Morgunblaðið - 27.03.1984, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 27.03.1984, Blaðsíða 15
1 1 4 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. MARZ 1984 15 Afínælissýning Valtýs Péturssonar Myndlist Valtýr Pétursson Á laugardaginn var opnuð merkileg sýning í Listmuna- húsinu við Lækjargötu. Til sýnis eru 66 gvass-myndir eft- ir Valtý Pétursson er hann gerði á árunum 1951—’57 er hann ásamt fleirum innleiddi flatarmálslistina í íslenzka myndlist. Flestar myndirnar eru frá árinu 1952 og voru á sýningu í Listvinasalnum, eins og Ás- mundarsalur nefndist þá, en sú sýning gekk illa enda mynd- irnar nýlist þeirra tíma. Sýningin er m.a. merkileg fyrir það, að hún kemur rétt á eftir sýningu á eldri myndum Þorvaldar Skúlasonar en þess- ir tveir málarar hafa fylgt þeirri reglu, að sýna einungis nýleg verk. Hér er því um ánægjulega viðhorfsbreytingu að ræða hjá þessum brautryðj- endum nýlista og þeim sjálfum í hag því að framtakið hefur vakið mikla athygli. Fram kemur að þessi kafli á listferli Valtýs var næsta gleymdur og fólk rekur upp stór augu er það sér myndirnar og uppgötvar vísast ný sannindi um sam- hengið í íslenzkri myndlist. Sýningin áréttar enn einu sinni mikilvægi þess að tekin verði saman bók um þróun ís- lenzkrar myndlistar frá lokum seinni heimsstyrjaldarinnar og fram á daginn í dag. Hér er það mikilvægt að menn séu með í ráðum er fylgst hafa með þróuninni allt tímabilið og gjörþekkja til hlutanna, því að það ríkir furðuleg fáfræði meðal margra um samhengið í íslenskri myndlist ef marka má fjölmiðlaviðtöl. — Það er sterkur heildar- svipur yfir sýningunni og myndirnar njóta sín frábær- lega vel í sölum Listmunahúss- ins. Sjálfsagt eru þær misjafn- ar að gæðum en hinar þestu þeirra og hnitmiðuðustu standa fyllilega fyrir sínu og eru mikilvægar í listsögu- legum skilningi. Allar eru myndirnar nafn- lausar og lifa sínu eigin lífi í formi og lit. Heillegastar þóttu mér myndir fárra en mark- vissra forma þar sem list- amaðurinn leggur áhersluna á samræmda myndbyggingu og litrænt ferli. Gott dæmi um þetta eru myndir nr. 4, 5, 6,11, 17, 19, 25, 34, 55 og 67. Á köfl- um vinnur Valtýr í fióknari formum og ferst það vel úr hendi í myndum eins og nr. 43, 45 og 57. Það fer ekki hjá því er mað- ur skoðar þessa sýningu, að mann undrar ofstækið að baki myndanna á sínum tíma en sem kunnugt er þá var þetta stóri sannleikurinn og það jaðraði við landráð að leita til hlutveruleikans um myndefni. I dag er þetta sárameinlaust og telst til rannsókna á mögu- leikum myndflatarins enda kennt sem formfræði í mynd- listarskólum. Áhrifin að baki þessara mynda eru sótt til Parísar, há- borgar heimslistarinnar á þeim árum. Margar myndirnar urðu til í hótelherbergi en hót- elherbergi voru jafnframt vinnustofur hins fjölmenna hóps íslenzkra myndlistar- manna er leitaði þangað. Að sjálfsögðu var þetta á gullald- artímabili flatarmálsmál- verksins „geometríunnar" og helstu sýningarsalir Parísar- borgar sýndu varla annað. Á þessum árum gerist það einnig að Valtýr Pétursson er ráðinn myndlistargagnrýn- andi Morgunblaðsins og hefur gegnt þeirri stöðu í rúma þrjá áratugi svo sem landsmönnum er kunnugt. Sem vænta mátti varð hann ekki síður umdeild- ur í því starfi en myndlistinni. Valtýr hefur aldrei verið mað- ur lognmollunnar, um hann hafa blásið stríðir vindar úr öllum áttum á löngum ferli. Sýningin í Listmunahúsinu er sett upp í tilefni af 65 ára af- mæli listamannsins sem er í dag og um leið og ég sendi hon- um mínar bestu heillaóskir þakka ég fyrir fallega sýningu. Bragi Ásgeirsson 1 Dæmi: Gjafakort sem greitt er fyrir 2000 — er 2.200 virði!!! Fatnaður er nytsöm gjöf sérstaklega fyrir ungt fólk. Látið unglingana sem fermast velja sjálfa með aðstoð þjálfaðs afgreiðslufólks. FORELDRAR FERMINGARBARNA Viö höfum ákveöiö að gefa ykkur kost á greiöslukjörum vegna fata- kaupa fyrir ykkur sjálf. Fermingar- gjaf akortin meira virði!!!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.