Morgunblaðið - 07.09.1965, Side 22
22
Þriðjudagur 7. sept. 1965
MORGUNBLAÐIÐ
SVANLAUG SIGURBJÓRNSDÓTTIR
andaðisf 3. september síðastliðinn.
Aðstandendur.
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
GUÐRÚN Á. ÞORKELSDÓTTIR
Ásvallagötu 53,
lézt á Landakotsspítala 5. september sl.
Börn, tengdaböm
og barnabörn.
Móðir okkar,
HERDÍS JÓNSDÓTTIR
frá Þverhamri, Breiðdal,
lézt á Borgarsjúkrahúsinu 5. september sl.
Þórdís Árnadóttir,
Guðmundur Ámason.
Hjartkær eiginmaður minn og faðir,
JÓN JÓHANNESSON
bræðslumaður, Hringbraut 115,
andaðist á sjúkrahúsi Hvítabandsins' 5. september sL
Elínborg Guðmundsdóttir,
Snædís Jónsdóttir.
Elísabet Guðmunds-
dóttir frá Melum
MEÐVTKUDAGINN 1. sept.
andaðist hér í borg frú Elísa-
bet Guðmundsdóttii frá Melum
í Ámeshreppi í Strandasýslu og
fer útför hennar fram í dag írá
Dómkirkjunni.
Með Elísabetu er gengin ein
af hinum sterku og góðu hús-
freyjum, sem komið hafa upp
og vel til manns stórum bama-
hóp gegnum fátækt og margvís-
lega örðugleika.
Hún var fædd 31. des. 1878 í
Ófeigsfirði á Ströndum dóttir
Guðmundar Péturssonar bónda
þar og fyrri konu hans Elisabet-
ar Þorkelsdóttur Guðmundsson-
ar frá Bæ í Trékyllisvík. Guð-
mundur í Ófeigsfirði var þekkt-
ur dugnaðar og framtaksmaður
til sjós og lands. Elísabet ólst
ui>p í föðurgarði. Giftist hún
þaðan 5. okt. 1898, Guðmundi
Guðmundssyni, frænda sínum
frá Melum í Trékyllisvík. Átti
hún þar heima upp frá því. Guð-
mundur bóndi á Melum var til-
tekinn hæfileikamaður, greindur
var hann og minnugur, skrifari
ágætur og reikningsglöggur, svo
sem verið hafði faðir hans —
en af hugarreiknings gáfu hans
eru margar sögur. Afburða ræð-
ari var Guðmundur, sneri eng-
inn á hann þótt sterkari væri.
Hann vann allt með lagi. Hann
var og fríður maður sýnum.
Samt þótti ýmsum merkilegt að
hann skyldi ná í heimasætuna í
Ófeigsfirði. Melar voru miklu
rýrai jörð en Ófeigsfjörður. Þau
hjón eignuðust 12 böm og eru
þau öll á lífi og fylgja móður
sinni hinzta spölinn í dag. Þau
eru þessi: Guðmundur Pétur nú-
verandi bóndi á Melum, kvænt-
ur Ragnheiði Jónsdóttur frá
Broddadalsá; Árni, er lengi var
útvegsmaður og skipstjóri við
Djúp en nú búsettur hér , Rvk
Ástkær eiginkona mín,
UNNUR ÓLAFSDÓTTIR
lézt á Landsspítalanum aðfaranótt mánudagsins 6. þ.m.
Fyrir hönd barna okkar, tengdabarna og barnabarna.
Jóhann Karlsson.
Elsku litla dóttir okkar,
REGÍNA BÁRA
andaðist á Ríkisspítalanum í Kaupmannahöfn 30. ágúst
síðastliðinn. — Jarðarförin hefur farið fram.
Regína Aðalsteinsdóttir,
Þórður Kajrtansson,
Stóragerði 26.
Eiginmaður minn,
SIGURÐUR KRISTJÁNSSON
vélstjóri, Hamarsbraut 11, Hafnarfirði,
lézt að Landsspítalanum 6. þessa mánaðar.
Valgerður ívarsdóttir.
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ELÍSABET GUÐMUNDSDÓTTIR
frá Melum, Ámeshreppi,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 7.
september kl. 10,30 f.h. — Athöfninni verður útvarpað.
Blóm afþökkuð, en þeim, sem vildu minnast hinnar
látnu er bent á að láta líknarstofnanir njóta þess.
Böm, barnaböm og tengdaböm.
Eiginkona, móðir og amma,
JENNY HANSEN
Njarðargötu 9,
verður jarðsungin miðvikudaginn 8. sept kl. 1,30 e.h.
frá Dómkirkjunni. — Blóm vinsamlega aíþökkuð.
William Hansen,
Janet,
Arnfinn.
STEINUNN JÓHANNESDÓTTIR
Hofsvallagötu 18,
sem lézt 31. ágúst sl., verður jarðsungin frá Neskirkju
miðvikudaginn 8. september kl. 13,30 e.h. — Blóm vin-
samlega afþökkuð, en þeim, sem vildu minnast hinnar
látnu er bent á líknarstofnanir.
Hannes Benediktsson, böm,
tengdaböra og barnaböm.
Fóstursonur okkar,
BJARNÞÓR AÐALSTEIN SSON
Hólagötu 39, Ytri-Njarðvík,
sem andaðist 31. ágúst, verður jarðsunginn frá Hall-
grímskirkju, miðvikudaginn 8. sept. kl. 10,30 f.h. —
Athöfninni í kirkjunni verður útvarpað.
Oddný Þorsteinsdóttir,
Sigvarður Benediktsson.
Hafnarfjörður
Til sölu 4ra herb. miðhæð á góðum útsýnisstað í
suður-bænum. — íbúðin er í mjög góðu ástandi
með nýjum teppum. — Rúmgóður bílskúr og
geymsla fylgir.
GUÐJÓN STEINGRÍMSSON, HRL.
Linnetsstíg 3. — HafnarfirðL
Sími 50960.
Kvöldsími sölumanns: 51066.
Hjartans þakkir færi ég skyldmennum mínum, sam-
starfsfólki og öðrum vinum fyrir góðar gjafir, kveðjur
og allan hlýhug á 70 ára afmæli mínu; einnig vinnu-
veitendum mínum fyrir veizlu, dýrmæta gjöf og alla
vinsemd fyrr og síðar. — Bið ykkur svo öllum bless-
unar Guðs.
Guðrún Andrésdóttir, Álafossi.
Lokað
eftir hádegi í dag, þriðjudag, vegna jarð-
arfarar
Gissurs Baldurssonar.
Steinavör hf.
Kristján Ó. Skagfjörð hf.
Faðir okkar og afi,
GISSUR BALDURSSON
Snorrabraut 40,
er lézt 31. ágúst sl. verður jarðsunginn frá Dómkirkj-
unni þriðjudaginn 7. september kl. 2,30 e.h.
Baldur Gissurarson,
Erla Gissurardóttir,
Gissur Gissurarson,
Þór Karlsson.
Litli drengurinn okkar,
ÞORVALDUR BJÖRN
andaðist í Landakotsspítalanum 26. ágúst sl. — Jarðar-
förin hefur farið fram.
Sigríður Þorvaldsdóttir,
Friðrik Eiríksson.
Jarðarför móður minnar,
ÖNNU SIGMUNDSDÓTTUR
Seyðisfirði,
fer fram frá Seyðisfjarðarkirkju fimmtudaginn 9. sept
kL 2 e.h. — Fyrir hönd vandamanna.
Jónas Jónsson.
kvæntur Margréti, norskri konu
að kyni; Elísabet — ekkja eftir
Guðmund Halldórsson skipa-
smið; Sigrún ekkja ftir Ingólí
Ketilsson húsasmið frá ísafirði;
Þorkell fyrrv. bóndi á Óspaks-
eyri, kvæntur Ástu Stefánsdótt-
ur frá Kleifum í Gilsfirði; Ragn
heiður Ijósmóðir hér í borg; Sig-
mundur fyrrv. bóndi á Melum
en nú búsettur á Akureyri,
kvæntur Sigrúnu Guðmundsdótt
ur frá Árnesi, Magnús sjóm. i
Rvík, kvæntur Þórdísi Árnadótt-
ur frá Breiðadalsvík; Ingólfur
húsasmíðameistari Rvík, kvænt-
ur Karítas Magnúsdóttur frá
Heinabergi í Dölum, Gunnlaug-
ur tollgæzlumaður í Hafnarfirði,
kvæntur Þórdísi Steinsdóttur;
Asgeir trésmiður í Rvík og Guð-
munda búðarstúlka í Rvík. Yfir
60 munu nú niðjar hennar.
1. okt. 1924 missti Elísabet
mann sinn. Gekk hún þá með
yngsta barnið, önnur þau yngri
enn í ómegð. Með frábærum
kjarki og dugnaði hélt hún búi
sínu saman. Var Guðmundur
elsti sonurinn sér í lagi stoð
hennar og stytta. Hann tók þá
við búsforráðum með henni og
voru þau saman á Melum með-
an bæði lifðu. Góðra daga naut
hún þar á efri árum hjá syni
og tengdadóttur. En á fyrri ár-
um meðan bömin voru að stálp-
ast, var lífsbaráttan þama býsna
hörð. Kom sér vel, að Elísabet
var ekki fisjað saman. Langur
var vinnudagurinn í þann tíð.
Gekk hún þá oft jafnt að úti
sem inni verkum. Jafnan var
hún á spretti, tilþrif hennar á
stundum stórkostleg.
Þrifnaður og dugnaður héldust
í hendur hjá henni. Og þótt all-
ir aðrir veiktust varð henni
aldrei misdægurt. Berklar kom-
ust inn á heimilið. Var naum-
ast neitt geigvænlegra til í þá
daga. En betur fór en á horfðist.
Allir komust af og til heilsu aft-
ur. Mun þetta næstum einsdæmi
gagnvart öðrum eins óvini. En
marga vökunóttina mun Elísabet
þá hafa átt.
Þegar ég kynntist Elísabetu
var hún af léttasta skeiði eða
um sextugt. Lítið var hún þá
farin að láta á sjá. Glæsileg og
mikil kona var hún í sjón og
raun. Léttstíg var hún þá enn,
og lét sér ekki muna að fara
bæjarleið á fæti. Sóttu ekki aðr-
ar konur betur kirkju í Árnesi
en hún. Og var svo alla hennar
tíð til hárar elli. Elísabet var
greindarkona, einbeitt og skap-
rík. Skemmtileg og ákveðin var
hún í tali. Meiningu sína sagði
hún við hvern sem var og var
ekki myrk í máli. Gestrisin var
hún og góð heim að sækja.
Tryggðatröll var hún þar sem
hún tók því. Hjá henni var eng-
in hálfvelgja hvorki í orðum né
gjörðum. Margar eru minning-
arnar sem maður á frá hennar
heimlili og barna hennar. Stór-
brotin kona var hún og sterk
að allri gerð og átti einnig til
hjartahlýju og blíðu, lík um
margt hinu svipmikla héraði, er
ól hana. Þar eru fjöll há og
brött og þar geta verið veður
hörð á vetrum, en á hinn bóg-
inn vor bjartari og blíðari en
víðast hvar annars staðar. Þá
hnígur sólin aldrei niður isæ.
Ég er þakklátur fyrir að hafa
átt því láni að fagna að kynn-
ast Elísabetu á Melum og hennar
fólki og hennar sveit. Megi Guðs
blessun vera yfir þessum öllum
saman.
" * Þorst Björnsson.