Morgunblaðið - 29.02.1968, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. FEBRÚAR 1968
Rúmenar náðu algerum
yfirburðum og unnu 23:14
Staðan í hálfleik í gær var
Þ A Ð seig heldur illilega á ógæfuhliðina hjá landsliðinu í
handknattleik í síðari leiknum gegn Rúmeníu, en hann fór
fram í Cluj, einni af stærri borgum landsins, í gærkvöldi.
Rúmenar náðu algerum yfirburðum og unnu leikinn með
23 mörkum gegn 14. í hálfleik var staðan 10—4 Rúmenum
í vil.
Að vísu hafa margar þjóðir, sem lengra hafa náð á sviði
handknattleiksins en Islendingar, orðið að sætta sig við áiíka
eða meiri ósigur gegn Rúmenum á heimavelli og skal enn
minnt á nýafstaðinn leik Rúmena og V-Þjóðverja 24—14.
í fréttaskeyti sem Mtol. barst
í gærkvöldi og byggt er á frétt-
um rúmönsku fréttastofunnar,
segir, að 1000 áihorfendur hafi
verið að leiknum og þeir séð
landa sína ná yfirtourðum strax
í byrjun og ná 4—1 forskoti á
fyrstu mínútum leiksins.
Frá 10. til 12. mín tókst ís-
lenzka liðinu að skora tvíveg
is og minnka bilið í 4—3. Það
vaknaði veik von í brjóstum
íslendinga, að þeim tækist að
hamla á móti stórsókn Rú-
menana. En sú von varð ekki
langlíf. Yfirburðir Rúmena í
leiknum voru miklir á þess-
um tíma og forskotið jókst í
6 mörk fyrir hlé — eða 10—4,
án þess fslendingar fengju að
Keppt um 4 bikara á
sundmóti Á í kvöld
— Allt bezta sundfólkið með
SUNDMÓT Ármanns, sem hald
ið er í kvöld, fimmtudag, er
fyrsta sundmót félaganna í
Reykjavík á árinu.
Verður þar keppt í 9 sund-
greinum og 2 boðsuihdum en
greinarnar eru:
100 metra skriðsund karla.
Keppt er um bikat.
200 metra bringusund karia.
Keppt er um bikar.
100 metra baksund karla.
200 metra fjórsund kvenna.
Keppt er um bikar.
100 rnetra skriðsund kvenna.
100 metra baksund kvenna.
50 metra skriðsund drengja.
Keppt er um bikar.
100 metra bringusu.id stúlkna.
50 metra bringusund tSipna
f. 1956 og síðar.
4x100 metra sfcriðsund
kvenna.
4x100 metra fjórsund karla.
Keppendur eru milli 90 og
100 frá öllum Reykjavíkurfé-
lögum, og frá Hafnarfirði, Akra
nesi og Selfossi.
í fimm greinum er það mik
il þátttaka að halda varð und-
anrésir og keppa 8 beztu til úr-
slita á mótinu.
Allt bezta sundfólk landsins
keppir á mótinu og má því bú-
ast við jafnri og skemmtilegri
keppni.
gert.
Síðari hálfleikurinn var mun
jafnari, en eigi að síður náðu
íslendingar aldrei að stöðva yf-
irburði Rúmena, bvað þá að
ógna sigri þeirra, eing og þeir
gerðu í fyrri leik landanna.
Rúmenska liðið lék nú allt
annan og betri leik en í fyrri
Evrópu-
bikarar
í GÆR fóru fram nokkrir leik-
ir í keppninni um E'vrópubikar
meistararliða. Þá vann Manch.
Utd. Gornic Zabre Póllandi 2—0,
'0—0 í hálflei'k.
í keppni bifcarmeistara varð
jafntefli milli Standard Liege og
Milano 1—1. Báðir leikirnir eru
fyrri leikir liðanna í 8 liða úr-
slitakeppni.
leiknum, og skot liðsins heppnuð
ust. mjög vel ekki sízt í saman-
burði við fyrri leikinn. Liðið
fann einnig greiðari leiik gegn
varnarleik Íslendinganna. Rúm-
enSka liðið var og breytt og til
hins sterkara að mun.
Mörk íslands skoruðu: Geir
Hallsteinsson 5, Örn Hallsteins-
son 3, Ingólfur Óskarsson 2,
Gunnlaugur, Einar Magnússon,
Guðjón og Ágúst Ögmundsson
eitt hver.
Mörk Rúmena skoruðu: Nica
2 Costadhe 4, Licu 3, Gunes 3,
Gatu 4, Speck 4 og Parasdhiv 3.
Dómari var hinn sami og fyrr,
Simanovic frá Júgóslavíu.
f islenzka liðinu léku nú:
iÞors'teinn og Logi mark'verðir
og síðan Gunnlaugur, Jón Hjalta
lín, Örn og Geir Hallsteinssyn-
ir, Guðjón Jónsson, Einar Magn-
ússon, Stefán Sandlholt, Ingólfur
og Ágúst Ögmundsson. Þeir sem
enn hvíldu voru Hermann Karl
og Birgir markvörður.
Geir Hallsteinsson
— skoraði 5 mörk af 14.
Bandaríski stangarstökkvar
inn Bob Seagren vann á inn-
anhúss íþróttamóti í New Yo
Madison Square Garden í
stökki sem mældist 5,03 metr-
ar. Annar var Finninn Erkki
Mustakari á sömu hæð og
þriðji Bandaríkjamaðurinn
Denis Phillips, en hann stökk
einnig 5,03 metra.
--------- — --------------------- .. .. •
Olympíusveitin
Islendingar taka þátt
\ Olympíumóti í hridge
3 .ÞÁTTTAKA í Olympíumóti í
Bridge í Deauville í Frakklandi
dagana 5.—21. júní 1968, hefur
nú verið ákveðin.
Bridgesambandsnefnd hefur
valið eftirtalda menn:
Cuðmundur Þórarinsson:
^srjcí lóíjjró ttciópjci (í
EFTIR nokkurra ára dvöl í
Svíþjóð, þar sem þjálfun
frjálsíþróttamanna var aðal
starf mitt, kom ég heim í
sumar er leið og hóf þjálfun
hjá ÍR. Mjög margir íþrótta-
menn hafa lagt fyrir mig ó-
tal spurninga um þjálfun
og ýms tækniatriði. Ég hefi
reynt að svara eftir beztu
getu, en flestar spurningarnar
hafa verið um sömu atriðin.
Fyrir velvilja ritstjóra
íþróttasíðunnar fæ ég birtan
stuttan þátt í bblaðinu á mið-
vikudögum eða fimmtudögum.
Mun ég í þessum þáttum
reyna að svara ýmsum spum-
ingum, sem fyrir mig hafa
verið lagðar og gefa ráð og
leiðbeiningar, sem ég tel að
ættu að ná til alls frjálsíþrótta
fólks landsins.
Með þessu fyrirkomulagi
hyggst ég vinna tvennt. í
fyrsta lagi: Það eru fleiri en
þeir, sem spyrja, sem hafa við
sömu vandamál að glíma. Geta
þeir því einnig tileinkað sér
það úr svörum mínum i kom-
andi þáttum, sem þeir telja
þess virði og að nothæft sé.
Ég veit af áratuga reynslu
sem þjálfari, að allir geta
ekki notfært sér allt, sem
þjálfarinn kennir. Ekki vil ég
heldur halda því fram, að álit
mitt sé það eina rétta. Þess-
vegna vil ég strax biðja þá,
sem þætti mína munu lesa,
að taka þá ekki, sem hið eina
rétta þótt á prent sé þrykkt.
f öðru lagi hyggst ég með
þessum þáttum spara mér
vinnu með því að losna eins
og auðið er við að þurfa sí-
fellt að vera að svara sömu
spurningunum. Þá er það og
álit mitt að prentað svar komi
betur að gagni en munnlegt
svar. Það má geyma og það
helzt óbreytt, meðan minni
okkar er ekki alltaf í sem
beztu ásigkomulagi.
Auk þess hefi ég, sem með-
limur útbreiðslunefndar FRÍ,
lofað, eftir því sem tími minn
leyfir, að hjálpa þeim, sem
ekki njóta aðstoðar þjálfara
við æfingar sínar, og hyggst
ég nota þessa þætti í því
skyni.
Guðmundur Þórarinsson
Ásmundur Pálsson, Hjalti
Elíasson, Stefán J. Guðjohnsen,
Eggert Benónýsson, Símon Sím-
onarson og Þorgeir Sigurðsson.
fslandsmót í bridge hefst í
Domus Medica laugardaginn 6.
apríl 1968.
Nú eru komnar út keppnis-
reglur um bridge á vegum
Bri-dgesambandsins. Er meining-
in að löggilda keppnisstjóra
fyrir hvert félag.
Norðurlandamót í Bridge 1968
verður haldið í Gautaborg dag-
ana 20.—25. maí.
Eftirtalin pör voru valin af
Landsliðsnefnd Bridgesambands
ins:
1) Jón Arason, Sigurður Helga-
son.
2) Benedikt Jóhannsson, Jó-
hann Jónsson.
3) Lárus Karlsson, Ólafur H.
Ólafsson.
4) Jón Ásbjörn-sson, Karl Sigur-
hjartarson.
5) Óli Már Guðmundsson, Páll
Bergsson, til vara Hilmar
Guðmundsson og Jakob Bjarna-
son.
Landsleikur milli Skota og ís-
lendinga verður háður í Rvk.
dagana 3.,4. og 5. maí n.k. og
þar að auki mun skozka sveitin
leika afmælisleik við Bri-dgefé-
lag Reykjavíkiu', sem verður 25
ára að vori komandi.
Flugfélag íslands hefur nú í
þessu tilefni gefið bikar til
keppninnar.
Bri-dgemenn hafa nú hlotið 40
þús. króna styrk fró Reykjavík-
urborg í farareyri, en óvist er,
hvort rífcið muni styrkja þá að
nokkru leyti. Ferðir þeirra eru
að öðru leyti styrktar með
ágóða af firmakeppni. Álíta þeir,
að betri árangur myndi nást ef
þeir ættu ekki við eilífan fjár-
skort að etja.
Norðurlandamótssveitin