Morgunblaðið - 29.02.1968, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. FEBRÚAR 196«
15
Aukin verði rekstrar
ián til landbúnaöar
— Samþykkt Bú^aðarþ^nf|$
Þannig var aðkoman í einni stofunni.
Aðvörun frá rannsóknarlögreglunni:
Bjdðið ei hættunni heim!
UNDANFARIN ár hafa innhrot
og' þjófnaðir úr íbúðum farið
nokkuð vaxandi, en fólk virðist
enn vera mjög andvaralaust
gagnvart þeirri haettu er heimil-
um þeirra stafar af innbrots-
þjófum. Sökum þessa, telur
rannsóknarlögreglan fulla
ástaeðu til þess að láta eftirfar-
andi aðvaranir frá sér fara, í
þeirri von að fólk eigi betra með
að varast hætturnar:
1. „Bjóðið aldrei innbrotsþjófi
inn“, með því að gefa til kynna
að þér séuð ekki heima. Ef þér
verðið a'ð heiman í marga daga
t.d. í sumarfríi, komið því þá
þannig fyrir að dagblöð safnist
ekki fyrir í bréflúguopi, látið
stöðva heimsendingar í bili, eða
gerið aðrar ráðstafanir, þann
tíma, Sem þér verðið að heim-
an.
2. Auðveldið ekki störf inn-
brotsþjófa, með því að skilja
útidyralykla eftir undir ,,mott-
um“ eða annarsstaðar, þar sem
þeir eru auðfundnir. Takið þá
heldur með yður.
3. Skiljið aldrei eftir miða í
hurð, hvorki til ættingja né
kunningja er þér kynnuð að
eiga von á, sem segir að þér
hafið skroppið frá rétt sem
snöggvast en munið koma fljót-
lega aftur.
4. Skiljið glugga aldrei eftir
opna, ef þér þurfið að fara frá
íbú'ðinni, einhvern tíma.
5. Ef þér þurfið að vera að
heiman í nokkra daga eða svo,
fáið þá einhvern ættingja yðar
eða kunningja til að líta eftir
íbúðinni.
6. Geymið peninga, banka-
bækur eða önnur verðmæti á
öruggum stað.
getur afleiðingin oi'ðið svipuð
því sem sést á meðfylgjandi
myndum, og slíkt tjón fæst ekki
bætt nema að heimilið sé tryggt.
Rannsóknarlögreglan
í Reykjavík.
BÚNAÐ ARÞING samþykkti í I
gær ályktun um afurðalán og
rekstrarfjárþörf landbúnaðarins.
Er í henni skorað á Seðlabanka
íslands að auka stórlega rekstr-
lán til landbúnaðarins svo og að
endurgreiða viðskiptabönkum
og sparisjóðum bundið fé sitt hjá i
Seðlabanka, svo að þeim sé gert I
kleift að auka rekstrarlán sín
til landbúnaðar.
Ályktun Búnaðarþings var
samþykkt samhljóða og er hún
svohljóðandi:
„Upplýst er, að rekstrarlán til
landbúnaðarins hafa staðið
óbreytt í krónutölu frá áriinu
1959 og hafa því taunverulega
lækkað mikið, miðað við fram-
ieiðslumagn og verðgildi. Þar
við bætist, að á árinu 1968 munu
verðhækkanir á áburði og fóð-
ur.bæti, svo og magnaukning
þessara vara leiða af sér 40—
50% hækkun á rekstrarfjánþörf-
inni, nema til komi veruleg
niðurgreiðsla á áburðarverði.
Því beinir Búnaðarþing þeirri
eindregnu áskorun til stjórnar
Seðlabanka íslands að auka stór
lega rekstrarlán til landbúnað-
arins. Jafnframt verði viðskipta-
bönkum og sparisjóðum gert
kleift að auka þennan hátt lána-
starfsemi sinr.ar, m.a. með því
að endurgreiða þeim bundið fé
þeirra hjá Seðlabankanum.
Þá skorar þingið á stjórn
Seðlabankans að endurgreiða
bundið fé innlánsdeilda sam-
vinnufélaga og bæta þannig
nokkuð úr rekstrarf járskortin-
um“.
í greinargerð fyrir ályktun-
inni segir, að rekstrarlán til land
búnaðarins nemi nú 161 millj.
kr. og séu þau veitt út á sauð-
f járframleiðslu .Þessi lán hafi
sfaðið óbreytt í krónutölu frá
árinu 3959 og hafi því ráungildi
þeirra lækkað og gegni þau nú
á engan hátt upphaflegu hlut-
verki sínu.
Þá segir í greinargerð, að notk
un áburðar og fóðurmjöls muni
aukast á þessu ári. Hins vegar
hafi geng'sbreytingin í nóv. verk
að með fullum þunga á verð
innflutts fóður og á-burðar, og
muni því rekstrarfjárþörfin
vegna fóðurmjöls- og áiourðar-
kaupa aukast um nær þriðjung
frá fyrra ári. Áburðarverksmiðj-
an hafi undanfarið veitt 6—9
mán. greiðslufrest á áburði, gegn
trygg’ngu í víxlum, er viðskipta
aðilar hennar hafa samþykkt.
Hinsvegar hafi nú komið í ljós
erfiðleikax hjá víxilþegum með
að greiða víxla sína, og stofni
það nú ránstrausti verksmiðj-
unnar í hættu erlendis. Því
verði að leggja aukna áherzlu á
endurkaup Seðlabankans á þess
um víxlum.
Framh. á bls. 30
Þriðjungur brezkra sjómanna
hefur ónógan hlífðarfatnað
1
— segir í skýrslu, sem dr. Criffith
Pugh hefur gert um athugun sína
á sjóslysum við Island
Ufsi og loðno tU
Norðfjorðoi
NORÐFIRÐI, 27. febr. — f gær
k'am Sveinn Sveinbjörnsson inn
með 900 tonn af fiská, en hann
hefur verið á netaveiðum. Magn-
ús kom m.eð 30 lestir. Og í nótt
komu Barði með 30 lestir og
Bjartur með 20 lestir. Er aflinn
mestmegnis ufsi hj'á báðum.
Bræðslan er búin að taka á
móti 2000 tonn-um af l'oðnu og
byrjaði brœðslu í dag. Hefur
ekki verið gefin út tilkynning
um að hætt sé að taka á móti
loðnu. — Á.L.
Hér fór þjófurinn ómjúkum
höndum um leirtauið.
7. Gleymið ekki að læsa „úti-
dyrum“ íbúðarinnar ef þér ætl-
i’ð að horfa á sjónvarpið.
8. Hafið íbúð yðar læsta jafnt
á degi sem á nóttu.
9. Hafið læsingar á hurðum
og gluggum örruggar.
10. Tryggið heimili yðar fyr-
ir skemmdum, sem innbrots-
þjófar kunna að valda, fáið yð-
ur t.d. heimilistryggingu.
Það kostar lítinn pening að
verja heimili sitt fyrir óboðn-
um gestum, en sé það ekki gert,
Ekið á kyrr-
stæðan bil
E'KIÐ var á bílinn R-18527, sem
er ljósgrænn Volkswagen, þar
sem bíllinn stóð á stæði við
verzlunina Edinborg Laugavegi
milli klukkan 17.00 og 19.00 24.
fébrúar. Við ákeyrsluna dæid-
ðist vinstra f-rambretti á
R-18527 mikið.
Rannsóknarlögreglan biður
ökumannim.n, sem tjóninu olli
svo og vitni að gefa sig fram.
BREZKA dagblaðið „The
Times“ skýrði svo frá um
síðustu helgi, að frumrann
sókn á sjóslysunum, er
þrír brezkir togarar fórust
við Island í síðasta mán-
uði, hafi leitt í ljós, að
meira en þriðjungur
brezkra sjómanna fari til
sjós án þess að hafa til-
hlýðilegan hlífðarfatnað.
Dr. Griffith Pugh, sem kom
til íslands til þess að rann-
saka málið, 'hefur lagt fram
skýrslu, þar sem þetta kemur
fram o.g iiann hefur ein.nig
sagt í viðtali við blaðið, að
'hver sá, sem fari á veiðar við
Norður-ísland án hæf ílegs
ihlifðarfatnaðar, megi teljast
dauðadæmdur.
Brezka læknaráðið sendi
Puglh til íslands og skýrsla
ihans var lögð fyrir það. Hann
leggur áherzlu á í skýrslu
•sinni, að nauðsynlegustu ör-
yggisráðstafanir, sem gera
þurfi fyrir brezka sjómenn,
muni ekki kosta togaraútgerð
ina ýkja miikið fé. Hann bend
ir á, að brezki flotinn hafi
gengizt fyrir rannsókn á að-
stæðunum við ísland og þar
hafi komið fram tillögur, sem
hefðu getað reynzt haldgóð-
ar til verndar og öryggi's, ef
eftir þeim hefði verið farið.
Pug*h segir, að eitt af því,
sem sjómennirnir þurfi að
nota s'é tvíski.ptur plast-nylon
klæðnaður, sem er ekki miklu
dýrari í frarnleiðslu en plast-
regnkápur .Segir hann og, að
slíkur hlífðarfatnaðuT sé að
mörgu leyti mikil'vægari en
bj'öngunarvestin. Hann segir
ennfremur ,að því fari fjarri,
að allir brezkir togarar noti
nýjustu gerðir björgunarvesta
og tilgreinir einn togaramann
anna sem fórust, er var í
'björgunarvesti af gamalli og
úreltri gerð.
Annar maður, sem fórst,
s'egir dr. Pugih, að ’hafi verið
'haldinn aivarlegum hjarta-
sj'úkdómi, sem fram hefði
komið jafnvel við yfirborðs-
kennda læknisrannnsókn.
S'á maður át'ti sér eniga
lí'fsv'on, ef að hann lenti
í hrakninguim við ísland.
Tveir menn af Ros'S Cleve-
land sagði hann að hefðu
farizt vegna þes.s, að þeir
h'efðu ekki ihaft nógu góð
hlifðarföt
Dr. Puglh segir, að samtal
sitt við Harry Eddiom, sem
kom'st rífs af af Ross Cleve-
land, hafi leitt í lj’ós, að ekki
hafi verið mikil ísing á tog-
aranum, en hann hafi fengið
á sig mjög harða vindsveipi.
Leggur dr. Pugh til, að meðal
brýnustu öry'ggistækja í tog-
urum verði vindmælir. Segir
hann að vísu, að reyndustu tog
aramenn segi, að eftir tuttugu
ár á sjónum þurfi þeir ekki
vindmæla til að segja sér,
hversu hvasst sé. Hann stað-
■hæfir á hinn bóginn, að þegar
vindihraðinn sé kominn yfir
80 hnúta, sé það á einskis
manns færi að greina muninn
t.d. á 80 hnúta og 120 hnúta
vindlhraða.
Einnig segir Puglh, að nota
þurfi nýja gerð af -sj'álfvirk-
um radíósenditæ'kjum, sem
auðvelt væri að taka með í
fojörgunarbátana og senda
n-eyðarskeyti þaðan. Ekki
taldi hann ástæðu til að gera
eins miklar öryggisr'áðstafan-
ir og íslendingar, en kvað þó
gott að hafa veðurs'kip í nám-
unda við togarana, — og
Iiækna- og hjúkrunarskip.
Þá segir „The Times" í frétt
ur frá Hull, að eiginkonur
togarasjómannanna 'hafi sbofn
að með siér Samtök, en jafn-
framt látið sambandi verka-
manna það eftir, að berjast
fyrir auknu öryggi sjó-
manna. Frú Lilian Bil'occa
■hafði fongöngu um félags-
sbofnunina, en við for-
mannskjör varð ’hún að
lúta í lægra haldi fyrir ann-
arri konu yngri, frú Mary
Dennesse. Ásamt þeim í
stjórn er frú Christine Small-
bone, systir skiipstjórans á
Ross Cleveland.
Einnig segir „The Tknes“
frá því ,að þótt veðurofsann
kunni að hafa lægt við ís-
land geysi erunþá vindar um-
hverfis höfuð Bills Mallalieus
verzlunarmálaráðherrans,
sem skipaði rannsóknar nefnd
ina, er á að kanna, hvernig
bætt verði öryggi brezkra
sjómanna. Togaraeigendur
brugðust reiðir við, er þeir
fréttu að hann ætlaði að
skipa í nefndina prófessor
Riohard SohiUing, sem hefur
verið einn 'harðasti gagnrýn-
andi togaraútgerðarinnar í
Bretlandi. Ekkert er ennþá
ákveðið um skipan Scfhillin.gs,
en Mallalieu ikveðst ekki hika
við að skipa hann ef hann
tel'ji það rétt, hvað svo sem
togaraeigendur segi.