Morgunblaðið - 08.02.1974, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. FEBRUAR 1974
3
Könnun um
varnarmál
FRÆÐAFÉLAG Menntaskólans
við Hamrahlíð gekkst fyrir skoð-
anakönnun um afstöðu nemenda
til varnamálanna þann 1. febrúar
s.i.
Af 820 nemendum, sem í
skólanuin eru, gafst 550 kostur á
þátttöku í könnuninni, en af þeim
gerðu 375 skil.
Spurt var þriggja spurninga:
1. Vilt þú, að hér verði áfram
erlendur her.
2. Vilt þú, að herstöðin verði
flutt frá Keflavikurflugvelli á
annan stað á landinu?
3. Viltþú, að tsland verði áfram
i NATO?
Eins og fyrr segir tóku 375 þátt
í könnuninni af þeim 550, sem
áttu þess kost. 347 svör bárust við
fyrstu spurningunni, og skiptust
þau þannig, að 41 vildi hafa hér
óvopnaða eftirlitsmenn, 77 vildu
hafa hér vopnaða hermenn eða
eftirlitsmenn, 215 vildu hvorki
vopnaða eða óvopnaða hermenn
og eftirlitsmenn á landinu, en 14
höfðu ekki tekið afstöðu til þess,
sem um var spurt.
Annarri spurningunni svöruðu
346. Af þeim vildu 11, að herstöð-
in yrði flutt á annan stað á land-
inu, 93 vildu hafa hana áfram á
Keflavíkurflugvelli, 225 viidu, að
hún yrði lögð niður, og 17 höfðu
ekki myndað sér skoðun.
352 svör bárust við spurning-
unni um það, hvort ísland ætti að
vera áfram í NATO, og voru þau á
þann veg, að 131 var þvi fylgj-
andi, 188 á móti, en 33 höfðu ekki
tekið afstöðu tilþess.
Lýst eftir öku-
manni og vitnum
UM KL. 17 á miðvikudag varð
umferðarslys á bílastæðinu fyrir
framan áfengisútsöluna að
Laugarásvegi 1. Drukkinn maður
hrasaði fyrir bii, en taldi sig ekki
meiðast. En síðar kom í Ijós, að
hann var fótbrotinn. Ökumaður á
SAAB-bil, sem var þarna nær-
staddur, er beðinn að hafa tal af
rannsóknarlögreglunni vegna
þessa óhapps, svo og ökumaður
bílsins.sem maðurinn varð fyrir.
Ritstjórnarfull-
trúi og erlendur
fréttastjóri Vísis
DAGBLAÐIÐ Vfsir skýrir frá því
f gær, að Haukur Helgason hafi
verið ráðinn ritstjörnarful Itrúi
blaðsins og Björn Bjarnason
fréttastjóri erlendra frétta.
Björn Bjarnason er lögfræðing-
ur að menntun. Hann hefur að
undanförnu verið útgáfustjóri
Almenna bókafélagsins en auk
þess hefur hann skrifað mikið af
greinum i Morgunblaðið um
öryggis- og alþjóðamál og verið
einn af umsjónarmönnum sjón-
varpsþáttarins Ileimshorns:
Haukur Helgason er hagfræð-
ingur og viðskiptafræðingur að
mennt. Hann hefur starfað við
dagblaðið Vísi s.l. 5 ár og m.a.
skrifað þar greinar um erlend
málefni, auk almennra frétta.
Minningarsýmng
í Bogasal
Minningarsýning um Gisla Kol-
beinsson stýrimann stendur nú
yfir í Bogasal Þjóðminjasafnsins.
Þar eru sýnd 55—60 málver hans.
Sýningin stendur fram yfir helgi.
Kópavogur
ARSHÁTIÐ sjálfstæðisfélaganna
í Kópavogi verður haldin í Skip-
hóli i Hafnarfirði í kvöld kl. 19.00
og hefst með borðhaldi. Guðrún
Á. Símonar skemmtir og fleiri
skemmtiatriði verða.
OG SVO var hún lent og nefið var aftur hækkað
(myndin til vinstri). Hún er rennileg eins og píla og
það vakti athygli hversu agnarlitlir gluggarnir voru.
Hún var merkt Air France öðrum megin en British
Airways hinum megin en það eru einu flugfélögin,
sem hafa lagt inn ákveðnar pantanir.
Á myndinni til hægri er André Toucas flugstjóri. Að
baki honum er Jacques de Latour Dejean, sendiherra
Frakka á fslandi. (Ljósm. Mbl. Sveinn Þormóðsson).
ÞEGAR CONCORDE
KOM TIL KEFLAVÍKUR
VtÐ yorum um fjörutíu mínút-
inn á undan Concorde til Kefla-
víkur þegar hún lenti þar 1 gær,
fyrst hljöðfrárra farþegaþotna.
Við Iögðutn re.vndar upp frá
Reykjavfk en hún frá Toulouse
f Frakklandi, svo það var
kannski ekki alveg að inarka.
Það var töluvert slangur af
flugáhugainönnuin og Ijós-
•inynduruin meðfram flugbraut-
inni og þeir börðu sér og stöpp-
uðu niður fótunuin enda var all
hvasst og fimin stiga frost.
En þolinmæði þeirra var vel
launuð þegar Concorde sveif
inn til lendingar. Vegna þess að
hún er hönnuð til að fljúga með
tvöföldum hljóðhraða er hún
mjög straumlínulöguð, nánast
eins og spjót i laginu og þar
sem hún þarf að koma til lend-
ingar með nefið mjög hátt uppi
voru settar á það „hjarir" þann-
ir, að flugstjórinn getur látið
það síga niður til að fá betra
útsýni.
Það var nokkur hliðarvindur
svo hún kom inn á ská og
óþægilega lengi stefndí hún
beint á hópinn, sem stóð utan
við flugbrautina og beið henn-
ar, Menn voru rétt að setja sig í
hlaupastellingar þegar flug-
stjórinn dró af hreyflunum og
setti hana mjúklega niður á
miðja braut.
Þar sem Bretar og Frakkar
standa saman að smiði
Concorde voru sendiherrar
þessara tveggja landa viðstadd-
ir komuna, sömuleiðis Björn
Jónsson samgönguráðherra,
Agnar Kofoed-IIansen flug-
málastjóri og forstjórar flug-
félaganna.
Andre Toucas var flugstjóri i
þessari fvrstu ferð Concorde til
íslands en hann hefur unnið
við Concorde-áætlunina frá
upphafi og flaug vélinni í
fyrstu reynsluferðinni. Hann
varð einnig fyrstur til að fljúga
henni hraðar eh hljóðið.
— Ferðin hingað gekk vel
eins og við höfðum búizt við og
við flugum með tvöföldum
hljóðhraða i um eina klukku-
stund. Það eru um 2.200 kíló-
metrar á klukkustund og við
vorum í 54.500 feta hæð. (Yfir-
leitt fljúga „venjulegar far-
þegarþotur" i um 30—35 þús-
und fetum). Héðan förum við
svo beint til Alaska en tilgang-
urinn með þessari ferð er að
reyna vélina í miklum kulda.
Það erað vísu nokkuð svalt hér
á islandi i dag en við þurfum
miklu meiri kulda til að verða
ánægðir. Helzt vildum við fá
svona mínus 20—30 stig á
Celsius. Vélin er nú hlaðin alls
konar mælitækjum og þetta er
liður í áætlunum um „gjör-próf
un" á henni áður en hún verður
tekin i notkun sem farþegaflug-
vél.
— Nú á Concorde marga and-
stæðinga, sem finna henni flest
til foráttu, segja t.d. að hún geti
aldrei borið sig. Hvað viltu
segja um það?
— Það eru alltaf einhverjir,
sem eru á móti stórstígri þröun.
Þeim hefur einhvern veginn
ekki tekizt að aðlaga sig og þeg-
ar eitthvað jafn stórkostlega
nýtt og Concorde kemur fram í
dagsljósið geta þeir ekki sætt
sig við það. Það hefur alltaf
verið til svona fólk en framfar-
irnar hafa samt haldið áfram.
Margir voru á móti tunglferð-
um en það er samt búið að fara
þangað, hvað er óeðlilegra við
að fljúga hraðar en hljóðið.
— Concorde eyðir þrisvar
sinnum meira eldsneyti á hvern
farþega en t.d. risaþotan
Boeing 747. Hvernig getur hún
borið sig núna eftir gífurlegar
hækkanir á eldsneyti?
— Öll flugfargjöld verða dýr-
ari vegna þessa. Fai'gjöld með
Boeing 747 hækka og auðvitað
líka með Concorde, en þau
hækka bara hlutfallslega þann-
ig, að bilið á verðinu milli B-747
og Concorde eykst ekki. Það var
frá upphafi gert ráð fyrir, að
það yrði dýrara að ferðast með
Concorde en öðrum vélum. Við
erum sannfærðir um, að það er
nóg til af flugfarþegum, sem
Framhald á bls. 22
A.