Vísir - 23.12.1951, Page 36
36
JÓLABLAÐ VISIS
Veðrahjálmur
Eg drakk heita mjólk úr
bolla, því kaffi drakk eg
ekki fyrr en eg var 19 ára.
JVar ég svo óheppinn, að mér
svelgdist illa á mjólkinni, en
gat þó snúið mér frá borð-
inu, svo að ekki sakaði.
Feiminn var ég áður, en
hálfu feimnari varð ég nú,
og lá við að ég færi að
kjökra út áf þessu. Faðir
minn var svo niðursokkinn
i samræður við sessunaut
sinn, að hann tók ekki eftir
þessu, en kona ein, er sat
við hlið mér, fór að hug-
hreysta mig. Tók hún vasa-
klút, sem mamma hafði lát-
ið í brjóstvasa minn, og
þurrkaði mér um nef og
munn og sagði að „þetta
væri ekkert.“ Hresstist ég
brátt við þetta. Aldrei vissi
ég 'hver þessi kona var, en
vænt þótti mér um hana fyr-
ir þetta.
það varð að ráði að við
yrðum samferða hjónunum
frá Ytri-Húsabakka, þeim
Pálma Björnssyni og Ingi-
björgu Grímsdóttur, og Jón-
ínu Guðmundsdóttur, konu
Jónasar Magnússonar á
Syðri-Húsabakka og færum
niður yfir Glaumbæjareyj-
ar, þótt það væri ögn lengra.
Með þeim voru tveir dreng-
ir, Björn Pálmason og Jón-
as Jón Gunnarsson frá Kefla-
vík, fóstursonur Jónasar á
Syðri-Húsabakka, móður-
bróður síns. Var hann fjör-
kálfur hinn mesti eins og
Magnús afi hans í Utan-
verðu-Nesi. Þótti mér ekki
ónýtt að fá þá samfylgd, en
þeir drengir voru þá um
fermingu. Jónas bóndi á
„syðri bænum“ hafði ekki
farið til kirkju. Komið var
rökkur, er við kvöddum
Hallgrím prest og fórum frá
Glaumhæ.
Yzt og neðst í túninu í
Glaumbæ er lcot, sem Jaðar
heitir. Þar bjó þá Rögnvald-
ur Jónasson hagyrðingur.
Var faðir hans Svarfdæling-
ur, en Sumarrós móðir hans
var dóttir Pollagerðis-Páls
skálds. Fylgikona Rögnvald-
ar var Sigurlaug Þorláks-
dóttir frá Miklahóli Ingi-
mundarsonar. Voru þær
bræðradætur Sigurlaug og
Elísabet, miðkona föður
míns. Voru þau nokkuð við
aldur, er hér var lcomið. Áð-
ur höfðu þau verið i Rein í
Hegranesi og að Ríp hjá
séra Hallgrimi, er hann var
þar prestur.
Einn son áttu þau barna,
sem Árni heitir. Var hann
þá unglingur, mjög vel gef-
inn. Hafði faðir minn tekið
á móti honum við fæðingu,
þegar héraðslæknirinn gafst
upp og taldi vonlaust að
bjarga lífi barns og móð-
ur., Heilsaðist barninu og
móðurinni vel eftir atvikum,
enda var faðir minn í miklu
uppáhaldi hjá foreldrum
Árna eftir þetta. Pálmi átti
erindi við Rögnvald í Jaðri,
og komum við þar á hlaðið.
Tóku þau okkur með bliðu
og buðu okkur inn, þótt kot-
ið væri lítið og lágt að risi.
Þegar inn kom faðmaði Sig-
urlaug mig að sér og kyssti
mig, en heldur var ég nú
feiminn við það, en þorði
ekki að láta á þvi bera. Sig-
urlaug var barngóð og lét
tvær sykraðar lummur í
vasa minn þegar við fórum.
Við þágum þar þær beztu
góðgerðir, sem þau gátu
veitt, en svo spilaði Árni
jólasálmana á litla orgelið
sitt og sungu gestirnir með.
Dagsett var orðið þegar
við fórum frá Jaðri. Ör-
tungla var, en logn og heið-
ríkt og bjart af stjörnum og!
norðurljósum. Við héldum
nú að Syðri-Húsabakka. Við
strákarnir hlupum ýmist
spölkorn á undan fullorðna
fólkinu, eða þá að við dróg-
umst aftur úr við að fljúgast
á í gamni, þvi að Bjössi og
Nonni voru kátir vel. Þegar
ég þreyttist leiddu þeir mig
á milli sín og létti það mér
mikið gönguna. Samt varð
ég feginn þegar við komum
að Syðri-Húsabakka. Jónas
bóndi fagnaði okkur vel.
Hann hafði kveikt á lamp-
anum og hitað á katlinum
og allt var þar hreint og
fágað inni. Við komum inn
og þágum góðgerðir, því að
þau hjón voru höfðingjar
lieim að sækja. Eg afþreyttist
á meðan við stönzuðum. Fór
um við nú með hjónunum
frá Ytri-Húsabakka og
Bjössa, út þangað. Þau buðu
okkur til stofu, en þar sem
við vorum nýbúnir að
þiggja góðgerðir á „syðri
bænum“, en orðið áliðið
kvölds, þá vildi faðir minn
ekki dvelja, og kvöddum við
þau mæðgin, en Pálmi bað
okkur að bíða sín á meðan
hann skryppi inn í bæinn.
Þegar hann kom aftur
kvaðst hann ætla að fylgja
oklcur úr hlaði. Héldum við
nú af stað, og Pálmi með
oldcur. Fóru þeir þá, karl-
arnir, að spjalla um lands-
ins gagn og nauðsynjar og
virtist koma vel ásamt. Eg
botnaði ckkert í því og þagði
en trítlaði með þeim. Pálmi
var greindur vel, en dulur
og hæglátur og ramur að afli.
Ekki vissu þeir fyrr af en
þeir voru komnir út fyrir
neðan Egg í Hegranesi og
sáu þar ljós í glugga. Ilöfð-
um við gengið eftir ísum
Héraðsvatna alla leið, og
voru nú ekki nema tvær
stuttar bæjarleiðir að Hró-
arsdal. Þarna stönzuðu þeir
og röbbuðu um stund. Svo
tók Pálmi blaðastranga úr
barmi sinum og sagði: „Eg
ætla að lána þér þetta til að
lesa, Jónas minn.“ „Hvað er
nú það?“ sagði faðir minn.
„Það er Þjóðviljinn lians
Skúla,“ sagði Pálmi. Síðan
hvarf Pálmi til föður míns
og kvaddi hann. Hélt svo
hvor til síns heima. Við
feðgar löbbuðum svo Vatna-
bakkana að Hróarsdal. Við
náðum háttum heima og
varð eg feginn að geta liáttað
og sofnaði, því eg var þreytt-
ur af ferðinni.
Eg liafði frá mörgu að
segja systlcinum mínum, dag-
inn eftir, úr þessari ferð og
voru það mér síðar ljúfar
endurminningar.
\
Framh. af 3. síðu.
Jesús oss fylgi um jarðarleið,
Jesús vor geymi í lífi og deyð!
Meðan í raunum heimsins
hjörum,
herra, lát þú oss lifa þér,
svo að deyjandi fúsir förum,
í faðm Abrahams, blessaðir,
og megum skína svo sem sól,
sjálfs þíns hátignar fyrir stól!
Þar er eilífur yndishagur,
ununarvegsemd, gleði, hrós,
blessunarfagur dýrðardagur,
dásenidarfegurð, sæla, ljós,
afþurrkuð tárin enduð pín,
illviðrin burt en sólin skin.
Kom herra Jesú! tak oss tvista,
til þín, nær sem þér þykir mál,
svo að vér megum glaðir gista.
guðshúsi í, og dýrðarskál
drekka í ríki þínu þar,
þá um eilífðar-aldirnar.
Úti er nú þessi saminn sálmur,
sem sem hann læri missi kýfs,
vil eg hann heiti Veðrahjálmur,.
verði hann svo að gleöi lífs,
i sumargjöf hann sendur er,
sóknarbörnunum mínum hér.
Lofi þig drottinn haf og heimur,
himinn, loft, tunglið, stjörnur,
sól,
fjöllin, sléttlendi, grundir,
geimur,
grösin, steinar, og vindahjól,
dýrin, fuglar og fiskarnir,
friðir englar og mennirnir!
Vélaverkstæði
Sig. Sveinbjörnsson h.f.
Skúlatúni 6 — Sími 5753.
Smíðum alls konar varahluti fyrir
’ ' - V
Jaröýiur
\rlsh óflur
Skurðgröfur
Drátturrelur
Gerum upp benzín og dieselmótora. %
J Höfum varahluti fyrir New England togvindur,
• _ og tökum að oss viðgerðir á þeim.
• Á'? Framleiðum botnvörpurúllur af öllum stærðum
• .' ' fyrir togbáta.
• ... *
• . Framleiðum vélar, hitara og gufukatla fyrir
« 't’-),'/., •" saltfiskþurrkhús.
« . " ; j?-1 *
■; " öll vinna framkvœmd með fullkomnustu vélum.
*
*
A myndinni sést Clement R. Attlee, fyrrv. forstætisráðherra.
Breta, fyrir utan kjörstað í kosningunum síðustu, ásamt.
f jölskyldu sinni.
Ávallt fyrirliggjandi
smekklegt úrval af:
Ljósakrónum
Borðlöntpnin
Vegglömpuni
Verzlið þar sem úrvalið er mest.
Mtaforka
Vesturgötu 2 — Sími 80946.