Morgunblaðið - 07.09.1965, Blaðsíða 31
triðjudagur 7. sept. 1965
MORCUNBLADIÐ
31
Ötboð vegna Börfels-
virkjunar í haust
Frá aðalfundi Samb. Isl. rafveitna
Aðalfundur Sambands ís-
lenzkra rafveitna var haldinn
í Reykjavík dagana 30. og 31.
ágúst 1965.
Á fundinum voru auk venju-
legra aðalfundarstarfa flutt er-
indi um rafveitu- og rafvæðing-
armál.
Eiríkur Briem, rafmagnsveitu-
stjóri, flutti erindi um Lands-
virkjun og skýrði frá aðdrag-
anda að stofnun hennar, tilgangi
og áætlunum um framkvæmdir.
Fram kom í erindinu, að útboð
vegna virkjunar við Búrfell
verði haldið nú í haust.
Þá flutti Eirikur Briem ann-
að erindi um fjárfestingarmál
virkjana og ræddi sérstaklega
lánamöguleika erlendis í því
sambandi.
Knútur Otterstedt, rafveitu-
stjóri, flutti erindi um orkuöfl-
unarleiðir fyrir Norður- og Aust
tirland. Gerði hann grein fyrir
kostnaðarathugun, sem sýnir, að
lægra orkuverð fæst á þessum
svæðum á næstu árum með
virkjunum heima í héraði held-
ur en með virkjun á einum stað
við Laxá fyrir allt svæðið, og
að samtenging þess í eitt orku-
veitusvæði með nýjum háspennu
línum eigi að koma á eftir virkj
unum í héraði.
Jakob Gíslason, raforkumála-
stjóri, flutti erindi um rafveitu-
mál og lýsti því, hvernig fram-
farir í rafveitumálum allra
þjóða eru nú að verulegu leyti
fólgnar í tengingu raforkuvera
og rafveitukerfa saman í stór
heildarkerfi. Tenging í heildar-
kerfi skapi möguleika til hag-
kvæmari nýtingar vatnsaflsins
en ella. Það væri því aðkallandi
verkefni hér á landi að tengja
hin helztu rafveitusvæði, sem nú
eru aðskilin, saman í stærri
veitukerfi, sem hyti hagkvæmr-
ar orkuöflunar frá stórvirkjun-
um.
Á fundinum voru gerðar sam-
þykktir um gjaldskrármál og
eftirlitsmál.
Stjórn sambandsins skipa nú
Jakob Guðjohnsen, formaður,
Guðjón Guðmundsson, varaform
aður, Baldur Steingrimsson,
gjaldkeri, Anton Björnsson og
Kári Þórðarson, meðstjórendur.
Meðal gesta á fundinum var
framkvæmdastjóri finnska raf-
veitnasambandsins Tauno Berg-
holm. Fundinn sátu fulltrúar 22
rafveitna eða virkjana auk gesta
og aukafélaga, en nú eru 25 raf-
veitur og virkjanir aðilar að
sambandinu.
Gjnfir til GiSs-
babkakirkju
EFTIR messu í Gilsbakka-
kirkju annan jóladag 1964 af-
henti sóknarpresturinn, séra
Einar Guðnason, kirkjunni veg-
lega gjöf frá börnum séra Ein-
ars Pálssonar og frú Jóhönnu
Briem til minningar um foreldra
þeirra.
Séra Einar Pálsson var sókn-
arprestur Gilsbakkakirkju frá
1918 til 1930, og voru þau hjón
mikils virt af öllum sóknarbörn-
um fyrir framúrskarandi dreng-
skap og prúðmennsku í allri
kynningu. Gripir þessir eru 2
kertastjakar úr kopar og blóma-
vasi, hinir vönduðustu og feg-
urstu gripir. Auk þess, sem grip-
ir þessir eru mikil kirkjuprýði,
munu þeir sífellt minna söfnuð-
inn á hin ástsælu prestshjón og
geyma minningu þeirra meðal
safnaðarins.
Á s.l. hausti, er kirkjan var
raflýst, gáfu konur safnaðarins
kirkjunni 6 mjög vandaða vegg-
lampa, hina beztu og fegurstu
gripi.
Fyrir allar þessar gjafir og
þann góðvilja og vinarhug, er að
baki felst, vill sóknarnefndin f.
h. safnaðarins færa gefendum
sínar innilegustu þakkir með
ósk um, að guð launi gefendum
stórhug þeirra og velvilja í
kirkjunnar garð.
Sóknarnefndin.
Féll af fjórðu
hæð, en slas
aðist lítið
SÁ atburður gerðist hér í Reykja
vík síðdegis á sunnudag, að mað-
ur féll um tólf metra faill niður
af fjórðu hæð húss og slapp án
•verulegra meiðsla. Hann var
fluttur í Slysavarðstofuna og
og þaðan heim til sín, þar sem
í ljós kom, áð hann hafði ein-
ungis rifbeinsbrotnað.
Skömmu eftir hádegi voru
þrír menn að leggja vinnupall
milli tveggja svala á fjórðu hæð-
húss nokkurs í Reykjavík. Von
var á mönnum til að skipta um
gler í glugga, og var ætlunin að
hafa vinnupallinn reiðubúinn til
«uð þeir gætu komizt að glugg-
anum og verki'ð gengið vel. Pal'l-
inn átti að festa á báðar sval-
irnar með boltum. Áður en
nægilega tryggilega hafði verið
írá öMu gengið, fór einn mann-
«mna þriggja út á vinnupallinn.
Skipti það engum togum, að
pallurinn spor’ðreistist undan
þunga mannsins með þeim af-
leiðingum, að hann féll um tólf
metra falll til jarðar. Leniti þar
á mjúkum grasverði.
Þegar eftir slysið kom sjúkra-
bifreið, sem flutti manninn í
Slysavarðstofuna. Við rannsókn
þar kom í ljós, að meiðsli hans
voru ekiki önnur en þau, að
Vinnupallurinn, sem maðurinn
féll af milli efstu svalanna.
hann hafði rifbeinsbrotnað. Var
hann síðan fluttur heim til sín,
þar sem hann liggur nú við góða
Mðan eftir alviikum.
' i i III i'l ' ... .....
Frá malbikunarframkvæmdum á Seltjarnarnesi í gær.
Malbilcað á SelfjaM tsarnesi
AÐ undanförnu hefur staðið yfir
malbikun Nesvegar, vestan Vega
móta. Það er Seltjarnarneshrepp
ur, sem stendur fyrir þessum
framkvæmdum. Áður höfðu ver-
ið malbikaðir um 250 m., en sá
vegarkafli, sem nú er verið að
leggja er um 500 m. og nær hann
vestur að Suðurbraut. Sveitar-
stjóri Seltjarnarnesshrepps, Sig-
urgeir Sigurðsson tjáði blaðinu,
að verið væri að undirbúa fleiri
götur undir malbik og myndi
Athugasemdir frá
Einari á Setbergi
ElNAR Halldórsson bóndd á Set-
bergi, hefur óskað eftir leiðrétt-
inigu á ummæiium, sem eftir hon-
um eru höfð í Mbl. sl. sunnudag
um brunann að Setibergi. Kvaðst
Einar vilja taka fram, að ekki
væri rétt eftir haft, að „þref“
væri milli sveitarfélaganna,
Hafnarfjarðar og Garðahrepps
og það væri ástæðan fyrir því að
full'kamnasti slökkvibill Hafnar-
fjarðar var ekki sendiur að Set-
bergi.
Einar sagði, að samstarfið
miili Hafnarfjarðar og Garða-
hrepps hefði jafnan verið mjög
gott og ekki væri þvi um að
kenna hversu til tókst við um-
rædidan bruna.
— Kaupmenn
Framha’d af bls. 32
á málefnum og hagsmunum dreif
ingaraðila og vonar nefndin, að
til þess þurfi ekiki að koma í
einni eða annarri mynd aftur við
verð'lagningu landbúnaðarafurða
eða aðrar aðgerðir.
Nefndin vill benda á, að til
að forðast slika málsmeðferð
hljóti að teljast bæði rétt og eðli-
legt að smásöludreifingaraðilar
fái aðild að þeim nefndum, sem
með málefni stéttarinnar fara,
t.d. öllum verðlagsnefndum,
þannig að réttur þeirra hljóti
viðurkenningu til jafns við rétt-
indi annarra, sem hlut eiga að
má’lL
Nefndin ítrekar, að í því að
taka aftur upp dreifingu á kart-
öflum, fellst fráleitt nokkur við-
urkenning á réttmæti álagning-
ar á þessa vörutegnd og bendir
jafnframt á, að álagning á land-
búnaðarvörur í heild er langt
fyrir neðan það, sem eðlilegt
mætti teljast.
IVIalitiovski
t!l Helsingfors
Mosikvu, 4. september, NTB.
• Rodin Malinovski, mar-
skálkur, landvarnarráðherra
Sovétríkjanna fer til Helsing-
fors 7. desember n.k. að því er
1 tilkynnt vár í Mosfcvu í. dag.
reynt að halda áfram í haust, ef
veður og aðstæður leyfa. Þá yrði
lögð áherzla á að halda áfram
með Grandaveginn og væri ætl-
unin að tengja hann Skólabraut-
inni. Hann kvað þetta mjög dýrar
Tónleikar Tón-
listarfélagsins 1
kvöld
TÓNLISTARFÉLAGIÐ heldur
fyrstu tónleika sína á þessu
í kvöld (þriðjudag) og annað
kvöld kl. 7 í Austurbæjarbiói.
Það er enska söngkonan Ruth
Little, maður hennar Jósef Magn
ússon flautuleikari og Guðrún
Kristinsdóttir, sem þar koma
fram.
Ruth Little hélt hér tónleika
fyrir tveimur árum, þá einnig
á vegum Tónlistarfélagsins. Lík
aði söngur hennar þá svo af-
bragðsvel, að Tónlistarfélagið af
réð ,að ráða hana hingað aftur
við fyrsta tækifæri. Einnig var
hún fengin til þess að taka þátt
í Tónlistarhátíðinni hér síðast-
liðið ár.
Jósef Magnússon er Reykvík-
ingur. Hann hóf flautunám sitt
í Tónlistarskólanum í Reykjavík
og síðan stundaði hann nám í
3 ár við Tónlistarháskólann í
London. Að námi loknu gerðist
hann flautuleikari í Sinfóníu-
hljómsveit íslands í tvö ár, en
fluttist þá til London þar sem
hann hefir verið búsettur síðan.
Þar leikur hann í sinfóníuhljóm-
sveit og í kammermúsikflokki,
auk þess sem hann kennir flautu
leik í tveimur tónlistarskólum.
Efnisskráin í kvöld og annað
kvöld er mjög fjölbreytt. Þar
eru verk eftir Bach, Purcell,
Monteverdi, de Falla, Poulenc,
Waughan Williams, Aaron Gop-
land o. fl.
Þessir tónleikar verða þeir
sjöundu í röðinni af tónleikum
Tónlistarfélagsins á þessu ári.
— /Jb róttir
Framhald af bls. 30
í bikarkeppni skozkiu deildarlið-
anna fór fram s.l.-' laugardag og
urðu úrslit m.a. þessi:
Dundee — CeLtic 1—3
Clyde — Heai'ts 1—2
Rangers — Aberdeen 4—0
St. Mirren — Falkirfc 2—3
Staðan er á þesisi:
1. deitd:
1. Leeds 8 stig
2. Tottenham 7 —
3. Everton 7 —
4. Shaffi-eld U 7 —
2. deild:
1. BoRon 9 stig
2. Huddersfield 7 —
3. Southampbon 7 —
4. Brisbol City 7 —
framkvæmdir, en kvaðst þakka
börgarverkfræðingi fyrir leigu á
tækjum og útvegun efnis í gatna
gerð hreppsins.
Iíjaradeilur
f GÆR boðaði sáttasemjari fund
með vinnuveitendum og fuMtirú-
um Sveinasambands bygginigar-
manna en þar er um að ræða
trésmiði, málara, þólstrarti, hiús-
gagnasmiði og Iðnarmannafólag
Árnessýslu. Hófst fundurinn kL
5 og stóð enm er blaðið fór i
prentun.
Afgreiðslustúlfcur í brauðbúð-
um hafa nú boðað verkifall næst-
komandi föstudag, náist ókki
samningar. Áður hafði verið sam
ið við Mjólfcursamsöluna um
kjör afgreiðslusbúlfcna í mjóMour-
búðum, svo verkfallsboðumm
nær ekki til þeirra. Málinu hef-
ur verið i’ísað til sáttasemjara,
en engir fundir höfðu verið boð-
aðir í gær.
Gerda Ring
stjórnar i Þjóð-
leikhúsinn
NORSKI leikstjórinn Gerda
Ring kom til landsins í gær til
þess að stjórna leikritinu Aftur
göngunum eftir Ibsen. Æfingar
munu hefjast á þeim leik næstu
daga.
Gerda Ring hefur um árabil
verið ein af aðal leikstjórunum
við Þjóðlekihúsið í Osló og hef-
ur auk þess margsinnis sett leik
rit á svið á hinum Norðurlönd-
unum. Hún kom hingað til lands-
ins 1962 og stjórnaði sýningu á
Pétri Gaut í Þjóðleikhúsinu, sem
sýnt var þar við metaðsókn með
Gunnari Eyjólfssyni , aðalhlut-
verki.
Myndin er af Gerdu Ring.