Morgunblaðið - 07.09.1965, Side 16
16
MOkCUNBLADIÐ
Þriðjudagur 7. sept. 1965
Útgefandi:
Framkvæmdastjóri:
Ritstjórar:
Ritstjórnarfulltrúi:
Auglýsingar:
Ritstjórn:
Auglýsingar og afgreiðsla:
Áskriftargjald kr. 90.00
I lausasölu kr.
Hf. Árvakur, Reykjavík.
Sigfús Jónsson.
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Þorbjörn Guðmundsson.
Árni Garðar Kristinsson.
Aðalstræti 6.
Aðalstræti 6. Sími 22480.
á mánuði innanlands.
5.00 eintakið.
ALBERT SCHWEITZER
Átti að f reisa Stig
Wennerström ?
Stokkihólmi í september
— NTB.
FANGI, sem nýbúið er að láta
lausan úr Lyngholmenfang-
elsinu í Stokkhólmi, hefur
skýrt frá því að í bígerð hafi
verið ótrúleg ráðagerð um
að hjálpa Stig Wennerström,
sænska stórnjósnaranum, sem
nú afplánar lífstíðardóm í
þessu fangelsi, að flýja.
Sagan segir að 37 áira gamall
af brotamaður sænskur hafi
fyrir nökkru hatft samband
við sovézka sendiráðið í Stokik
'hólmi og boðizt til að frelsa
Wennerström fyrir 100.000
sænskar krónuir. Hann lagði
fram náfcvæma áætlun um
þetta og fól hún m.a. í sér að
sovézkur kafbátur ætti að tafca
hinn flýjandi njósnara um
borð rétt fyrir utan höfnina í
Stakfchólmi, en sovézka senidl-
ráðið h-afði engan áhuga á
mólinu.
Það var MláHmieyjarblaðiið
Arbetet, sem fyrst sænskra
blaða greindi frá þessu. Á
vinur sámsærismannisins, sem
nýlfcominn var úr Bynghoilm-
fangielsinu, að hafa skýrt blaða
manni frá áætlun þessari.
Frelsun Wennerströms átti
samkvæmt henni að fara
fram 29. ágúst s.l., tveknur
dögum áður en bann varð 59
ára. Kveikja átti eld á tveim-
ur stöðum í vinnusölum fang-
anna til þess að draga að sér
athygli fangavarðanna. Síðan
átti að sprengja gait á fang-
elsisvegginn, og Wennerström
átti síðan að komast á brott í
bíil. Síðar átti hann að skipta
um bíl og íklæðast borgara-
legum tatum. Þá lá leiðin í
hraðbát út úr Stokifchólms-
höfn, en þar átti Wenmarström
að fara um borð í sovézkan
kafbát.
Wennerström var í fyrra
dæmdur í ævilangt fangelsi
fyrir að hafa stumdað mitolar
Stig Wennerstronr.
njósnir fyrir Sovétríkin. Hann
er undir mijög strangri gæzlu
í fangelsinu í sérstaklega
byggðum klefa. Eina stari
hans er að líma saman um-
slög. Heyrzt hefur að Wenner-
ströin sé niðurbrotinn maður,
og í þann veginn að verða að
andlegu og líkamlegu flaki.
Hrottalegar aðfarir Vietcong
aðinu. Einn fanganna hefði verið I anatré. Munu tvö þeirra þriggja
tekinn af lífi á skurðbakka I líka, sem greint er frá hér fyrst
nokkrum, annar á bak við ’ ban- J að framan, vera af þéim.
Iskyggiieg aukninj
tíauísfalia af völd-
um lungnakrabba
Albert Schweitzer er látinn.
Hann andaðist síðastlið-
inn sunnudag í Afríku, þar
sem hann hefur helgað líf sitt
hjúkrun sjúkra og þjáðra.
í>að starf, sem Albert
Schweitzer vann í frumskóg-
um Afríku í hálfa öld, mundi
nægja til þess að halda nafni
hans á lofti svo lengi, sem
saga mannsins verður skráð.
í Lambarene hóf Albert
Schweitzer fyrst líknarstarf
sitt árið 1913 og dvaldist þar
fyrst til 1917, síðan ósiltið frá
1924. Þar vann hann göfugt
og óeigingjarnt starf við að
sjúkra blökkumönnum, sem
hvorki höfðu til þess mennt-
un eða þekkingu að hjálpa sér
sjálfir.
Albert Schweitzer var fjöl-
hæfur maður; hann var þekkt
ur sem læknir og guðfræð-
ingur, heimspekingur og frá-
bær tónlistarmaður. Hann
varð einn frægasti organleik-
ari heims og með hljómleika-
ferðum og fyrirlestraferðum
víðs vegar um heim aflaði
hann fjár til líknarstarfs síns
í Lambarene.
Árið 1952 var Albert
Schweitzer sæmdur friðar-
verðlaunum Nóbels, en hann
var jafnan mikill baráttu-
maður fyrir friði í þessari
veröld og barðist meðal ann-
ars mjög eindregið gegn til-
raunum með kjarnorkuvopn.
Með láti Alberts Schweitz-
ers er genginn einn merkasti
maður þessarar aldar, sem í
kyrrð og fjarri skarkala
héimsins vann göfugt starf.
Hans verður minnzt um heim
allan en þó alveg sérstaklega
meðal svarta fólksins í Af-
ríku, sem átti honum svo mik
ið að þakka.
KASHMÍR
Á standið í Kashmír verður æ
ískyggilegra með hverj-
um deginum sem líður og
hættan á algjörri styrjöld
milli Indlands og Pakistan
magnast stöðugt.
Deilan um Kashr ' "'fur
staðið frá 1947 c 'iefur
reynzt óleysanleg, þrátt fyrir
ítrekaðar tilraunir mætustu
manna til þess. Afstaða
beggja þjóðanna er ósveigjan-
leg og jafnvel þótt forustu-
menn þeirra vildu ef til vill
stíga einhver spor í samkomu
lagsátt, eiga þeir báðir við
að etja sterk öfl, sem ekki
mega heyra slíkt nefnt. Jafn-
vel Nehru treysti sér ekki
til þess að höggva hnútinn
í Kashmír.
En það er eitt ^"ra brýn-
asta verkefni á vettvangi al-
þjóðastjórnmála nú að stöðva
þau átök, sem fara rn milli
Indlands og Pakistan í Kash-
mír. Fyrr en varir geta þau
átök blossað upp í algjöra
styrjöld og sú styrjöld mun
verða óvægin og hörð og ó-
mögulegt að útiloka þann
möguleika, að fleiri aðilar í
Asíu mundu dragast inn í
hana. Ástandið í Asíu er nógu
slæmt með styrjöldinni í Víet
nam og ástandi mála í Mal-
aysíu, svo að ekki blossi -einn-
ig upp úr í Kashmír milli
Indverja og Pakistana.
Indverjar hafa verið í for-
ustu hinna svonefndu hlut-
lausu þjóða heims, sem á und
anförnum áratugum hafa
hvatt til friðsamlegrar lausn-
ar deilumálanna. Þess vegna
hefur mörgum komið spánskt
fyrir sjónir óvægileg afstaða
Indverja í Kashmír og her-
taka þeirra á Góu fyrir nokkr
um árum. Svo virðist, sem
Pakistanar hafi átt upptökin
að þeim átökum, sem nú
standa yfir í Kashmír, en
hver svo sem sökina á hverju
sinni, sem alltaf er umdeilt,
er þó alveg ljóst, að Indverj-
ar og Pakistanar verða að
skilja að frekari hernaðar-
átök þeirra á milli geta fyrr
en varir haft hinar alvarleg-
ustu afleiðingar fyrir friðinn
í þessum heimshluta og þess
vegna ber þeim að hlíta milli-
göngu Sameinuðu þjóðanna í
þessu máli.
Báðir aðilar eru skuld-
bundnir til þess með sam-
komulagi, sem gert var 1960
að leggja deilur um landa-
mæri í sátt og enginn aðili
virðist betur til þess fallinn
að ganga á milli í þessari
deilu en Sameinuðu þjóðirn-
ar og U Thant aðalfram-
kvæmdastjóri þeirra. Þess
vegna hljóta allir að vona, að
tilraunir U Thant til þess að
stöðva frekari hernaðarátök í
Kashmír beri jákvæðan á-
rangur og vonandi taka ábyrg
ari öfl í þessum löndum í
taumana, svo að verra hljót-
ist ekki af en orðið er.
BRUNINN AÐ
SETBERGI
Cíðastliðinn laugardag gerð-
^ ist sá atburður að bruni
kom upp í fjósi og hlöðu við
bæinn Setberg, sem er á
mörkum Hafnarfjarðar og
Garðahrepps. Erfiðlega gekk
að slökkva eldinn og var
slökkvilið Reykjavíkur kvatt
á staðinn til þess að aðstoða
slökkvilið Hafnarfjarðar, sem
þar var komið.
Komið er í ljós að slökkvi-
lið Hafnarfjarðar taldi sér
ekki fært að senda fullkomn-
asta bíl sinn á hrunastaðinn
Truc Giang, 6. sept. — AP
FUNDIZT hafa lík þriggja her-
manna S-Víetnam við Mekong-
fljótið. Höfðu þeir verið bundnir,
bundið fyrir augu þeirra og síðan
verið skotnir gegnum munninn.
Þykir þetta sýna vaxandi til-
hneigingu hjá Víetcong kommún-
istum til þess að skjóta fanga,
þegar þeir eiga í vök að verjast
fyrir stjórnarhernum.
Þá fundust í síðustu viku lík
ellefu hálshögginna stjórnarher-
manna. Þrír aðrir hermenn fund-
ust með mikil meiðsli á höfði, en
þeir voru enn lifandi. Skýrðu
þeir frá því síðar, að skæruliðar
Víetcong hefðu byrjað að taka af
lífi hóp stríðsfanga, sem þeir
voru í, er þyrlur hefðu tekið að
flytja stjórnarhermenn inn á
svæðið, sem þeir voru á, til hern-
aðaraðgerða.
Sömu sögu höfðu tveir aðrir
hermenn S-Víetnams að segja, en
þeir fundust hlekkjaðir en ó-
meiddir. Þeir sögðust hafa verið
teknir til fanga fyrir hálfum mán
uði, en Víetcongmenn hefðu byrj-
að að skjóta fanga úr hópnum,
sem þeir voru í, snemma á mánu-
dagsmorgun, er þeir fréttu um
yfirvofandi hernaðaraðgerðir
stjórnarinnar í Truc Giáng hér-
og af þeim sökum gekk mun
erfiðlegar en ella að slökkva
eldinn, sem upp kom að Set-
bergi. Ummæli slökkviliðs-
stjórans í Hafnarfirði í út-
varpinu síðastliðið laugardags
kvöld um þetta mál benda til
þess, að hann telji sig hafa
gert skyldu sína með því að
senda tvo gamla bíla frá
slökkviliði sínu að Setbergi,
en nauðsynlegt hafi verið
vegna öryggis Hafnarfjarðar
að skilja fullkomnasta bílinn
I eftir þar.
Genf, G. sept. — NTB
Alþjóða-heilbrigðismálastofnunin
(WHO) skýrði frá því í dag, að
ískyggileg aukning dauðsfalla af
völdum lungnakrabba hefði átt
sér stað í Evrópu og Norður-
Ameríku á tíu árum eða frá
1952—1962.
Segir í þessari frétt, að þær
upplýsingar, sem fyrir hendi
eru, bendi til þess, að sígarettu-
reykingar séu alvarlegri sjúk-
dómsvaldur að þessu leyti, en ó-
Jafnvel þótt einhver ágrein
ingur sé milli Hafnarfjarðar
og Garðahrepps um það,
hvernig brunavörnum skuli
komið fyrir í Garðahreppi, er
afstaða slökkviliðsstjórans í
Hafnarfirði illskiljanleg. Þeg
ar alvarlegur bruni kemur
upp eins og að Setbergi, setn
liggur alveg við Hafnarfjörð,
er fráleitt að binda sig við
meira eða minna óljósar regl-
ur, heldur á að leggja allt
kapp á að slökkva eldinn,
þar sem hann er upp kominn.
hreinkun í loftinu, sem sumir
hafa haldið fram.
í mörgum Evrópulöndum hef-
ur dánartalan af völdum lungna-
krabba meira en tvöfaldazt á
þessum tíu árum, sem rannsóknin
náði til. í Kanada var aukningin
55% og í Bandaríkjunum 60%.
Dánartalan var hæst á meðal
karlmanna í Vestur-Berlín. Þar
var tala dauðsfalla af völdum
lungnakrabba 111 af hverjum
Framh. á bls. 23
Slökkviliðsstjórinn í Hafn-
arfirði virðist hins vegar ekki
telja að svo sé og ber að
harma það. Hins vegar er
ljóst, að ekki verður þolað að
slíkir atburðir endurtaki sig
aftur, að ekki sé gert allt sem
hægt er til þess að slökkva
eld þar sem hann kemur upp
og væntanlega sjá rétt yfir-
völd í Hafnarfirði og Garða-
hreppi til þess, að svo alvar-
legir atburðir komi ekki fyr-
ir í framtíðinni.