Morgunblaðið - 07.02.1968, Side 16

Morgunblaðið - 07.02.1968, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 19M Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthias Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Ritstjórnarfulltrúi: Þorbjörn Guðmundsson. Fréttastjóri: Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 10-100. Auglýsingar: Aðalstræti 6. Sími 22-4-80. í lausasölu: Kr. 7.00 eintakið. Áskriftargjald kr. 120.00 á mánuði -nnanlands. TOLLALÆKKANIR ¥ fyrradag var lagt fram á Alþingi frv. ríkisstjórn- arinnar um nær 160 milljón króna tollalækkanir, en þess frv. hefur verið vænzt frá því að ríkisstjórnin lýsti því yfir við lokaafgreiðslu fjár- laga, að nokkru fé mundi verða varið til lækkunar tolla á nauðsynjavörum til þess að vega á móti verð- hækkun vegna gengisbreyt- ingarinnar. Frv. ríkisstjórnarinnar ger ir ráð fyrir nokkru minni tollalækkun en búizt hafði verið við, og fjármálaráð- herra hefur upplýst, að í fyrstu hafi verið stefnt að 270 milljón króna tollalækk- un. Skömmu eftir áramótin varð hins vegar ljóst, að rík- issjóður yrði óhjákvæmilega að taka á sig veruleg útgjöld til þess að tryggja rekstrar- grundvöll sjávarútvegsins og hefur síðan verið unnið að því að finna leiðir til þess að tryggja tekjuöflun vegna þeirra skuldbindinga. Þótt tollalækkanirnar verði nú minni en almenn- ingur hafði vænzt, er það þó fagnaðarefni, að ríkisstjórn- in hefur tekið ákvörðun um að verja verulegum fjármun um til tollalækkana. Tolla- lækkanir þær, sem nú eru fyrirhugaðar, eru fyrst og fremst á matvörum og fatn- aði. Þær munu hafa áhrif til lækkunar á vísitöluna um í,56 stig, en til samanburð- ar má benda á, að skv. upp- haflegri tollalækkun hefði vísitalan lækkað um 1,65 st. Ríkisstjórninni hefur þannig tekizt að halda tollalækkun- um á flestum helztu nauð- synjavörum almennings. — Þessar tollalækkanir munu ó- tvírætt hafa töluverð áhrif til þess að halda verðlagi í land- inu í skefjum þrátt fyrir gengisbreytinguna. Að því verður einnig að vinna eftir öðrum tiltækum leiðum, því að áhrif gengisbreytingarinn- ar fyrir útflutningsatvinnu- vegina eru undir því komin að verðlag hækki ekki ört og þá ekki heldur kaupgjald. Þess hefur verið gætt við tollalækkanirnar að gera til- lögur um hlutfallslega lækk- un tolla á hráefnum til iðn- aðarins, þar sem um er að ráeða tollalækkun á fullunn- um innfluttum vörum. Þar með hefur tollvernd iðnaðar- ins ekki verið rýrð, og þess ber einnig að gæta að geng- isbreytingin hefur bætt mjög samkeppnisaðstöðu iðnaðar- ins. Þá er einnig lagt til, að tollar á hráefnum til málm- iðnaðar verði lækkaðir veru lega og er það vegna þeirra erfiðleika sem járniðnaður- inn hefur átt við að búa að undanförnu. Vonandi verð- ur sú ráðstöfun til þess að örva og efla þessa mikilvægu iðngrein. Á síðustu árum hefur ver- ið leitast við með alþjóð- legri samvinnu að lækka tolla til þess að greiða fyrir viðskiptum þjóða í milli. Misjafnlega hefur til tekizt í þeim efnum, svo sem tollmúr ar EBE og tollamismunur EFTA eru glöggur vottur um. Hins vegar er ljóst að tollar eru svo háir hér á landi og skapa slíkt misræmi í verðlagi hér og erlendis að nauðsynlegt er að lækka toll- ana smátt og smátt. Með því styrkjum við einnig aðstöðu okkar til óhjákvæmilegra samninga við viðskiptabanda lögin. NÁTTÚRUHAM- FARIR OG AL- MANNAVARNIR 17'yrir nokkru urðu gífurleg- ir jarðskjálftar á Sikil- ey. Hundruðir manna misstu lífið og þorp og bæir liggja í rúst. Gífurlegur fjöldi fólks hefur misst allar eigur sínar vegna þessara náttúruham- fara. Þessir atburðir hljóta að vekja nokkra athygli hér á landi. ísland er eitt mesta eldfjalla- og jarðskjálfta- land í heimi. Ljóst er að við þurfum að vera við öllu búin. Hérlendis eru starfandi svokallaðar almannavarnir og hefur þeim nýlega verið skapaður víðtækari starfs- grundvöllur en áður, þ. á. m. að hafa tiltækar nauðsynleg- ar ráðstafanir ef náttúruham- farir yrðu hér á landi. — Sumum kann að þykja lítil ástæða til að verja fé til slíkrar starfsemi, en ef styrj- öld eða náttúruhamfarir steðj uðu að hér á landi mundu fá- ir sjá eftir því, að nokkrum fjármunum hefur verið varið til þess að vera við öllu bú- inn. Xogarinn Ross Cleveland á strandstað út af Snæfjallaströnd. — (Myndirnar tók Valdimar Jónsson. loftskeytamaður á Óðni). Varðskipsmenn fara út í Notts County til að sækja látna skipverjann. Ross Cleveland slysið: Fjögur lík hafa fundizt Varðskipsmenn sóttu látna manninn um borð í Notts County í gœr. Fulltrúar vátryggingafélags togarans vœntannlegir FJOGUR Iík hafa fundizt af Hull-togaranum Ross Cleveland, en hann fórst eins og kunnugt er aðfaranótt sunnudags í ísa- fjarðardjúpi. Tvö lík fundust í gúmbáti þeim, er bar Harry Eddam að landi í Seyðisfirði vestri, en önnur tvö lík hafa fundizt í Álftafirði — annað í vestanverðum firðinum en hitt í honum austanverðum. Þá fór varðskipið Óðinn i gær og sóttu varðskipsmenn líkið af skip- verja þeim, er lézt á togaranum Notts County, sem strandaði út af Snæfjallaströnd. Samkvæmt upplýsingum Hann esar Hafstein hjá Slysavarnafé- laginu verður í dag gengið áfram á fjörur og leitað á þessu svæði, og þá aðallega í kringum Arnarnes og Álftafirði. Verður leitað þarna vegna hvarfs v.b. Heiðrúnar og eins kannað hvort fleiri lík skipverja af Ross Cleve land hafi borizt að landi. Varðskipsmenn, sem fóru um borð í Notts County, þar sem hann liggur á strandstað við Snæfjallaströnd, segja, að mik- ill sjór sé kominn í allan tog- arann, en ekki er ljóst hvort botnskemmdir hafa orðið á hon- um. Geir Zoega, umboðsmaður brezkra togaraeigenda á íslandi, tjáði Mbl. í gærkveldi, að í dag væru væntanlegir til landsins tveir menn frá vátryggingarfé- lagi togarans, og munu þeir fljúga vestur á ísafjörð á fimmtu dag til að líta á skipið. Sam- kvæmt umsögn þeirra mun síð- an verða tekin ákvörðun um hvort reynt verði að bjarga tog aranum eða ekki. Ruggiero Ricci leikur með Sinfóníuhljómsveitinni MEÐ næstu tónleikum Sinfóníu- hljómsveitar íslands á fimmtu- dagskvöldið hefst síðara miss- eri starfseminnar 1967-—68. — Stjórnandi verður Bohdan Wod- iczko. Tónleikarnir hefjast á kanadískum Karnival eftir Benjamin Britten. Verkið var samið skömmu eftir að Britten ákvað að fylgja í fótspor W. H. Audens og halda til Vestur- heims, flýja ófriðarblikuna í Evrópu 1939. Þetta er létt og gáskafullt verk, í hljóðfalli al- þýðlegra dansa. Næsta verk efnisskrárinnar er líka samið undir áhrifum alþýð- legra dansa, en það er Symp- honie espagnole — sinfónía me’ð spánskættuðum ctefjum og hljóðfalli þjóðlegra Spánverja- dansa eftir Lalo. Einleikinn á fiðluna í þessu verki leikur bandaríski fiðlusnillingurinn Ruggiero Ricci. Ricci kom fyrst fram opinber- lega 8 ára gamall, og síðan hef- ur líf hans verið óslitin frægðar ganga. Gagnrýnendur stórblað- anna vestan haft fannst þá öll- um að „drengurinn lofaði góðu“, en nú segja þeir alir, að hann hafi ekki aðeins uppfyllt æðstu vonir, heldur hafi list hans bor- ið hann lengra en nokkurn grunaði. Ruggiero Ricci er einn hinna fáu núlifandi fiðlusnill- inga, sem í erlendum blöðum kallast „alþjóðlegur". Hann er fiðlari, sem allar þjóðir vilja eigna sér. Þá leikur hljómsveitin hið glæsilega sinfóníska ljóð Ric- hards Strauss, Don Juan. — Strauss var ungur, þegar hann samdi þessar endurminningar „gamals manns, fyrrverandi „Don Juans““, vegna samnefnds ljóðs eftir Lenau. Tónleikunum lýkur með öðru Ruggiero Ricci. leiftrandi hljómsveitarverki, rúmenskri rapsódiu nr. 1 eftir Georgiu Enesco. Enesco var ekki aðeins frægt tónskáld, heldur stjórnaði hann og var í fremstu röð fiðlusnillinga. Seinustu árin einbeitti hann sér að kennslu og meðal nemenda hans var Menuhin. (Frá Ríkisútvarpinu).

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.