Morgunblaðið - 08.02.1974, Qupperneq 10
10
MORGUNBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 8. FEBRUAR 1974
SUNNUD4GUR
10. febrúar 1974
17.00 Fíndurlekið efni
Sl. Jakobs drensjakórinn
Kór kirkju heilags Jakobs í
Stokkhólmi syngur i sjón-
varpssal. Félagar Ur
unglingakór kirkjunnar að-
stoða.
Söngstjóri Stefan Sköld.
Áður á dagskrá á jóladag
1973.
17.25 Frans litli
Sovésk leikbrúðumynd.
Áður sýnd i Stundinni okkar
á Þorláksmessu 1973.
Þýðandi Hallveig Thorlacíus.
17.40 Hættulegir leikfélagar
Sovésk mynd um sirkuslíf og
tamningu villidýra.
Þýðandi Lena Bergmann.
Áður á dagskrá 12. nóvember
1973.
18.00 Stundin okkar
Meðal efnis í þættinum er
norsk teiknimynd og mynd
um töfraboltann. Einnig
verður sýndur leikþáttur um
Hatt og Fatt og leikbrúðu-
mynd um Róbert bangsa, og
loks verður farið í Sædýra-
safnið, til þess að fræðast um
hrafna og refi.
Umsjónarmenn Sigríður
Margrét Guðmundsdóttir og
Hermann Ragnar Stefánsson.
18.50 Gftarskólinn
Gítarkennsla fyrir byrjend-
ur. 1. þáttur endurtekinn.
Kennari Eyþór Þorláksson.
19.30 Hlé
20.00 Fréttir
20.20 Veður og auglýsingar.
20.25 Það eru komnir gestir
Elín Pálmadóttir ræðir við
Sigurð Karlsson og Þóri
Björnsson í sjónvarpssal.
Sjónvarps- og útvarpsdag-
skráin er á bls. 29.
21.25 Þeir hafa skotið for-
setann
Leikin, bandarísk heimilda-
mynd um morðið á Abraham
Lincoln, Bandaríkjaforseta,
árið 1865, aðdraganda þess og
eftirmál.
Þýðandi og þulur er Ingi
Karl Jóhannesson.
22.15 Lygn streymir Don
Sovésk framhaldsmynd,
byggð á samnefndri skáld-
sögu eftir Mikhaíl Sjólókov.
2. þáttur.
Þýðandi Hallveig Thorlacíus.
Efni 1. þáttar:
I þorpinu Tatarsk búa
Kósakkar sig til herþjónustu
og konur þeirra fylgja þeim
Ur hlaði. Þeirra á meðal er
Aksínja, kona Stepans. Fljót-
lega eftir brottför eigin-
mannsins takast miklar ástir
með henni og Grígori, granna
þeirra hjóna. Faðir Grígorís
kemst að þessu og bregst
reiður við. Hann biður
stúlku, sem Natalja heitir, til
handa syni sínum, en
skammt er liðið frá brúð-
kaupinu, er Grígorí tekur að
leiðast hjónabandið. Hann
gerir upp sakirnar við föður
sinn og stekkur síðan á brott
með Aksínju. Þau ráða sig I
vist hjá hershöfðingja nokkr-
um. En brátt er Grígorí
kallaður ti! herþjónustu.
Hann særist lítillega og kem-
ur heim aftur, en kemst þá að
þvi, að Aksínja hefur verið í
tygjum við son hers-
höfðingjans. Grígorí ber þau
bæði til óbóta, og snýr að því
búnu aftur til föðurhúsanna
og löglegrar eiginkonu sinn-
ar.
24.00 Aðkvöldidags
Sviðsmynd frá upptöku á „Ugla sat á kvisti". Hér sést dansstaður
eins og hann gæti hafa verið á dixieland og jazzárunum 1945—50,
og Jónas R. Jónsson kynnir á laugardagskvöld.
I HVAÐ EB AÐ SJA?
Leif Panduro — höfundur leik-
ritsins „Heimur Adams“.
MANUDAGUR kl. 21.05
A SUNNUDAGSKVÖLD kl.
20.25 stjórnar EHn Pálmadóttir
blaðamaður rabbþættinum
ÞAÐ ERU KOMNIR GESTIR
þriðja sinni, en þau Ömar
Valdimarsson sjá um hann til
skiptis. Þessir þættir hafa nú
þegar aflað sér talsverða vin-
sælda.
Elín sagði okkur I stuttu
spjalli, að upphaflega hefði ver-
ið hugmyndin með nafni þáttar
ins, að það væru komnir gestir í
stofu sjónvarpsáhorfenda; ekki
að stjórnandinn tæki á móti
gestum, heldur væri hann sjálf-
ur einn gestanna, eins og hún
hefði tekið fram í upphafi
fyrsta þáttarins. I samræmi við
það væru hennar þættir upp-
byggðir.
Að þessu sinni er umræðu-
efnið í þættinum persónulegar
hrakfarir. „Við munum ræða
um hrakfarir, sem við höfum
lent í um dagana, ég, Sigurður
Karlsson, sem lengi rak hótel í
Vestmannaeyjum og hefur lent
í mestu ógöngum um ævina
allra raanna, sem ég þekki, og
Þórir Björnsson, sem eitt sinn
bjó í Siglufirði. Hann var nýbú-
inn að kaupa sér hús þarna
fyrir norðan þegar snjóflóð féll
á það. Eftir það var honum og
fjölskyldu hans heldur illa við
að búa í því, svo þau fluttust til
Vestmannaeyja. Og þá kom gos-
ið.“
Inn í umræðurnar um þetta
fróðlega efni er skotið kvik-
myndum og ljósmyndum og
m.a. í þættinum mun Sigurður
taka lagið. Sem sagt, hrakföll
og ógöngur, og viðbrögð manna
við þeim verða reifuð f sjón-
varpinu á sunnudagskvöld.
A SUNNUDAGSKVÖLD kl.
21.20 verður flutt athyglisverð
bandarísk heimildamynd,
THEY HAVE KILLED PRESI-
DENT LINCOLN, eða „Það er
búið að myrða Lincoln forseta".
Mynd þessi fjallar, eins og
nafnið bendir til, um hið af-
drifaríka morð á Abraham Lin-
coln forseta Bandaríkjanna ár-
ið 1865.
Er myndin samsuða heimilda
og leikinna atriða, brugðið er
upp ljósmyndum og öðrum sam-
tímagögnum varðandi þennan
atburð, en sviðsettum köflum
vafið inn í. Er reynt að grafast
fyrir um aðdraganda morðsins,
og eftirleik, sagt frá morðingj-
anum, John Wilkes Booth leik-
ara, og einnig eru reifaðar líkur
á því, að hugsanlega hafi verið
um samsæri að ræða.
Framleiðandi þessarar mynd-
ar er David L. Wolper, einn
frægasti heimildamyndafram-
leiðandi Bandaríkjanna, en
sagnfræðilegur ráðunautur var
Bruce Catton. Hinn kunni leik-
ari Richard Basehart er þulur,
með hlutverk Lincolns fer Jos-
eph Leisch, og Robert Leonard
leikur starfsbróður sinn, John
Wilkes Booth.
A MIÐVIKUDAGSKVÖLD kl.
21.35 hleypur heldur betur á
snærið hjá kvikmyndaunnend-
um, — og hrollvekjuáhuga-
mönnum sérstaklega, en þá
sýnir sjónvarpið hina annáluðu
mynd Charles Laughton
NIGHT OF THE HUNTER.
Þessi mynd er alveg sérstakur
hvalreki (sá sem þetta ritar
hefur beðið eftir að sjá hana í
fjölda ára), en raunar má segja
að kvikmyndaval sjónvarpsins
hafi verið I senn með afbrigð-
um gott og fjölbreytt að undan-
förnu.
Þetta er eina myndin sem
Charles stjórnaði, en eins og
kunnugt er var hann einn af
mikilhæfustu leikurum kvik-
myndanna fyrr og síðar. Hún er
gerð árið 1955 í Hollywood, og
má teljast með ólíkindum að
jafn listrænt verk hafi fengið
að sjá dagsins ljós þar eins og
sú borg var glysgjörn á þessum
tíma. Hún hefur æ síðan verið
umtöluð sem ein sérkennileg-
asta kvikmynd, sem þar hefur
verið framleidd. „Night of the
Hunter“ er byggð á skáldsögu
eftir Davis Grubb og fjallar um
flótta tveggja barna undan vit-
firrtum presti (leikinn af Rob
ert Mitchum), sem kvænzt
hafði móður þeirra. En efnis
þráðurinn er ekki allur þar sem
hann er séður. Þetta er dæmi-
saga, allegóría, um baráttu góðs
og ills, hinna myrku afia og
hinna björtu, og þykir mynda-
taka Stanley Cortez, eins kunn-
asta kvikmyndara Hollywood,
undirstrika þessar dýptir
myndarinnar sérstaklega. Hún
er full af dul, ógn og spennu,
sem Laughton laðar fram af
slíkri snilld, að æ sfðan hafa
menn harmað, að hann skyldi
ekki stjórna fleiri myndum.
Auk Mitchums fara með aðal-
hlutverkin I myndinni Shelley
Winters og Lillian Gish. Öhætt
er að segja, að þetta sé mynd,
sem menn ættu ekki að láta
fram hjá sér fara.
LAUGARDAGSMYND sjón-
varpsins er að þessu sinni
frönsk að uppruna og nefnist á
frummálinu LE CHEMIN DES
ÉCOLIERS, sem gæti útlagzt,
„Vegur skólanemendanna“ eða
jafnvel „Skólastræti". En hvað
um það, þessi mynd er gerð árið
1959 af leikstjóranum Michei
Boisrond og byggð á sögu eftir
hinn kunna franska rithöfund
Marcel Aymé.
Að flestu öðru leyti er þetta
hálfgerð huldumynd og ekkert
um hana að finna í okkar kvik-
myndabiblíum hér á blaðinu.
Svo mikið er þó ljóst, að hún
fjallar um 17 ára skólastrák,
sem kemst I kynni við svarta-
markaðsbraskara og þeirra á
meðal tælandi stúlkukind. Til-
kynnir stráksi foreldrum sín-
um, að hann ætli upp f sveit
með kunningja sínum, en
dvelst þess í stað hjá stúlkunni.
Upp komast svik um síðir að
vanda, — en þó ekki fyrr en
bosmamikil ljóska úr hópi
braskaranna er búin að tál-
draga föður stráksins. Dragi
menn af þessu þær ályktanir,
sem þeim sýnist.
Höfundur sögunnar, Marcel
Aymé, lézt árið 1967, en var
kunnur fyrir leikrit, skáldsögur
og smásögur, sem sérdeilis ein-
kenndust af skarpri ádeilu og
oft á tíðum absúrdum úttektum
á nútímanum. Aðalhlutverkin i
myndinni á laugardagskvöldið
leika ágætir leikarar, —
Francoise Arnoul, Alain Delon
og Jean-Claude Brialy.
Ur miðvikudagsmynd sjónvarpsins NIGHT OF THE HUNTER
eftir Charles Laughton, — mynd sem óhætt er að mæla með.
Séra Þórir Stephensen flytur
hugvekju.
00.10 Dagskrárlok.
/HÚNUD4GUR
11. febrúar 1974
20.00 Fréttir
20.25 Veður og auglýsingar
20.30 Það er þeim fyrir bestu
Bresk fræðslumynd um
rannsóknir á hegðun og hátt-
erni villtra dýra í Ameriku
með það fyrir augum að forða
tegundum frá aldauða.
Þýðandi Guðrún Jörunds
döttir.
20.55 1 heimi Adams
Sjónvarpsleikrit eftir danska
rithöfundinn Leif Panduro.
Þýðandi Dóra Hafsteinsdótt-
ir.
Aðalpersóna leiksins er
miðaldra lögfræðingur,
Adam að nafni. Hann vinnur
hjá stóru tryggingafyrirtæki
og þykir þar góður starfs-
kraftur.
En einkalíf hans er undar-'
legt á margan hátt.
(Nordvision — Danska sjón-
varpið)
22.30 Dagskrárlok
ÞRIÐJUDNGUR
12. febrúar 1974
20.00 Fréttir
20.25 Veður og auglýsingar
20.30 Skák
Stuttur, bandariskur
skákþáttur.
Þýðandi og þuiur Jón Thor
Haraldsson.
20.40 Valdatafi
Breskur framhaldsmynda-
flokkur. Annar hluti.
1. þáttur. Æ sér gjöf til
gjalda
Þýðandi Jón O. Edwald.
Valdataflið er hér sem fyrr
teflt af stjórnarmönnum i
stóru verktakafyrirtæki og
veitir ýmsum betur.
Aðalhiutverkin leika Patrick
Wymark, Clifford Evans,
Peter Barkworth, Rosmary
Leach og Barbara Murray.
21.30 Heimshorn
Fréttaskýringaþáttur um
erlend málefni.
Umsjónarmaður Sonja
Diego.
Managua
Bresk fréttamynd frá
Managua, höfuðborg
Nicaragua, og ástandið þar
nú, þegar eitt ár er liðið frá
jarðskjálftanum mikla, sem
lagði borgina í rúst.
Þýðandi og þulur Óskar
Ingimarsson.
Jóga til heilsubótar
Bandarískur myndaflokkur
með kennsiu i jógaæfingum.
Þýðandi og þulur Jón O.
Edwald.
Dagskrárlok.
A1IÐMIKUDNGUR
13. febrúar 1974
18.00 Maggi nærsýni
Teiknimynd.
Þýðandi Jóhanna Jó-
hannsdóttir.
18.05 Skippí
Ástralskur myndaflokkur
fyrir börn og unglinga.
Þýðandi Jóhanna Jóhanns-
dóttir.
18.30 Gluggar
Breskur fræðslumyndaflokk-
ur.
Þýðandi og þulur Gylfi
Gröndal.
18.50 Gítarskólinn
Gítarkennsia fyrir byrjend-
ur.
2. þáttur.
Kennari Eyþór Þorláksson.
19.20 Hlé
20.00 Fréttir
20.25 Veður og auglýsingar
20.30 Líf og f jör f læknadeild
Breskur gamanmyndaflokk-
ur.
Þýðandi Jón Thor
Haraldsson.