1
48 SIÐUR MEÐ 4 SIÐNA IÞROTTABLAÐI
STOFNAÐ 1913
72. tbl. 71. árg.
I»RIÐJUDAGUR 27. MARZ 1984
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Brottför franska friðargæsluliðsins hafin:
Leiðtogarnir reyna
að draga úr átökum
Beirút, 26. mars. Al\
FRANSKA friðargKsluliðið hóf
brottfór sína frá Beirút í dag og brá
svo við, að eldflaug hafnaði {sjónum
rétt við tvo landgöngupramma sem
hlaðnir voru frönskum friðargæslu-
mönnum og vistum þeirra. Ekki var
Ijóst hvort eldflauginni var miðað að
Frökkunum eða að hún hafi hafnað
þarna fyrir slysni, en barist var víða
í Beirút og gat það allt eins hafa
gerst. Mannfall var í Beirút.
Frakkarnir ætla sér að ljúka
brottflutningi liðs síns fyrir mán-
aðamótin og deila leiðtogar hinna
stríðandi fylkinga í landinu um
hvaða aðilar skuli taka upp þráð-
inn. Þeir voru hins vegar sammála
um að berjast ekki um stöðvar
franska liðsins við „grænu lín-
una“, heldur tók stjórnarherinn
líbanski stöðu þar án átaka. Þá
afhentu drúsar stjórnarhernum
aðalstöðvar smáfylkingar nokk-
urrar sem Líbýumenn styðja vel
við og hefur staðið fyrir hryðju-
verkum í borginni.
Leiðtogar hinna stríðandi fylk-
inga unnu sleitulítið í dag að því
að reyna að treysta frið í einhverri
mynd í Beirút. Það gekk brösulega
að vanda og barist var í borginni
sem fyrr segir og fóru bardagar
harðnandi er að kvöldi leið.
Vilja ná sinnepsgas-
inu úr Eystrasalti
k •unmannthöfn mnrsi AP
Kaupmannahöfn, 26. mars. AP.
ITMHVERFISMÁLARÁÐHERRA Danmerkur, Christian Christiansen, skip-
aði í dag nefnd sem á í snarhasti að athuga möguleika þá sem kunna að vera
á því að fiska upp af hafsbotni í Eystrasalti 100.000 tonn af þýsku sinneps-
gasi.
Rúmlega 30 skip hafa fengið
sinnepsgassprengjur um borð á
fyrstu mánuðum þessa árs og
þótti mönnum nóg komið er sjö
færeyskir togarasjómenn hlutu
slæma eitrun eftir að gassprengja
hafði komið upp í vörpunni. Þar
með höfðu tólf sjómenn brunnið
illa af sinnepsgasi í sömu vikunni.
Ekki gera menn sér þó miklar
vonir um að þetta megi takast.
Nils Christian Linde major, og
einn af sérfræðingum danska
hersins í efnavopnum er þeirrar
skoðunar að þetta sé óframkvæm-
anlegt með öllu. Segir Linde: „Tog-
arar hafa fiskað af hafsbotni að
jafnaði tvö tonn af gasi á ári
hverju síðustu árin. í flestum til-
vikum hafa sprengjurnar leystst
upp og orðið að engu, en gasið leg-
ið eftir í kekkjum á botninum. Um
leið og kekkirnir koma upp á yfir-
borðið fer gasið að virka og er
stórhættulegt. Og í þeim tilvikum
þar sem sprengjuhylkið er enn
utan um gasið, brotnar hylkið
vanalega við hið minnsta um-
stang. Ég sé því ekki hvernig
menn ætla sér að ná upp 100.000
tonnum af bráðdrepandi efni, sem
rýkur stjórnlaust í andrúmsloftið
er það kemur upp á yfirborðið.
Færeysku sjómennirnir sjö
höfðu fengið sjónina á ný síðast er
fréttist og þeir voru á batavegi.
Þrír voru þó illa brenndir, með
þriðja stigs bruna á um 15 prósent
af líkamanum og væga eitrun í
lungum.
Drottning í Jórdaníu s,mamynd AP
ELÍSABET Bretadrottning kom til Jórdaníu í dag ásamt eiginmanni
sínum, Filippusi prins, og var þeim tekið með virktum. Hussein
Jórdaníukonungur tók á móti bresku þjóðarleiðtogunum.
ÖryggisgKsla er mikil í Jórdaníu og litlu munaði að þau Elísabet og
Filippus hættu við ferð sína, þar sem sprengjur sprungu í höfuðborginni
Amman um helgina. Á meðfylgjandi mynd fylgir Hussein drottningu að
flugstöðvarbyggingunni á flugvellinum í Amman.
t't i., , p . | • , m n ■ í El Salvadorskar konur bíða þess brosandi að kjósa.
Urslit í forsetakosnmgunum 1 E1 Salvador:
Kristilegir demókratar
spáðu sjálfum sér sigri
San Salvador, El Salvador. 26. mars. AP.
TALNING atkvæða eftir forseta-
kosningarnar í El Salvador var í full-
um gangi síðast er fréttist og ekki að
vænta úrslita fyrr en í nótt. Tafðist
talning um hríð meðan rifist var um
hlutleysi talningarmanna víða. En
könnun sem Kristilegi Demókrata-
flokkurinn gekkst fyrir benti til þess
að frambjóðandi hans, Jose Napol-
eon Duarte, myndi fá eitthvað um 45
prósent atkvæða, en aðrir minna.
Verði umræddar tölur ofan á, þarf að
kjósa að nýju þar eð frambjóðandi
verður að fá helming atkvæða eða
meira.
Könnun Kristilegra demókrata
var byggð á 170.000 atkvæðaseðlum
sem skoðaðir voru víðs vegar um
landið. Helsti keppinauturinn, hinn
hægri sinnaði Alliance-flokkur
með Roberto D’Abuisson í farar-
broddi fékk samkvæmt könnuninni
27 prósent. Auk þess hafði Kristi-
legi demókrataflokkurinn verulega
betri stöðu í 12 af 14 kjördæmum
landsins. Sem fyrr segir, að reynist
þessar tölur haldbærar og réttar í
öllum aðalatriðum, verður kosið að
nýju og þá aðeins á milli þeirra
tveggja flokka sem flest atkvæðin
fá. Sjá nánar frétt á blaðsíðu 21.
Krókódíll
réðst á
Sonju
prinsessu
Osló, 26. mars. Frá Jan Erik Laure,
frétUr. Mbl.
„ÉG VAR lífhrKdd," sagði Sonja,
norska krónprinsessan, eftir að
reiður krókódfll hafði freistað að
bíta af henni handlegginn. Atvikið
átti sér stað í dýragarði í Zimba-
bwe þar sem Sonja var á ferð fyrir
skemmstu.
Hún skoðaði sig um í dýrag-
arði og með henni var umhverf-
ismálaráðherra Zimbabwe.
Henni þótti krókódíll einn sem
þar var i prisund hinn gæða-
legasti og teygði hendina niður
til hans. Brást óargadýrið hið
versta við og smellti kjaftinum.
Ráðherrann kippti í Sonju, en
um leið munaði aðeins fáeinum
millimetrum að krókódíllinn
næði að gæða sér á handlegg
hans. Þau sluppu því með
skrekkinn, en krókódíllinn
reyndi ítrekað að príla upp
brattann vegg sem sniðinn er
með það fyrir augum að krókó-
dílar komist ekki upp til að
blanda geði við gesti safnsins.