Morgunblaðið - 08.02.1974, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1974
Brynhildur Björgvins-
dóttir - Minningarorð
F. 14. okt. 1915
D. 30. jan. 1974
Mig langar með fáeinum, fátæk-
legurri orðum að minnast minnar
elskulegu frænku á þessari
kveðjustundu. Það kom eins og
reiðarslag yfir okkur í fjölskyld
unni, er við fréttum s.l. sumar
um sjúkdóm hennar og vissum að
hverju stefndi. En hún tók þessu
með svo miklu rólyndi og jafnað-
argeði að undrun sætti.
Brynhildur var fædd í Reykja-
vík 14. október 1915, dóttir hjón-
anna Sigurrósar Böðvarsdóttur,
sem lifir dóttur sína nú 84 ára
gömul, og dvelur í Borgarsjúkra-
húsinu og Björgvins Hermanns-
sonar húsgagnasmíðameistara,
Öðinsgötu 5 hér í borg, en hann
lézt í janúar 1971, fyrir réttum
þremur árum.
Þau hjónin eignuðust átta börn
og er Brynhildur þriðja í röðinni,
sem kveður þennan heim, og á
amma mín um sárt að binda, er
hún sér á bak henni nú. En eftir
lifa þrjár dætur, Jósefína, Hulda
og Sigurbjörg og tveir bræður,
Hermann og Marteinn.
Árið 1951, 14. október, giftist
Brynhildur Snorra Guðlaugssyni
kaupmanni hér'i “Reýkjavfk, ætt
uðum úr Húnaþingi, og bjuggu
þau allan sinn búskap hér í borg
og sfðustu árin að Asvegi 15, en
þau slitu samvistum. Þau eignuð-
ust tvær dætur, Ásu Björk, sem
gift er Kristni Aadnegaard og
eiga þau tvö börn, Elvu Dögg og
Örvar Má; og Auði, sem heitbund-
in er Tómasi Ragnarssyni og eiga
þau einn son, Brynjar. Barna-
börnin voru augasteinar ömmu
sinnar og hélt hún mikið upp á
þau. Ég minnist nú sérstaklega
síðastliðinna jóla þegar hún kom
heim af sjúkrahúsinu yfir hátíð-
ina og yngsa barnabarnið, Brynj-
ar, var skirt. Mikill fögnuður ríkti
þá í huga hennar yfir því að geta
verið heima og verið viðstödd
skírnina á heimili sínu.
Síðari ár hjónabands þeirra
Brynhildar og Snorra ráku þau
verzlun í Biðskýlinu við Dalbraut,
og þótti það mikill dugnaður fyrir
efnalítið fólk, að ráðast í að koma
því upp. Og enn kom fram hinn
mikli dugnaður og þrek, sem bjó í
henni, er hún kom sér upp nýju
heimili og keypti sér húseignina
að Óðinsgötu 3, næsta hús við hús
foreldra hennar, þar kom hún sér
upp hlýlegu heimili, þar sem ég
var alllaf velkominn.
Nú síðustu árin starfaði hún á
Hótel Holt við góðan orðstír hús-
bænda sinna, eftir því, sem ég
t
SVEINN STEFÁNSSON
fyrrum bóndi á Tunguhálsi i Skagafirði lézt á Fjórðungssjúkrahúsinu á
Akureyri miðvikudaginn 6. febrúar
Sigurlaug Stefánsdóttir,
Steinunn Stefánsdóttir.
t
Eiginmaður minn
TÓMAS VIGFÚSSON,
byggingameistari,
Grenimel 41,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni laugardaginn 9 febrúar kl. 1 0.30
f.h.
Katrín Vigfússon.
t
Fósturmóðir min,
JÓRUNN JÓNSDÓTTIR,
Innri-Njarðvik,
verður jarðsett frá Njarðvíkurkirkju, laugardaginn 9 febrúar kl 1 30
Þeim, sem vildu minnast hinnar látnu, er bent á kirkjuna i Innri-
Njarðvík
Fyrir hönd vina og ættingja,
Árni H. Jónsson.
t
Móðir okkar, tengdamóðir. amma og systir
GUÐRÚN SIGURÐARDÓTTIR,
Hverfisgötu 6 A,
Hafnarfirði
verður jarðsungin frá Fríkirkjunni i Hafnarfirði, laugardaginn 9. febrúar
kl, 10 30 f h Þeir, sem vildú minnast hennar er bent á líknarstofnanir
Guðlaug Guðmundsdóttir, Eiríkur Ágústsson,
Stefanía Guðmundsdóttir, Guðbjörn Jóhannesson,
Gísli Guðmundsson, Sigurlaug Sigurðardóttir,
Sigurður Guðmundsson, Helga Baldursdóttir,
Guðmundur Guðmundsson, Ásta Vilmundardóttir,
Jón Guðmundsjon, Margrét Lára Þórðardóttir,
barnabörn og bræður.
kemst næst, því alltaf var hún
viðbúin að hjálpa öðrum eftir því
sem. hún gat. Éfe dvaldist oft á
heimili hennar, og á ég þaðan
margar hugljúfar minningar um
góða frænku, sem ég þakka nú á
þessari kveðjustund.
Hún lézt á Borgarsjúkrahúsinu
þann 30. janúar s.l., og flyt ég
starfsfólki og læknum alúðar-
þakkir fyrir góða hjúkrun og um-
önnun og allt það sem þau voru
henni í veikindunum.
Ég þakka henni allt, sem hún
var mér, og bið algóðan Guð, sem
ræður öllum skilningi, að blessa
ástvini hennar ogsérstaklegamína
elskulegu ömmu, sem nú dvelur í
sjúkrahúsi og er hugur okkar hjá
henni á þessari sorgarstundu sem
og ætíð.
Drottinn vakir, Drottinn
vakir
daga og nætur yfir þér.
Blíðlynd eins og bezta
móðir
ber hann þig í faðmi sér.
Allir þótt þér aðrir
bregðist,
aldrei hann á burtu fer.
Drottinn elskar, —
Drottinn vakir
daga og nætur yfir þér.
Drottinn blessi hana um alla
framtíð.blessuð sé minning henn-
ar.
Stefán.
1 gær fór fram i Dómkirkjunni
útför Brynhildar Björgvinsdótt-
ur. Brynhildur var fædd 14. októ-
ber 1915, dóttir hjónanna Sigur-
rósar Böðvarsdóttur og Björgvins
Hermannssonar húsgagnasmíða-
meistara.
Brynhildur var gift Snorra Guð-
laugssyni kaupmanni hér í bæ, en
þau slitu samvistir.
Brynhildur og Snorri eignuðust
tvær dætur, Asu Björk, gifta
Kristni Aadnegaard stýrimanni,
og Auði, sem er trúlofuð Tómasi
Ragnarssyni linumanni hjá Pósti
og síma. Nú, þegar ég kveð mág-
konu mína, er mér efst í huga
þakklæti fyrir langa og góða vin-
áttu og margar ánægjustundir á
heimili hennar svo og á ferðalög-
um. Ég flyt dætrum, systkinum,
tengdasonum, barnabörnum og
aldraðri móður, sem nú dvelur á
sjúkrahúsi, mínar innilegustu
samúðarkveðjur í sorg þeirra.
Hallgrímur Pétursson.
Minning:
Guðmundur Jóhanns-
son húsasmíðameistari
1 dag verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju Guðmundur Jó-
hannsson húsasmiðameistari, en
hann lézt i Borgarspítalanum h.
30. jan. s.I.
Guðmundur var fæddur í
Reykjavík þann 18. feb. 1912 og
var því tæpra 62 ára, þegar hann
andaðist. Hann var elztur átta
barna hjónanna Kristínar Guðna-
dóttur og Jóhanns Kr. Ólafssonar
trésmiðs og brúarsmiðs, en þau
eru bæði látin.
Guðmundur ólst upp hér í
Reykjavík fram til tvitugs aldurs,
en fluttist þá austur að Selfossi
ásamt foreldrum sínum og sys'tk-
inum, þar sem þau bjuggu um
nokkurt skeið.
Skömmu síðar hóf hann nám í
trésmíði hjá föður sínum og
stundaði þá iðn æ síðan eða störf
henni skyld.
A Selfossi tók hann virkan þátt
í félagslífi staðarins, þvi hann var
að eðlisfari félagslyndur og virtist
alla tíð hafa sérstaka unun af að
vera í góðra vina hópi. Hann var
meðal stofnenda Ungmennafé-
lags Selfoss árið 1936 og var gerð-
ur að heiðursfélaga þess á 35 ára
afmæli félagsins 1971.
Þar kynntist hann einnig konu
sinni Regínu, dóttur Margrétar og
Lárusar Rist. Þau giftu sig þ. 7.
okt. 1939 og byrjuðu búskap sinn
þar eystra. Siðan fluttust þau til
t
Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð og vináttu við útför föðurbróður
okkar,
SVEINS PÁLSSONAR,
Nýjabæ, Miðnesi.
Jónína Ásbjörnsdóttir, Magnús Loftsson,
Sigrfður Ásbjörnsdóttir, Eggert Olafsson.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og útför móður okkar,
tengdamóður, ömmu, langömmu og systur
INGIBJARGAR TEITSDÓTTUR
Sólveig Búadóttir Inga Hrefna Búadóttir
Alfreð Búason Hrefna Jónsdóttir
Bendt Bendtsen Ingveldur Teitsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda vináttu og samúð við fráfall og útför
eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu
SVANBORGAR SIGURÐARDÓTTUR,
Stigahlið 32.
Sérstakar þakkir færum við hjúkrunarliði Landakotsspítala fyrir góða
umönnun
Hallgrímur Pétursson
Sverrir Hallgrímsson Rósa Óskarsdóttir
Kristinn V. Hallgrfmsson Anna Lorange
Fjóla Halldórsdóttir Yngvar Guðjónsson
Sigurður Sverrisson og barnabörn.
Reykjavíkur. Guðmundur vann
þá við yfirbyggingar bifreiða hjá
Agli Vilhjálmssyni h/f og öðlaðist
einnig réttindi í þeirri iðngrein.
Þau hjónin bjuggu einnig um
tíma í Hveragerði, Akureyri og í
fjögur ár í Svíþjóð. Lengst af var
þó heimili þeirra í Reykjavík. Þau
voru ákaflega samhent, prúð og
elskuleg hjón, og er mér sérstak-
lega minnisstætt, hvernig þau
studdu hvort annað, þegar þau
tvívegis með fárra ára millibili
urðu fyrir þeirri þungbæru sorg
að missa tvö barna sinna, bæði á
sviplegan hátt, fyrst Margréti, ár-
ið 1963, aðeins 8 ára gamla og
langyngsta og síðan Lárus árið
1967, tvítugan efnis- og reglupilt.
Barnamissirinn mun hafa ráðið
nokkru um það, að þau hjónin
tóku sig upp og fluttust til Sví-
þjóðar árið 1969. Dvölin þar
varð þó lengri en þau höfðu ráð-
gert, enda finnst okkur, að þau
hafi notið hennar í ríkum mæli.
Mummi, eins og við kölluðum
hann, hafði alltaf verið líkamlega
hraustur. En fyrir rúmu ári fór
hann að kenna sjúkdóms þess,
sem nú hefur lagt hann að velli,
langt fyrir aldur fram. Hann
gekkst undir uppskurð í Svíþjóð í
april s.l. og hafði góðar vonir um
að ná fullum bata. S.l. sumar kom
hann svo heim og hóf þegar störf
hér, þótt heilsan væri engan veg-
inn góð. Brátt kom í ljós, að heilsa
hans var þó lélegri en hann vildi
viðurkenna fyrir sjálfum sér.
Hann hélt þó áfram störfum, þar
til hann helsjúkur varð að gefast
upp og var lagður inn á sjúkrahús
í nóvemberbyrjun. Honum auðn-
aðist þó að komast heim til sín
skömmu fyrir jól og eiga jólahá-
tiðina heima með konu sinni. Hún
reyndi eftir megni að gera honum
jólin sem hátíðlegust, þrátt fyrir
erfiðar aðstæður. Við erum þakk-
lát fyrir þann tíma, sem honum
var gefinn heima, því hann var
svo innilega glaður, þegar hann
hringdi til okkar og sagðist vera
kominn heim. Það var honum
ómetanlegt. En 3. jan. var sá tími
liðinn, sem hann gat verið heima,
og aftur fór hann á sjúkrahúsið,
þaðan sem hann átti ekki aftur-
kvæmt.
Þeim hjónum varð fjögurra
barna auðið. Eftir lifa tvö eldri
börnin, en þau eru: Öttar, tré-
smiður, kvæntur Gislunni Jó-
hannsdóttur. Þau eiga þrjú börn
og eru búsett í Lundi í Svíþjóð; —
Kristín, kennari, gift Hauki Isfeld
kennara. Þau eiga tvo syni og eru
búsett hér í Reykjavík. Þau sjá nú
á bak góðum föður, tengdaföður
og afa.
Guðmundur var góðum gáfum
gæddúr. Hann var vel hagmæltur,
söngmaður góður og söng um ára-
bil i kór Langholtskirkju, víðles-
inn og hafði yndi af ferðalögum,
Ferðuðust þau hjónin nokkuð
bæði hérlendis og erlendis, sér-
staklega hin síðari ár. Alltaf var
hann svo ljúfur og hógvær, en
glaður og skemmtilegur og vildi
hvers manns vanda leysa. Hann
var drengur góður í þess orðs
fyllstu merkingu. Um hann er
ekkert hægt að segja nema gott.
Við, sem áttum því láni að
fagna að kynnast Mumma og
tengjast við hann fjölskyldubönd-
um, eigum bágt með að sætta okk-
ur við, að hann skuli nú horfinn
úr hópnum. Það er mikill missir,
þegar slikur maður fellur frá, en
mestur er þó missir eiginkonunn-
ar. Hag hennar og velsæld bar
hann ávallt fyrir brjósti, einkum
var það áberandi hin síðari ár,
þegar þau voru orðin tvö eftir
heima. Nú er það huggun Regínu
í hennar mikla harmi, að Mummi
hennar er kominn til fundar við
elskulegu börnin þeirra, sem á
undan voru farin.
A stundu sem þessari getum við
aðeins þakkað fyrir samfylgdina
og beðið góðan Guð að blessa
hann og varðveita og gefa honum
eilífan frið en Reginu, börnunum
og fjölskyldum þeirra huggun og
styrk í sorg þeirra.
S. J.