Morgunblaðið - 07.09.1965, Blaðsíða 28
23
MCZGUH2LADID
Þriðjudagur 7. sept. 1965
PATRICK QUENTIN:
GRUNSAMLEG ATVIK
Hún settist við fiskabúrið,
horfði. s óhreina vatnið og
sagði: — -Ég elska ykkur, gull-
fiskar! Síðan leit hún á mig
frá: hlið. — Ég hef ekki sagt
þetta nokkurri sálu, sagði hún.
— Ég hef staðið dyggilega við
blið húsmóður minnar. Ég er
svo yndislega vel innrætt. En
svo er ég því miður líka svo
mikil kjaftatífa, einhver sú
versta! Ég vissi, að ef ég tryði
ekki einhverjum fyrir þessu
tafarlatist, mundi það gjósa út
úr mér eins og tappi úr kampa-
vínsflösku, þegar verst gegnir
fyrir alla.
Hún stóð upp aftur og framdi
enn þessi ginnandi suður-amer-
ísku dansspor, sem áttu að setja
mig út úr jafnvæginu.
— Hananú! f>arna sérðu dans
hinriar miklu kjaftatífu, sem hef
ur : tekizt að létta á sér. Hún
hætti dansinum. — Nicholas!
— Nikkí, sagði ég.
— Ég ætla að kalla þig Nich-
olas. f>að er virðulegra. Nich-
olas, hvaðJeggurðu upp úr þessu
©llu saman?
Ég svaraði engu.
-— Athúgaðu, hver það var,
sem datt niður stigann og hver
það er, sem á að leika Ninon de
l’Enclos.
Ég varð snögglega ofsahraedd-
ur; — Þú ætlar þó ekki að fara
að segja neinum frá þessu, eða
hvað?
Sagði ég þér ekki nógu greini-
legá, að ég tilbið hana mömmu
þíná? Var það ekki hún, sem
bjargaði mér frá merarössunum
hjá MGM? Ég varðveiti auðvitað
leyndarmálið, þangað til ég dey.
En hvað finnst þér sjálfum um
þetta, Nicholas? ,
Þetta hefði allt verið svo
miklu betra, ef ég hefði ekki
verið allur gagntekinn af þess-
um gömlu rauðkollu-tilfinning-
um og svo þránni eftir Moniku
og allskonar „þreytandi“ hugs-
unum. Það eina sem mér fannst
ég nú geta gert, var að skríða
bak við ískaldasta virðuleikann,
sem ég átti til.
— Ég hef ekkert um þetta að
segja, sagði ég.
— Ó, Nicholas! Hún setti á sig
stút. Hvernig geturðu verið
svona leiðinlegur? Hugsaðu bara
um allt þetta dásamlega hræði-
lega, sem hefði getað orðið. Hugs
aðu.......
6
Til allrar heppni hringdi sím-
inn í þessu. Ég flýtti mér að
sleppa út í garðinn, en innan
um mig hömuðust þúsundir geðs
hræringa, eins og flugnager, en
ég gat heyrt sönglið í henni á
símann.
— Já, þér hafið saroband við
bústað ungfrú Anny Rood..........
4. kafli.
Þegar ég var að ganga gegn
um allt blómaskrúðið í garðin-
um, sá ég Hans frænda í sínum
venjulegu bláu fötum, sem sat
unöir garðsólhlíf og var að tefla
skák við sjálfan sig.
Svo vildi til, að hann leit upp
og kom auga á mig. Þar eð
Hans frændi var Svisslendingur,
var hann þeirrar skoðunar, að
Evrópumenn yrðu aldrei annað
en Evrópumenn, hvað svo sem
þá henti. Og þar sem það er
siður í Evrópu, að skyldir karl-
menn kyssist, þá kyssti ég hann
á Ijósrauðan blett, undir lista-
mannshárinu hvíta.
Hans frændi var raunverulega
föðurbróðir mömmu, og eina
skyldmennið, sem hafði bjarg-
azt út úr þessari rúmensk-búlg-
arsk-svissnesku þoku, sem fortíð
hennar var hulin. Hann hafði
verið heimsmeistari í jóðli á
yngri dögum, og hafði tekið
mömmu inn í þáttinn sinn, þeg-
ar hún átti sér engra kosta vöL
En eins og ekki var nema sjálf-
sagt, þá varð fólk brátt hund-
leitt á þessu jóðli, og því var
frægðarferli Hans frænda fljót-
lega lokið, og mamma, sem var
ræktarsemin uppmáluð, hafði
tekið hann með sér, þegar hún
fór fyrst vestur, til að leggja
Hollywood að fótum sér. Síðan
hafði hann unnið að því að rita
lengstu og ítarlegustu bÓK, sem
rituð hafði verið um sögu jóðl-
listarinnar, og svo tefldi hann
skák við sjálfan sig, og þetta
gerði hann dálítið utan við sig,
hvað allt annað snerti.
En annars þurfti hann alls
ekki að vera utan við sig því
að hann var greindastur okkar
allra, ef á átti að herða, en
hann varð að hafa áhuga á mál-
inu, ef heilinn átti að komast
almennilega í gang, og venju-
lega var hann alveg áhugalaus.
— Halló, Hans frændi! sagði
ég.
Hann svaraði með þessu fjar-
ræna en vingjarnlega brosi sínu:
— Halló, Nikki, svo að þú
ert kominn heim.
Nokkur hluti af mér hafði á-
kveðið að láta eins og hún
Lukka Schmidt væri ekki til, og
taka alls ekkert mark á henni,
en 'annar hlutinn af mér þráði
ekkert heitar en að sanna, að
hún hefði verið að ljúga. Mér
datt í hug að veiða upp úr Hans
frænda, en komst að þeirri nið-
urstöðu, að það yrði ekki annað
en tímaeyðslan. Betra að bíða
eftir Pam.
Pam Thornton, sem hafði ver-
ið flutt inn í landið nokkru síð-
ar en Hans frændi, hafði verið
bezta vinstúlka mömmu á jóðl-
árunum, og hún var með ein-
hvern hundaþátt, sem kallaður
var Pam and her Pals, eða Pam
et Ses Copains eða Pam und
Ihre Freunde, , eftir því í hvaða
landi var verið hverju sinni. En
Pam var líka dóttir brezks of-
ursta og brezkrar ofurstadætur
fá það lamið inn í höfuðið að
vera alltaf heiðarlegar gagn-
vart vinum sínum, hvað sem
veltist. Ef einhverju hræðilegu
þurfti að leyna, væri hún vís
til að gera sitt bezta til að leyna
því fyrir mér, en það mundi
bara ekki duga til, vegna þess,
að okkur þótti svo Cænt hvoru
um annað, og hehm mundi finn-
ast það óheiðarlegt að fara að
Ijúga neinu að mér.
En þá kom Pam stikandi gegn
um blóinskrúðið, og mér létti
stórum. Tray, þessi hræðilegi
hundur, sem hún hafði tekið,
bisaðist á eftir henni og drösl-
aði stórum böggli, eftir stein-
lagningunni á stígnum.
* Ég hljóp til hennar og kyssti
hana.
— Nikki!
Hún brosti blíðlega til mín, og
fornlegu gleraugun hennar sátu
ofurlítið skökk á nefinu á henni,
og hárið út í allar áttir. — Æ,
hvað það var indælt að fá þig
heim aftur. Tray er roeð jarðar-
farar fötin þín. Blessaður mát-
aðu þau strax. Það verður fullt
af sjónvarpsljósmyndurum við
kirkjudyrnar, og sú gamla yrði
alveg vitlaus ef sonur hennar
færi út um alla álfuna, eins og
kartöflupoki í laginu. Sem betur
fer, mundi ég eftir að hafa bux-
urnar fellingalausar.
Hún þreif í handlegginn á mér
og fór að draga mig kringum
sundpollinn, burt frá Hans
frænda, og þarna var kofi við
pollinn, einskonar eftirlíking af
negrakofa frá Afríku eða Haiti.
Tray staulaðist á eftir okkur
með böggulinn.
Pam hélt áfram að skrafa um
jarðarförina, en svo þagnaði
hún allt í einu og setti upp þenn
an svip, sem ég var vanur að
kalla með sjálfum mér „rann-
sóknarsvipinn", og sagði: — Hef
ur sú gamla sagt þér, að hún
eigi að leika Ninon?
THE KINKS — hma vinsælu unglingahljóm-
sveit TEMPÓ og hina óviðjafnanlegu BRAVÓ
bítla frá Akureyri.
Kynnir: ÓMAR RAGNARSSON.
ÖRFAIR MIÐAR ÓSELDIR AÐ SÍÐUSTU
HLJ ÓMLEIKUNUM.
ihe kinks - mn -
BRAVÓ bítlarnir frá Akureyri
Miðasoiaii í
Husturbæjarbíói
í dag flýzt miðasala
að hljómleikum
THE KINKS
í Austurbæjarbíó.
THE KINKS - BRAVO - TEMPÚ
*
Hin vinsæla unglingahljómsveit TEMPO