Morgunblaðið - 07.09.1965, Page 1
32 Slfltl: 3 T
52. árgangur.
202. tbl. — Þriðjudagur 7. september 1965
Preritsmiðja Moigunblaðsins.
Styrjöld milli Indlands og Pakistan
Indverjar sækja fram í átt til Lahore
Nýju Delhi, Karachi og New York, 6. sept. — NTB-AP
t STYRJÖLD geisaði af fullum krafti í gær, mánudag,
á miNi Indlands og Pakistans. Höfðu hernaðarátök
jiau, sem átt höfðu sér stað í Kashmír undanfarna daga,
breiðzt út og Indverjar hafið stórsókn inn í Pakistan alllangt
fyrir sunnan Kashmír. Beindu þeir sókn sinni einkum gegn
horginni Lahore, annarri stærstu borg Pakistans og sóttu
fram á um 80 km breiðu belti.
» Hvorugur aðili hafði hins vegar lýst yfir styrjöld á
hendur hinum, en Shastri, forsætisráðherra Indlands,
hafði skýrt þjóð sinni (480 millj.) frá því, að hún ætti í
algjörri styrjöld, og Ayub Khan, forseti Pakistans, hafði
skorað á þjóð sína (110 millj.), „að ganga fram og leggja til
atlögu við f jandmennina“.
Skvndifundur var kallaður og orrustuþotum. Kom þetta
, . , ii . hð fra þremur herstoðvum '
laman siðdegis i Oryggisraði
Sameinuðu þjóðanna til þess
að ræða hina alvarlegu at-
burði. Var talið hugsanlegt,
að U Thant, framkvæmda-
atjóri Sameinuðu þjóðanna,
færi til Kashmír ásamt full-
trúum frá Bandaríkjunum og
Sovétríkjunum og gerði til-
raun til þess að fá hina stríð-
andi aðila til þess að hætta
hernaðarátökum.
í London lýsti sendifulltrúi
frá Pakistan því yfir, að fleiri
ríki í Asíu hlytu að dragast
inn í átökin og sagði, að vel
gæti svo farið, að land hans
myndi skírskota til Suðaust-
ur-Asíu bandalagsins (SE-
ATO) og skora á þau, að veita
sér liðstyrk.
\
Öflug sókn Indverja
Sókn Indverja inn í Pakistan
hófst snemma um morguninn.
Sóttu þeir fram á þremur stöðum
og beittu skriðdrekum, fótgöngu
Punjabhéraði, sem eru í grennd
við borgirnar Ferozepiore, Amr-
itzar og Thankot. Var haft eftir
einni heimild, að í hverri hinna
þriggja fylkinga myndu vera eitt
til tvö herfylki. Var þetta talinn
vera mjög mikill herafli með til-
liti til þess, að einungis 10 af 20
herfylkjum Indverja munu vera
til staðar til þess að unnt sé að
beita þeim í Punjab. Hin her-
fylkin 10 eru bundin við landa-
mæri Kína og að einhverju leyti
við gæzlu innanlands.
Mikil leynd hvíldi yfir hern-
aðaraðgerðum Indverja og veir
ekkert sagt um markmið þeirra
í Nýju-Delhi. höfuðborg Ind-
lands. Talið var hins vegar víst,
að sókninni væri beint gegn
borginni Lahore, næst stærstu
borginni í Pakistan, sem hefur
meira en eina millj. íbúa og er
aðeins rúmlega 30 km frá landa-
mærunum. Haft var eftir óstað-
festum heimildum, að harðir
bardagar geisuðu við mikilvæg-
an flugvöll um 19 km fyrir innan
landamærin en aðeins um 13 km
frá borginni.
Önnur sóknarlota var sögð
beinast í norðvestur í áttina til
Sialkot og Gujrat, en það eru
tvær borgir, sem verið hafa
bækistöðvar fyrir þá heri Pak-
istans, sem fyrir fáeinum dög-
um réðust langt inn í indverska
hlutann í Kasmír í Chamb hér-
aði fyrir norðan hinar nýju víg-
stöðvar.
Indverjar ánægðir
með árangur
Ekki var skýrt frá neinu öðru
í Nýju Delhi varðandi árás Ind-
verja en talsmaður stjórnarvald
anna gaf í skyn, að æðsta her-
ráð landsins áliti, að þegar hefði
náðst nokkur árangur. Hermenn
og skriðdrekar Pakistans voru
sagðir vera að draga sig til baka
frá Chambhéraði og indverskar
herdeildir sæktu þar fram. Ind-
verski flugherinn hélt því fram,
að gerðar hefðu verið vel heppn
aðar loftárásir á hernaðarlega
mikilvæga staði á Sialkot svæð-
inu og hefðu tvær járnbrautar
lestir verið eyðilagðar þar m.a,
Svo virðist, sem indverskar
þotur hefðu það verkefni að
ryðja herdeildum leið og einnig
að slíta samgöngur, með því að
eyðileggja vegi og járnbrautir,
sem Pakistanmenn kynnu að
nota til þess að senda hergögn
og varalið í skyndi suður til
svæðisins við Lahore-Amritsar.
Hvorugur hernaðaraðila hafði
aðhafzt neitt í þá átt að lýsa
formlega yfir styrjöld og í Nýju
Delhi var meira að segja lögð á
það áherzla, að þrátt fyrir það
að fullkomin styrjöld væri að
skelia á þá ríkti ekki hemaðar-
ástand í strangasta skilningi
alþjóðalaga.
I Nýju Delhi var frá því skýrt
að árásin hefði aðeins verið gerð
vegna þess, að frétzt hefði um
um yfirvofandi árás Pakistans
rétt hjá Amritsar, hinni helgu
borg Sikhtrúarbragðanna í Pun-
jabhéraði og hefðu Indverjar
því orðið að verða fyrri til og
gera árás í því skyni að verja
landsvæði r
22 flugvélar Indverja
skoinar niður
Af hálfu hernaðaryfirvalda
Pakistans var frá því skýrt, að
skotnar hefðu verið niður 22 or-
ustuflugvélar Indverja en sjálfir
hefðu Pakistanar misst tvær vél-
Pramhald á bls. 2
Lambarene, Gabon, 5. sept — AP: — Frá útför Dr. Albets Schweitzer. Kista hans stendur
fyrir framan íbúðarhús hans í sjúkrastöðinni í Lambarene.
Albert Schweitzer skrifaði eftir nlræðisafmælið:
Þakklátur íslendingum fyrir fisksendingar
Hinn mikli mannvinur lézt á sunnudag
Nýleg mynd af
Albert Schweitzer
MANNVINURINN, heimspek-
ingurinn orgelleikarinn og
læknirinn Albert Schweitzer
lézt aðfaranótt sunnudags í
Lambaréné, níræður að aldri.
1 Lambaréné hafði hann lifað
lengst af ævinnar og unnið að
mannúðarstörfum sínum með
árangri, sem allur heimurinn
þekkir. Johnson, Bandarikja-
forseti sagði um hann látinn:
„Svo sannarlega hefur allur
heimurinn séð á bak mikil-
menni“. Og Moskvuútvarpið
sagði: „Heimurinn varð harmi
sleginn þegar hann frétti um
dauða þessa frábæra læknis,
vísindamanns og Nóbelsverð-
launahafa .... Hann var
ákafur baráttumaður fyrir
friði“.
Albert Schweitzer var jarð-
aður á sunnudag skammt frá
sjúkrahúsi sínu í Lambaréné.
Útför hans var einföld og lát-
laus, og þannig í samræmi við
lif hans og störf. Hann lézt í
bjálkakofa áföstum við sjúkra
hús sitt. Banamein hans var
hjartaslag.
Albert Schweitzer var Is-
lendingum að góðu kunnur.
Hann átti i bréfaskiptum við
nokkra menn hér á landi, og
var þakklátur þeirri aðstoð
sem honum barst héðan. 1
bréfi til Páls Isólfssonar, sem
hann skrifaði skömmu eftir
níræðis afmæli sitt (dags. 14.
júlí sl.), í tilefni af heillaóska-
skeyti frá Félagi islenzkra
orgelleikara, segir hann að
Island hafi veitt honum mikla
hjálp með skreiðarsendingum.
Þetta merka bréf Schweitzers
fer hér á eftir í þýðingu:
Kæru bræður við orgelið.
Ég þakka yður hjartanlega
fyrír hamingjuóskir á 90 ára
afmæli minu. Þann dag var
ég við góða heilsu og er glað-
ur yfir þvi, að ég skuli enn á
mínum aldri geta unnið.
Sjúkrahúsið er orðið stærra
en ég hafði gert ráð fyrir. 1
upphafi voru þar 50 rúm. Með
árunum hefur spítalinn vaxið
í það að hafa 560 rúm.
Við erum nú sex læknar og
16 hjúkrunarkonur.
Ég sendi yður mynd af spít- .
alanum. Hann er í miðbaugs-
héruðum Afríku á bakka
hinnar miklu ár Ogowe. Spít-
alahúsin 40 standa í skuggum
pálmatrjáa, en það er mikill
kostur hér við miðbaug, þar
sem sólin skín stundum of
heitt.
Mér þykir leiðinlegt að ég
hef ekkert orgel hér, en mað-
ur verður að læra að lifa án
þess.
Með þvi að senda mér
Framhald á bls. 8