Morgunblaðið - 08.02.1974, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. FEBRUAR 1974
Kodak I Kodak 3 Kodak * Kodak á Kodak
BANKASTR. SÍMI 20 313
GLÆSIBÆ SÍMI 82590
Kodak I Kodak 1 Kodak I Kodak I Kodak
VÆNGIR HF.
Blönduós
Húnvetningar athugið. Beint flug til Blönduós á sunnu-
dögum kl. 1 6.30.
Áætlunardagar:
Sunnudagar, þriðjudagar, fimmtudagar og laugardagar.
Vængir h.f.
Simi26060.
Slaða konsertmelstara
við Sinfóníuhljómsveit íslands er laus til umsóknar.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og starfsferil
sendist Ríkisútvarpinu fyrir 1. mars næstk.
Ríkisútvarpið, Skúlagötu4.
Tweed-buxur, terylene-
buxur, rifflaðar og sléttar
flauelsbuxur í miklu
úrvali.
Auk þess dömupeysur,
herrapeysur, skyrtur,
slaufur, bindi og m.fl.
KOMIÐ OG SJÁIÐ.
Nýtt - Nýtt - Nýtt
Faco tdt - Faco tði
Nýjar tegundir af rönd-
óttum bolum i nýjum
litum.
Nýjar tegundir af galla-
buxum i frábærum
sniðum.
Nýkomnar indverskar
bómullar-skyrtur í
drengjastærðum, gott
verð.
Saudi-Arabia:
Ekkert loforð
um að aflétta
olíubanni á USA
Beirut, Líbanon 5. febr. NTB.
OLÍUMALARAÐHERR A Saudi-
Arabiu, Ahmed Zaki Yamani
fursti, sagði við blaðamenn I dag,
að honum væri ekki kunnugt um
nein loforð, sem Arabalöndin
hefðu gefið um að aflétta olíu-
sölubanninu á Bandaríkin.
Yamani ra-ddi við blaðamenn
eftir að hafa átt fund með for-
sætisráðherra Lfbanons og ræddu
|>eir hugsanlegar ráðstafanir til
að draga úr áhrifum af hækkuðu
hráolfuverði á efnahagsþróunina
í Líbanon og öðrum Miðaustur-
lönduin.
Yamani sagði einnig, að Saudi-
Arabia fylgdi algerlega sömu
stefnu í olíumálum eins og önnur
olíuframleiðslulönd, þar sem slíkt
væri rætt innbyrðis áður en
nokkrar ákvarðanir væru teknar.
Þá var kunngert í dag, að ríkis-
stjórnin i Abu Dhabi hæfi bráð-
lega samningaviðræður við
alþjóðaolíufélög um aukna aðild
rikis í framleiðslufyrirtækjunum.
í París var sagt frá þvi, að yfir-
maður frönsku orkustofnunarinn-
ar héldi senn til St. Moritz til að
ræða við Iranskeisara, sem dvelur
þar sér til hressingar. Um svipað
leyti er ætlunin að franski utan-
ríkisráðherrann fari til írak, en
Frakkar hafa nýverið samið um
kaup á 130 milljónum tonna af
hráolíu frá írak. Frakkareiga aft-
ur á móti að leggja fram fjárhags-
og tækniaðstoð í sambandi við
uppbyggingu og viðbætur á olfu-
stöðvuin í landinu.
Bergþórshvols-
prestakall laust
BISKUP íslands hefur auglýst
Bergþórshvolsprestakall í
Rangárvallaprófastdæmi laust til
umsóknar með umsöknarfresti til
15. mai n.k.
Kaupfélögin í
vanda vegna
hinna miklu
hækkana
KA UP FÉ LAG SST.I OR A R og for-
svarsmenn Sainbands íslen/.kra
sainvinnufélaga komu saman til
fundar í Reykjavfk sl. mánudag.
Aðalverkefni fundarins var að
fjalla um þann inikla vanda, sein
að steðjar vegna verðhækkana á
ýmsinn þýðingariniklum aðflutt-
um vöruin, sein vega þungt í
verzlunarrekstri og þjónustu
kaupfélaganna og Sambandsins.
i framsöguerindi Erlends
Einarssonar forstjöra. kom frain,
að áætluð fjárþörf á árinu 1974 er
um einn milljarður króna ogerþá
nð það miðað, að félagsmönnúm
sé tryggður aðgangur að svipuðu
vörumagni og árið 1973. I fjár-
hæðinni eru olíuvörur ekki taldar
með.
i samþykkt fundarins segir, að
Ijóst' sé, að samvinnuhreyfingin
verði að endurskoða stefnu sina
með tilliti til lánaviðskipta og
verði því óhjákvæmilegt, að
bankakerfið komi í auknum mæli
inn i fjármögnunarvandamál
sainvi nnuverzlunarinnar, eigi
henni að takast að tryggja við-
skiptavinum sinum aðgang að
eðlilegu vörumagni.
Fundurinn ályktaði, að teknar
vrðu upp af hálfu samvinnu-
hreyfingarinnar beinar viðræður
við ríkisstjörn og bankana til þess
að kanna leiðir til lausnar þessum
va nda.