Morgunblaðið - 07.02.1968, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 07.02.1968, Qupperneq 32
2HorcumI>Tní>iíi RITSTJÓRIM • PREIMTSMIÐJA AFGREIÐSLA'SKRIFSTOFA SÍIVII 1Q.1DD Enn árangurslaus leit að Heiðrúnu Leitað á landi, úr lofti og á sjó í gær án árangurs Gúmbátur fannst í Vigur, en er ekki af bátnum LEITAÐ var á landi, úr lofti og á sjó í gær að vb. Heið- rúnu II. ÍS-12 með sex mönn- um innanborðs, en ekkert hefur spurzt til skipsins frá því á miðnætti aðfaranótt mánudags. Áttu skipverjar þá í erfiðleikum vegna ísing- Reykhólastaöur eins og eftir loftárás Króksfjarðarnesi, 6. febrúar. UM helgina gekk hér yfir eitt versta veður, sem menn muna eftir, og olli það víða tjóni á mannvirkjum. Mestar munu skemmdirnar hafa orðið að Reyk hólum, en staðurinn lítur út eins og eftir loftárás. f kirkjunni að Reykhólum brotnuðu allar rúður, hurðir sprungu út og er kirkjan mik- ið skemmd. Fauk hluti af þaki, barnaskólahússins. Allar rúður í skólanum og mjólkurbúinu brotnuðu. Þá brotnuðu rúður í útibúi kaupfélagsins og urðu þar miklar skemmdir. Þakplötur fuku af íbúðarhúsinu að Reyk- hólum, Mávavatni og allar rúð- ur brotnuðu. Varð fólkið að flýja af bænum á sunnudags- nótt. Á Höllustöðum fauk upp véla geymsla og urðu nokkrar skemmdir á vélunum, en húsið stórskemmdist. Á Grund fauk upp bílskúr og á Litlu-Grund fauk jeppabíll nokkuð hundruð metra, en skemmdist ótrúlega lítið. Þak- plötur fuku víða af húsum. Rafmagnslaust varð í versta veðrinu og símasambandslaust var út úr héraðinu þar til í morgun. — Sveinn. ar, eins og áður hefur verið skýrt frá. Leitað var fram til myrkurs, en Ieitin bar ekki árangur. Fjöldi manna leitaði í gær á fjörum. Fóru leitarflokkar frá Bolungarvík með Stigahlíðinni, sem er nokkuð utan við Bol- ungarvík, og gengið var á fjörur víða í kringum þorpið. Þá fóru flokkar manna frá Hnifsdal út með Ósihlíð á móti leitarmönn- um frá Boiungarvík, og bátur leitaði utan við Óshlíðina. Alls munu 12—15 skip hafa leitað á ísafjarðardjúpinu, og þar á meðal varðskipið Óðinn sem fór inn á Jökulfirðina. Enn- fremur leituðu tvær flugvélar úr lofti, fiugvél Björns Paissonar og flugvél Landhelgisgæzjunnar, en skilyrði voru ekki góð. Leitinni var hætt þegar dimma tók, en henni verður haldið áfram á morgun, og þá leitað aftur á fjörum og reyn: að leita úr loffi, ef skilyrði verða fyrir hendi. Hið eina sem fannst í gær við leitina voru nokkrir netabelgir, en þeir geta verið frá hvaða bát sem er. Þá fannst gúmmbátur í fjöru í Vigur, en í ljós kom að hann var ekki frá Heiðrún. Sem fyrr segir, var sex manna áhöfn á bátnum, og hinn elzti þeirra 52 ára en hinn yngsti 17 ára. Þrír af áhöfninni voru undir tvítugu. Með skipverjan- um sem var elztur eru tveir ungir synir hans, en tvær dætur eru heima. Samúðar- kveðjur frá forsætisráð- herra og borgarstjóra | BJARNI Benediktsson, for- . sætisráðherra, sendi í gær | ’ Harold Wilson, forsætisráð- | I herra Bretlands, samúðar- I kveðjur sínar og ríkisstjórn- ‘ , ar fslands vegna sjóslysa I þeirra sem orðið hafa við Is- | I landsstrendur að undanförnu, | er brezkir togarar og fjöl- ! margir brezkir sjómenn hafa I >t. Borgarstjórn Reyk javíkur | ' sendi einnig í gær borgar- | I stjórn Hull samúðarkveðjur ( j vegna þessara atburða. Öryrki gefur Öryrkjabanda- laginu sjö íbúöir Verðgildi þeirra er 5 rnilij. kr. STJÓRN húsbyggingasjóðs Ör- ykjabandalags íslands efndi til Skipstjórinn á Notts County, George Burkes, í sjúkrahusinu á ísafirði. — Ljósm. Bj. Pálsson. sérstaks fundar í tilefni af stór- gjöfum, er öryrki, Kristján Júlíusson, og kona hans, Bjarn- fríður Pálsdóttir, hafa gefið bandalaginu. Dr. Oddur Ólafsson, yfirlæknir, skýrði frá því, að það væri mjög óvenjulegt, að einstaklingar gæfu slíkar stór- gjafir. Þetta væri þó merkilegra, þar sem Kristján væri öryrki, og hefði verið um langt árabil. Væri tillag hans til húsbygg- ingasjóðs svo stórt, að það gerði bandalaginu kleift að halda á- fram með húsbyggingu sína að Hátúni 10, og væri áætlað að flytja inn í húsið fyrir áramót 1968—69. Kristján er fæddur á Húsavfk, 23. des., 1906. Árið 1944 varð hann veikur, og var í mörg ár, og fékk siðan árið 1956 örorku- vottorð. Þá ákvað hann að hjálpa öðum, sem bágstaddir væru. Siíðan sagðist hann hafa unnið alla daga sleituil'aust, spar að og gefið í húsbyggingasjóð síðan 1965. Hann hefur alls af- hent sjóði þessum sjö þriggja herbergja íbúðir að verðgildi kr. fimm milljóndr. Kvaðst hann álíta, að með því hefði hann gert skjólstæðingum sínum hér, ör- yrkjunum, fulla grein fyrir lífi sínu. Sagði hann, að ýmsa hefði furðað á þessu tiltæki sínu, en það skipti minnstu máli. Hann hecfðii góðan stuðning í konu sinni hún hefði aðstoðað sig mdk- ið í þessu starfi. Mikil ófærð enn KOMIN er allgóð færð á vegum um Suðurlands'undirlendi, en á MýrdaJssandi er enn erfið færð. Einnig var í gær orðið ágætt fyr- ir Hvalfjörð og Borgarfjörð. Yar færð að lagast á Snæfellsnesi og í Dölum. Á Vestfjörðum var enn gífur- leg ófærð. Átti að ryðja leiðina Maðurinn króknaöi í höndunum á okkur Viðtal við skipstjóra og stýrimenn á Notts County ÍSAFIRÐI, 6. feb. — í sjúkra- húsinu á ísafirði, stofu 1, liggja tveir brezkir sjómenn, George Burkes, skipstjóri á Grimsbytogaranum Notts County og stýrimaður hans, Barry David Stokes, báðir frá Clethopers skammt frá Grimeby. Burkes skipstjóri er fertugur að aldri og hefur verið skipstjómarmaður und anfarin 12 ár. Þegar Mbl. ræddi við hann og stýrimanninn í sjúkrahús- inu í dag voru báðir órakað- ir og fremur illa haldnir, en þó málhressir. Skij>stjórinn sagði: — Við höfðum verið hér við Vestfirði nokkra und- anfarna daga. Þegar slysið varð voru liðnir 10 dagar frá því við fórum að heiman. Þegar veðrið brast á, vor- um við í mynni ísafjarðar- djúps. Komið var ofsaveður og mikil snjókoma. Þá bilaði ratsjáin hjá okkur. Við reynd- um að hafa sa-mband við tog- ara, sem voru í grenndinni, og fórum síðan að reyna að leita vars. Við vorum að sigla fram og til baka án þess að vita hvar við værum, stundum á fullri ferð, stund- um á hægri ferð, og yfirleitt held ég að við höfum verið að sigla fram og aftur á sama blettinum. Um 11 leytið á laugardagskvöld strandaði skipið. Það var eins og skipið tæki stökk þegar það kenndi grunns og við vissum ekki hvað var að gerast. Ég fékk strax tilkynningu um það að sjór væri kominn í vélarrúm- ið. Vélstjórinn taldi að gat hefði komið á botninn. Og sjór væri í skipinu. Stýri- maðurinn fór fram í og at- hugaði hvort sjór væri fremst í skipinu. E nnig fór hann aftur í, en sá ekki sjó þar. Við settum út björigunar- báta. Loiftskeytamaðurinn hafði samband við fallbyssu- bátinn Óðinn og þeir sögðu okkur að bíða. Þeir mundu koma til okkar. Við settum út einn gúmmbát og einn maður stökk út í hann. Bátnum hvoifdi. En við náðum mann- inum aftur. Síðan komu varð skipsmenn og björguðu okkur út. Sumir okkar voru kalnir á höndum eða fótum. En það var tekið vel á móti okkur. Við erum komnir hér til ísa- fjarðar heilu og höldnu og erum sæiir og glaðir með okkar hlut. — Ég vil segja einn hlut til viðbótar. Ég er ákaflega þakklátur skipherranum og Framhald á bls. 31 frá Patreksfirði á flugvöllinn, en þar hafði fallið snjóflóð á um 700 m. kafla og brotnir 10 síma- staurar. í gær var hjálpardagur fyrir bíla milli Akureyrar og Reykja- ví'kur, en því var frestað þangað til í dag. í gær var unnið að und- irbúningi að ruðningi á veg-um í Húnavatnssýslu, en þar er geysi legur mjór. Verður reynt að ryðja veginn yíir Holtavörðu- heiði í dag og hjálpa bílum yfir heiðarnar norður. í gær voru bílar aðistoðaðir milli Akureyrar og Húsavíkur. Á NA-landi eru allir vegir ófærir. Á Austfjörðum er fært kringum Egilsstaði og um Fagradal. Reyna á að rýðja Oddsskarð á fimmitu- dag eða föstudag, ef veður leyfir. Fundnir 9KEMMDARVARGARÍNIR, sem urðu valdir að sikemmdum á sumarbústöðunum og brenndu til grunna við Lögberg hafa nú náðzt. Voru þetta sex piltar úr Reykjavík á aldrinum 12-15 ára. Lögreglan í Kópavogi hafði með rannsókn málsins að gera og náði hún sökudólgunum í gær. Ekki hefur verið kannað niður í kjölinn hve stór þáttur hvers og eins er í skemimdarverkunum, en piltarnir hafa játað verknað- ,in fyrir lögreglunni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.