Morgunblaðið - 08.02.1974, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. FEBRUAR 1974
Olga vegna undirboðs SIS
á íslenzkum vinnumarkaði
MIKILólga er nú medal forstöðu-
nanna prjónaslofa víðs vesar um
land, einkum þö í Norðurlands-
i.jördæmi vestra, ve«na samnings
Sainbands ísl. samvinnufélaga við
Ameriean Express um sölu á um
13 þúsund prjónakápum til
Bandaríkjanna. Telja þeir, að SIS
hafi náð þessum samningi með
brögðum, kápa þeirra sé ótrúlega
lík kápu. sem hönnuð var á veg-
um Álafoss fvrir prjónastofu á
Austurlandi og að SIS hafi verið
fært að bjóða lægra verð ineð því
að fá Prjónastofu Borgarness til
að prjóna og sauina kápuna í
verksmiöju sinni í Skotlandi, þar
sem sé láglaunasvæði. Þannig sé
SlS í revndinni að undirbjóða ís-
lenzkan vinnumarkað og fvrir
bragðið standi fjöldi prjönastofa
hér heima, sem hafi reitt sig á að
fá hluta úr þessu verkefni, uppi
verkefnalaus og vfir 200 inanns
at vinnulausir.
Eftir heimildúm, sem Morgun-
blaðið hefur aflað sér, mun upp-
haf þessa máls vera, að á siðasta
ári fór Álafoss að undirbúa sainn-
inga þessa árs við American
Express, sem það hefur skipt \ið
á undanförnum ái'um. Var þá Eva
Vilhjalmsdóttir tízkuteiknari m.a.
fengin til þess á vegum Alafoss að
hanna kápu fyrir Prjónastofuna
Dyngju á Egilsstöðum. Þegar
samningar væru komnir f kring
var síðan gert ráð f.vrir, að káp-
urnar yrðu sauinaðar í prjónastof-
um víða um land, aðallega þó í
bæjum og þorpum í Nörðurlands-
Iðnverkafólk
mótmælir
MORGUNBLAÐINU hefur
borizt fréttatilkvnning frá
Landssambandi iðnverka-
fölks. þar sem segir, að á
stjórnarfundi í gær hafi
verið gerð eftirfarandi sam-
þykkt:
Stjórn Landssambands
iðnverkafólks mótmælir ein-
dregið þeirri ráðstöfun
Prjónastofu Borgarness að
flvtja út prjónavoðir til að
sauina úr þeim erlendis,
þegar nægur mannafli og
vélakostur er innanlands, til
að anna því verkefni.
Skorar stjórn landssam-
bandsins á Alþingi og við-
komandi stjórnarvöld að
gera tafarlausar ráðstafanir
til þess að slík öþurftarverk
verði ekki endurtekin.
kjördæmi vestra. Bæði þessi fyr-
irtæki — Alafoss og Dyngja —
lögðu í töluverðan kostnað við
undirbúning á hönnun þessarar
kápu. Voru sýnishorn af henni
send til dótturfyrirtækis Álafossí
Bandaríkjunum, leeland Import,
sem setti kápurnar til í sölu hjá
Ameriean Express til reynslu.
Likaði kápan vel, en nokkur
ágreiningur varð um verð á káp-
unum. Þótti forráðamönnum
Ameriean Express það of hátt, en
þá höfðu koinið til tvær gengis-
hækkanir hér heima og valdið
þessari verðhækkun.
Framkvæmdastjóri Ieeland
Import á þessum tíma var Phil
Koehenberfer, sem nú er hættur
störfum. Híns vegar hefur Morg-
unblaðið það eftir traustum heím-
ildum, að Koehenberfer hafi sið-
asta mánuðinn, sem hann starfaði
hjá leeland Import, gerzt eins
konar umboðsmaður keppinauts-
ins, SÍS, og þá þegar byrjað að
vinna að því, að SÍS fengi samn-
inginn við Ameriean Express. Er
því haldið fram, að hann hafi far-
ið með kápu þá, sem hönnuð var
f.vrir Dyngju, til American
Express, þar sem henni hafi verið
breytt nokkuð og hún síðan send
hingað heim tH Sambandsins með
fyrirmælum um að þannig ætti
hún að vera.
Því er einnig haldið fram, að SÍS
hafi verið unnt að bjóða lægra
verð á kápurnar með því að hafa
Prjónastofu Borgarness f bak-
höndinni og aðstöðu hennar f
Skotlandi. Var þar gert ráð fyrir,
að Gefjun legði til loðbandið, sem
Prjónastofa Borgarness síðan
prjónaði efnið úr og léti sauma
það f verksmiðju sinni í Skot-
laridi, þar sem kaupgjald er mun
lægra en hér. Þess má geta, að
einn af aðstandendum Prjóna-
stofu Borgarness er Halldór E.
Sigurðsson fjánnálaráðherra.
Þá ríkir mikil reiði meðal for-
ráðamanna prjónastofanna með
hlut iðnaðarráðherra i þessu
máli. Þeir telja sig hafa vissu fyr-
ir því, að iðnaðarráðherra hafi
setið fund með forráðamönnum
iðnaðardeildar SÍS um hugsan-
lega fyrirgreiðslu til handa SÍS
vegna verðtregðu Rússa hvað
snertír kaup á ullar-og prjónavör-
um. Benda þeir á, að iðnaðarráð-
herra hafi ekki veitt öðrum iðn-
fyrirtækjum neina svipaða fyrir-
greiðslu þrátt fyrir, að þau hafi
mátt þola tvær gengishækkanir á
siðasta ári. Þykir þeim SÍS vera
orðið algjört öskabarn þessarar
ríkisstjórnar. i hópi framámanna
iðnaðarins er hins vegar einkum
fett fingur út í að ákveðið skuli
vera að kápurnar verði saumaðar
ELDUR kom upp við fæðingar-
deild Landspítalsans í gær og var
þar um tíma töluvert hættu-
í Skotiandi áður en gengið er úr
skugga um hvort ekki sé hægt að
dreifa kápunum til saums á hinar
ýmsu prjónastofur hérlendis.
ástand. Engan sakaði þö og tókst
fljötlega að slökkva eldinn.
Framhald á bls. 22
Hér má sjá afstöðuna milli tauskúrsins, þar sem eldurinn kom upp, og
fæðingardeildarinnar en eldurinn barst í hana eftir rennunum, sem
sjást á myndinni. (Ljósm. Ól. K. IM)
Eldur í fæðingar-
deildinni í gærdag
Hinrik KÓ hætt kominn — Lagðist
á hliðina í mynni Reyðarfjarðar
Eskifirði 7. feb.,
frá Þórleifi Olafssyni blm. Mbl.
ÞAÐ óhapp vildi til, er loðnuskip-
ið Hinrik KÓ 7 \ar að koma með
fullfermi af loðnu, 210 tonn, til
Eskifjarðar á níunda tímanum í
morgun, að það lagðist á hliðiua í
invnni Revðarfjarðar. Bátur var
sendur frá Eskifirði með dælu,
sein komið var um borð í Ilinrik
og tókst að dæla burt sjö, sein
komi/.t liafði í bakborðsgang
skipsins og koinst Hinrik klakk-
laust til Eskifjarðar þar sem
Sólkross
ÁSATRUáRFELAGIÐ hefur
látið gera táknmerki til að
ininna ó 1100 ára byggð á is-
landi og verður merkið fram-
leitt sem barmmerki. Er það
sólkross bundinn rúnum, gerð-
ur af silfri á bláum grunni.
Utan um er áletrunin „1100 ár
Íslands" bæði á latínuletri svo
og á rúnaletri. Einnig hefur fé-
lagið látið gera kingu úr silfri,
sem táknar heimsmynd ásatrú-
ai'innar eins og henni er lýst í
Eddunum. Myndin sýnir merki
Asa tr ú arf él ag si ns.
aflanum var landað úr bonuin í
dag.
,.Það sem kom fyrir," sagði
Garðar Finnsson skipstjóri og
eigandi Hinriks, „var, að
hurðarlæsing á bakborðs-
gangi skipsins bilaði og við
það hálffylltist gangur-
inn af sjó og skipti þá engum
togum, að skipið lagðist á bak-
borða og för lunningin alveg í kaf.
Ég get ekki neitað því, að ástand-
ið var um tíma nokkuð alvarlegt,
en þetta bjargaðist allt giftusam-
lega."
Þarna sem Hinrik lá með mikla
slagsíðu f mynni Reyðarfjarðar
hafði skipstjórinn samband við
báta, sem lokið höfðu löndun á
Eskifirði og fór einn báturinn,
Skinney SF 20, Iiinrik til Itjálpar
og hafði meðferðis kraftmikla
brunadælu, sem fékkst hjá
slökkviliðinu á Eskafirði. Vel
gekk að koma brunadælunni um
borð í Hinrik og var fljótlega
hægt að byrja að dæla sjó úr
bakborðsganginum. Við það rétti
skipið sig nokkuð, og hægt var að
setja á ferð til Eskifjarðar. Sigl-
ingin inn Reyðarfjörð gekk að
óskum, en af og til þurfta bátur-
inn að sigla i hringi til að rétta sig
af. Kom Hinrik til Eskifjarðar
klukkan rúmlega 12 í dag og var
strax hafizt handa við að landa úr
skipinu.
Loðnuna hafði skipið fengið
vestan við Ingólfshöfða og lagði
af stað til lands kl. 4.00 í gær. Allt
hafði gengið að öskum þangað tii
hurðarlæsingin bilaði. Sjórinn
mun engum skemmdum hafa
valdið um borð í skipinu en þess
má geta, að sjór komst einnig
fram undir hvalbak skipsins.
Hinrik er 250 rúmlestir að
stærð, smiðaður í Stralsund í
Austur-Þýzkalandi 1959. Skipið
hét áður Ilafrún og var þá gert út
frá Bolungarvík, en nú er eigandi
skipsins Garðar Finnsson, keypti
hann það fyrir tæpum þremur
árum.
Hangi-
kjöt
108%
348 kr.
114. ian.
11974
167 kr
1. ág. “
1971
ILekkun í (íð vinstri stjórnar.
Fjörlegt
tónlistarlíf
á Akureyri
TO NLISTARFÉLAG Akureyrar
mun láta mjög að sér kveða um
næstu helgi. A laugardag klukkan
5 gengst það fyrir tónleikum í
konsertsal Tónlistarskólans. Þar
koma fram Sigríður E. Magnús-
dóttir söngkona og Jónas Ingi-
mundarson píanóleikari. Sigríður
svngur lög eftir Árna Thorsteins-
son, Sigfús Einarsson, Pergólesi,
Martini, Grieg, Sibelius o.fl., en
Jónas mun leika verk eftir Svein-
björn Sveinbjörnsson, Mozart,
Sehumann, Raehmanin'off, Prók-
óféff og Villa-Lobos.
A sunnudagskvöld heldur
félagið kvöldskemmtun I Sjálf-
stæðishúsinu með miklum söng
og hljóðfæraslætti. Þar koma þau
Sigríður og Jónas fram aftur, en
að aúki allmargt söngfólk á Akur-
eyri, svo sem Ilelga Alfreðsdöttir,
Kristján Jóhannsson, Þuríður
Baldursdóttir, og Lilja Hallgrims-
dóttir. Undirleikarar verða Helen
Longworth og Soffía Guðmunds-
dóttir. Á eftir leika Ingimar
Eydal og hljómsveit hans djasslög
og munu að lokum leika undir
almennum söng og fyrir dunandi
dansi.
— Sv.P.
Iþróttahandbók
NÝLEGA hefur bókaútgáfan
Fjölvís sent frá sér „Íþróttahand-
bókina 1974". Er þar um að ræða
vasabók með almanaki fyrir árið
1974, i svipuðu formi og vasabæk-
ur Fjölvíss hafa verið. í bók þess-
ari er svo að finna ýmsar upplýs-
ingar um íþróttahreyfinguna,
landsleiki, Íslandsmet og fl. Síð-
asti kafli bókarinnar fjallar svo
um skyndihjálp.
Allar tölur og upplýsingar um
formenn sérsambanda eru mið-
aðar við 1. september s.l.
Ritstjóri iþróttahandbókarinn-
ar er Sigurdór Sigurdórsson.