Morgunblaðið - 29.02.1968, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. FEBRÚAR 1998
Olfusá meira en tífaldaðist-
Elliðaárnar tuttugfölduðust
— seg/r Sígurjón Rist, vatnamœlingamaður
SIGURJÓN Rist, vatnamæl-
ingamaður, var í gær á ferð um
Árnessýslu og mældi ár, er
flæddu. f gærkvöldi var hann
staddur á Iðu og hafði þá m.
a. verið við Selfoss um hádegi
í gær. Mbl. hafði símasamband
við Sigurjón og spurði hann
um álit hans á flóðunum. Hann
sagði:
— í>etta flóð í ölfusá í dag,
er til komið vegna klakastífiu,
sem er fyrir neðan brúna. Vatns
hraðinn er tæpir 4 metrar í sek
úntu. en miðað við slíka hæð,
sem var í dag, ætti hann að vera
7 metrar. Nú í kvöld er vatnið
við Selfoss að hækka, vegna
aukins rennslis og stíflunnar í
ánni og er ástandið þar mjög í-
skyggilegt. Brúará er hins
vegar í rénun.
— ölfusá er nú um 2000 ten-
ingsmetrar á sekúntu og mun
hún líklega fara yfÍT það í nótt.
Meðalrennsli árinnar er um 400
teningsmetrar, en fyrir flóðin
nú var hún um 200, þannig hef
ur hún nú í einni svipan mei.'a
en tí’faldast.
— Flóðið í Ölfusá hafði ekki
Bygging fll-
þingishúss og
stjórnnrrúðs
rædd
BJARNI Benediktsson for-
sætisráðherna svaraði gaer
fyrirspurnum á fundi Sam-
einaðs-Alþingis um væntan-
lega byggingu Alþingishuss
og stjórnarráðshúss. Kom
fram í ræðu ráðherra að
nauðsynlegt væri að taka á-
krvörðun um það hið fyrsta
hva fyrirhuguðu Alþingis-
húsi yrði valinn staður. Einn
ig kom fram að fyrir liggja
tillöguteikningar að nýju
stjórnarráðShúsi og að í
byggingarsjóði þess erj nú
um 18V2 millj. kr. Nánar er
sagt frá ræðum forsætisráð-
herra í þingfréttasíðu blaðs-
ins í dag.
náð þeirri hæð í dag, sem það
náði 5. marz 1948, en Vatna-
mœlingarnar haifa látið höggva
merki yfirborðs þess flóðs í brú
arstöpul Ölfusárbrúar, fólki til
viðvörunar, því að það gleym-
ir engu eins fljótt og flóðum.
Um hádegisibil í dag vantaði
enn 10 cm að þessu marki og
ekki kæmi mér það á óvart,
þótt það færi yfir það í nótt.
— Um Elliðaárnar er það
að segja, að gizkað hefur verið
á að rennisli þeirra hafi komizt
upp í rúmlega 100 teningsmetra
eða rúmlega rennsli Sogsins.
Meðalrennsli ánna er um 5
teniingsmetrar, en fyrir flóðin
voru þær miklu minni. þannig
að þær hafa a.m.k. 20-faldast.
REYKJANES-
KJÖRDÆMI
AÐALFUNDUR Kjördæmisráðs
Sjálfstæðisflokksins í Reykja-
neskjördæmi verður haldinn í
samkiomuhúsinu á Garðaholti
sunnudaginn 3. marz kl. 1,30
e.h. — Stjómin.
Ekki mihill
bruni
Búðardal, 28. feb. —
ELDURINN í hlöðunni á Leið-
ólfsstöðum í Laxárdal á þriðju-
dag var slökktur. Voru slökkvi-
liðsmenn komnir til baka um kl.
10.30. Mun ekki hafa skemmst
mikið af heyi.
Atkvæðagreiðsla
um verkfall
■ Keflavik
í DAG kl. 5 hefst atkvæða-
greiðsla um verkfallsboðun hjá
Verkalýðs- og Sjómannafélagi
Keflavíkur og Njarðvíkur. Og
einnig hjá Verkakvennafélaginu
á staðnum. Stendur atkvæða-
greiðsian í næstu 3 daga.
— Ástæðan fyrir þessum fióð
um er að jörð er frosin, mikill
snjór er á hálendinu og þíða. í
jainúarlok var eins mikiil sniór
á hálendinu og venjulega er í
marz. í nóvember, um 20. des-
ember og aftur 13. janúar, komu
miklar hálkur og fyllti þá allar
dældir í landslaginu. Dældir
þessar, sem að öllu eðlilegu,
hefðu tekið við miklu af þessu
vatnsmagni nú, em því fuilar
og þess vegna fer nú sem íer.
Þegar öll þessi atriði fara sam-
an, frost í jörðu, þíða og úr-
koma, samfara miklum snjó-
þyngslum á hálendínu er ekxi
að sökum að spyrja.
— Á morgun (þ.e. í dag)
verða flóð fyrir norðan, sem
eiga sér sömu orsakir og þau,
er urðu í gær og dag hér fyr-
ir sunnan, Ölfusá og Héraðs-'itn
í SkagafÍTði, eru hættulegustu
fióðár landsins og því kemur
mér ekki á óvart, þótt þið ættuð
von á fréttum svipuðum þessum
að norðan á morgun, 'agði Sig-
urjón að lokum.
Frummælendur á fundi Stúdentafélagsins um gildi verkfalla
frá vinstri: Jón B. Hannibalsson, Sveinn B .Valfells og Sveinn
Björnsson. (Ljósm. Mbl. Sv. Þorm.)
Fitndur Stúdentafél. R.víkur í kvöld:
Eru verkföll úrelt?
— torvígismönnum launþega og atvinnu-
rekenda boðið á tundinn
í KVÖLD er efnt til urnræðu-
fundar um efnið: „Eru verkföll
úrelt“ á vegum Stúdentafélags
Reykjavíkur. Fundurinn verður
í Sigtúni við Austurvöll og hefst
kl. 8.30 e.h.
Sveinn B. Valfells forstjóri,
Sveinn Björnsson forstöðumað-
ur Iðnaðarmálastofnunar íslands
og Jón Hannibalsson hagfræð-
ingur verða frummælendur.
Síðan eru frjálsar umræður.
Forvígismönnum launþega og
atvinnurekenda er sérstaklega
boðið á fundinn.
Þar sem verkfallsmál eru mjög
ofarlega á baugi má ætla, að
marga muni fýsa að kynnast
þeim viðhorfum, er fram koma
á fundinum. Aðgangur er öllum
heimill.
Miklar skemmdir á þjóð-
vegakerfi landsins
VEGNA vatnavaxtanna og úr-
komunnar undanfarna daga hafa
orðið miklir skaðar á vegakerfi
landsmanna, og f jölmargir vegir
teppzt, einkum þó á Suðurlands-
undirlendi og á Vesturlandi.
I allan gærdag var ófært milli
Reykjavíkur og Selfoss, þar sem
vatn flæddi víða yfir veginn á
leiðinni, og alls staðar var mikil
aurbleyta. Viðgerð hófst síðari
hluta dags í gær, og ef bjart-
sýnustu áætlanir standast, þá
ætti að verða fært til Selfoss
síðari hluta dags eða í kvöld.
Mikil aurbleyta var á allri
Krísuvíkurleiðinni, en mjólkur-
bílar og stórir framhjóladrifs-
bílar fengu að fara þá leið.
Flestir vegir á Suðurlands-
undirlendi voru lokaðir í gær og
skemmdir, svo sem Biskups-
tungubraut við Minniborg,
Laugarvatnsvegur og Suður-
landsvegur í Rangárvallasýslu
og í Varmadal. Skemmdir eru á
Fljótsdalshliðarvegi, Þykkvabæj
arvegi, og brú á Háfósum er
löskuð, þar sem undan henni
eru farin tvö ok í miðju, og
hangir hún aðeins á endunum.
Ófærð er kringum Horna-
fjörð og er Lónshefði lokuð, og
ófært er um Vattarnesskriður
og í Hvalnesskriðum. Annars er
ástandið á Austurlandi hvað
skárst. Þá hafa heldur ekki bor-
izt fregnir um verulegar vega-
skemmdir af Norðurlandi, en þó
eru ýmsir vegir ófærir, vegna
vatnavaxta áa á Norðurlandi. Er
hluti Blönduhlíðarvegar í Skaga
firði t.d. ófær, og einnig hluti
Siglufjarðarvegar. Á VestfjÖTð-
um er ófærð á nyrðri fjörðun-
um, einkum vegna snjóa, en
sæmileg færð er á Patreksfirði
og þar í kring.
í Dölum hafa ár víða flætt
yfir vegi, t.d. lokar Hörðudalsá
veginum á Skógarströnd, og í
Laxá hefur klakaruðningur
laskað brúna. A Snæfellsnesi
höfðu myndazt skörð í veginn
um Ólafsvíkurenni, en þar var
unnið að viðgerð í gær. Hafa
verið þar mikil skriðuföll og
einnig 'hafa skriður fallið á veg-
inn um Búlandshöfða.
Vatnavextir í Borgarfirði
hafa valdið miklum sköðum á
vegum þar. Hvítá flæðir til
dæmis yfir veginn hjá Hvítár-
völlum og Norðurá flæðir yfir
veginn hjá Hvammi og lokar
honum. Þá flæðir Bjarnardalsá
yfir veginn við Dalsmynni. —
Grímsá flæddi yfir Borgarfjarð-
arbraut hjá Hesti, en þar tókst
að opna í gær, svo að fært var
í Borgarfjörð um efri leiðina.
Frá Akranesi til Reykjavíkur
var sæmileg færð í gærdag.
Vatnsflóðiö bar bílinn til
Hlýindin íœrast
austur yfir
— Kalda loftið kemur í staðinn
— Frásögn mjólkurbíl-
stjóra í Borgarfirði
í gærmorgun þegar Sig-
mundur Halldórsson, mjólk-
urbílstjóri, fór á Dodge Weap.
on bíl sínum að sækja mjólk-
ina í Reykholtsdal og Bæjar-
sveit, festist bíll hans í vatns-
flóði rétt áður en komið er
að Síkisbrúnum í Borgarfirði
og barst bíllinn til í straum-
num. Bílstjórinn komst í land
og var bílnum seinna náð úr
flóðinu. Mbl. hringdi til Sig-
mundar, sem í gærkvöldi var
a' koma heim frá því að
bjarga bíl sínum úr vatninu.
Honum sagðist svo frá:
Ég lagði af stað í mjólkur-
ferðina kl. 7. Rétt sunnan
megin við Síkisbrýrnar var
mikið vatn og straumur, en
enginn ís farinn að berast
með vatninu. Ég hikaði svo-
lítið, en lagði svo í þetta. Þeg-
ar ég var kominn um 30 m.
út í, var straumurinn svo
mikill að bíllinn drap á sér.
Straumurinn tók hann þá og
bar hann út á hlið, alltaf eina
10 m. Ofaníburðurinn úr veg-
inum hafði skafizt af undan
vatninu og sezt utan við veg-
inn, svo bíllinn hallaðist ekki
þó hann færi út af brúnni.
Og vatnið náði ekki nema upp
fyrir hjólin.
Vatnið rann því ekki inn
í bílinn. Ég ákvað að vera
kyrrog bíða rólegur. Vera til-
búinn ef einhver kæmi, sem
gæti kippt í mig. Ég beið
þarna í hálftíma og fór upp
á þakið á bilnum. Þá komu
menn að og ég óð í land.
Straumurinn var þungur, en
áhættan var minni eftir að
fleiri voru komnir að. Ég fór
svo niður í Borgarnes að
skipta um föt.
Þegar ég kom aftur, voru
komnir ísjakar í vatnið, sem
buldu á bílnum og höfðu
skemmt bretti og hús og bíll-
inn hafði enn færzt til. Ég
hafði verið að hugsa um að
vera kyrr og reyna að stjaka
ísjökunum frá ef liti út fyir
að þeir kæmu á bílinn. Við
fórum svo með veghefil og
náðum bílnum norður yfir.
Það gekk vel, en var erfitt að
krækja i bílinn í vatninu og
við höfðum í okkur streng.
Talsvert vatn var komið í
vélina, en ég hef tappað
því af. En ófært er að ná
bílnum suðuryfir núna.
Mjolkin var því ekki sótt
á minni leið í dag og fleiri
leiðum, sagði Sigmundur að
lokum.
SUNNANÁTTIN hlýja, sem
valdið hefur hinum hröðu leys-
ingurn á landínu, færist áfram
austur yfir landið í gær, en
en veðraskilin fóru hægt. Kl. 5
síðdegis voru skilið komin aust-
ut yfir Vestmannaeyjar og lágu
um Sigiunes á Norðurlandi, sam
kvæmt upplýsingum veðurstof-
unnar. Síðdegis var miklu kald-
ara yfir vestanverðu landinu,
slydda og vægt frost á Vestfjörð-
um og var kuldinn að vinna á
og hrekja hlýja loftið á undan
sér austur um. Reiknuðu veður-
fræðingar með að það breiddist
yfir landið í dag og gengi þá
sennilega í útsynning. Um kvöld
matarleytið var leysingin t. d.
búin fyrir austan Fjall, hiti far-
inn niður í 1—2 stig.
Leysingin náði upp yfir há-
lendið. Á Hveravöllum var 2ja
til 4ra stiga hiti í gær og slydda
og þar var gífurleg úrkoma í
fyrrinótt eða 80 mm og í gær
bættust við 40 mm. Hefur því
mikið vatn komið af fjöllun-
um. Rigningin náði ekki norður
fyrir. En sunnanmegin á land-
inu var hún mikil, 48 mm yfir
sólarhringinn á Þingvöllum, 56
mm á Hæli í Hreppum, en minna
úti við ströndina.
Ábyrgðor-
heimild
hæhhuð um
10 millj. lu.
FRÁ fjádhagsnefnd Neðr
i deildar hafa nú verið lagða
í fram breytingartillögur un
r framkomið stjórnarfrumvar]
) um 'heimild fyrir ríkisstjórn
)ina til að ábyrgjast lán ti
| byggingar dráttarbrauta o,
’ skipasmíðastöðva.
Leggur nefndin til að lán
) tökuheimildin verði hækku
) úr 40 millj. kr. í 50 millj. ki
l og að ef sérstaklega standi í
f að dómi ráðherra, megi upp
I hæð ríkisá'byrgðar nema all
) að 80%, enda séu fyrir henc
| fullnægjandi írygtgingar.