Morgunblaðið - 08.02.1974, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. FEBRUAR 1974
29
fclk í
fréttum
NÝJASTA AÐFERÐIN í BARATTUNNI GEGN GLÆPUM
„Táldúfurnar" kallast þeir í daglegu tali, þessir menn, sem helzt líkjast flækingum og virðast
,>,vafasamir“ á að lita. En ekki er allt sem sýnist.
Tveir slíkir sitja á bekk í Central Park-garðinum i miðborg New York og blunda — eða virðast
blunda. Þvi að þeir eru mjög vakandi og fylgjast með öllu, sem gerist þarna nálægt. A næstum því
sama augnabliki og ráðizt er á gamla konu skammt frá, eru þeir komnir á fulla ferð og grípa
árásarmanninn og handjárna. Hann er svo hissa, að hann reynir vart að veita mótspyrnu.
„Táldúfurnar" eru dulbúnir lögregluþjónar. Þeir eru í nýjustu deild New York-lögreglunnar, sem
á að reyna að berjast gegn ört stígandi afbrotatölu borgarinnar. Þeir eru valdir úr röðum beztu
lögregluþjóna annarra deilda og hafa fengið sérstaka þjálfun með áherzlu á dulbúningstækni.
Oftast velja þeir sér gervi flækingsins og þeir hafa frábæra hæfileika í að lita út eins og menn,
sem ekki eru beint hrifnir af lögreglunni. En enginn getur vitað, hvort þeir eru vinveittir eða
óvinveittir. Fögur ung stúlka, sem er úti i gönguferð, er kannski harðsvíraður lögregluþjónn með
hættuleg vopn i veskinu. Maðurinn, sem haltrar af stað með annan fótinn í gifsumbúðum, kastar
e.t.v. allt í einu frá sér hækjunum og þýtur á eftir þjófi.
„Táldúfurnar" hafa valdið mikilli skelfingu meðal afbrotamanna borgarinnar,— en starfið er
hættulegt engu að siður. Harry Maxwell lögregluþjónn er nýútskrifaður af sjúkrahúsi. Hann var
dulbúinn sem ung stúlka, en varð að láta í minni pokann fyrir fimm „tuddum“. Félagar hans náðu
ekki að skakka leikinn nógu fljótt.
„En ég hef verið heppinn hingað til,“ segir hann. „Einn félaga minna hefur verið sleginn niður
ekki sjaldnar en 29 sinnum."
KYNBOMBAN
BÓLGNAR
Einu sinni — reyndar fyrir
löngu — gat Diana Dors með
réttu kallað sig svar Englands
við Marilyn Monroe. Er maður
lítur hana augum í dag, er erfitt
að ímynda sér. að leikkonan,
sem nú er 42 ára, hafi fyrir
nokkrum árum ekki aðeins ver-
ið eftirsótt af leikstjórum, held-
ur einnig átt sér fjölmennan
aðdáendahóp meðal karl-
manna.
En árin hafa sett spor á útlit
hennar. Kílóin 56, sem var svo
frábærlega jafnað niður á lík-
amann, hafa orðið 85, svo að nú
er of mikið alls staðar.
Vinir hennar segja, að hún
hafi siðustu árin borðað sér til
ánægju, til að reyna að gleyma
því, hve erfiðlega henni gengur
að fá ný hlutverk. En hún virð-
ist ekki hafa gert sér grein fyrir
því, að því meira sem hún borð-
ar, þeim mun minni verða
möguleikarnir á að fá hlutverk.
HUN getur ekki
GLEYMT PRINSIN-
UM
Þótt Rosie Clifton,- 21 árs
gömul dóttir offursta á eftir-
launum, hafi afskrifað mögu-
leikana á að verða eiginkona
Karls prins af Wales, getur hún
vart gleymt honum, a.m.k. ekki
meðan hún heldur áfram að
vinna hjá McKenzie Ide & Co. í
London. Fyrirtækið er til húsa
við stræti, sem heitir Elísabet-
arstræti (minmr a drottning-
una) og liggur á milli Kóngs-
götu (minnir á konungsfjöl-
skylduna) og götu, sem heitir
Buckingham Palace, af því að
hún liggur framhjá konungs-
höllinni! Allt þetta minnir hana
án efa á Karl prins, sem hún
hefur verið í góðu vinfengi við.
En það er fleira, sem minnir
á hann. Verzlunin við hliðina á
fyrirtækinu, þar sem hún vinn-
ur, heitir einfaldlega „Charl-
es“, rétt eins og prinsinn. Og til
að kóróna það heitir veitinga-
staðurinn þar við hliðina, þar
sem hún borðar yfirleítt hádeg-
ismat, hvorki meira né minna
en „Prinsinn af Wales“.
En Rosie virðist ekki láta
þessi óvenjulegu nafnatengsl
neitt á sig fá. Hún segir bara
spaugandi, að hún sé að hug-
leiða að flytja i íbúð við götu,
sem heitir Philips Place!
Á skjánum
Föstudagur
8. febrúar 1974
20.00 Fréttir
20.25 VeJur og auglýsíngar
20.30 Að Heiðargarði
Bandarískur kúrekamyndaflokkur.
2. þáttur. Sáttagjörð
Þýðandi Kristmann Eiðsæn.
Efni fyrsta þáttar:
John Cannon kaupir stóran búgarð í
Arizona og flyst þangað með fjölskyldu
ánni. Þarum slóðirer stöðugur ófríður
við Indiána af Apache-ættflokknum og
við það bætist, að vinnumenn stórbónd-
ans Montoya, sem býr þar skammt frá,
gera árásir á menn Cannons og ræna
nautgripum, hvenær sem færi gefst.
Dag nokkurn, þegar allir vopnfærir
menn á Heiðargarði eru að heiman.
gera Indíánar árás og ráða húsfreyjuna
af dögum.
21.20 Landshorn
Fréttaskýringaþáttur um innlend mák
efni.
Umsjónarmaður Ólafur Ragnarsson.
22.00 Bióðsuga og Madonna
Sænsk mynd um norska málarann
Edvard Munch og æviferil hans. Jafn-
framt þvi sem sagt er frá listamann-
inum, er brugðið upp myndum af verk-
um hans og rakin saga þeirra
Þýðandiog þulurGisli SigurkarlssOTi.
(Nordvision — Sænska sjónvarpið)
22.30 Dagskrárlok
fclk f
fjclmiélum
VP;'
tónverk, en eflaust verður hans
nú fyrst og fremst minnzt fyrir
fiðlukonsertinn, sem leikinn er
á þessum hljómleikum.
Arve Tellefsen.
í kvöld kl. 20 verður útvarpað
frá tónleikum Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands, sem haldnir
voru i Háskólabiói í gærkvöldi.
Stjórnandi á tónleikunum er
að þessu sinni finnskur —Jussi
Jalas. Einleikarinn er Arve
Tellefsen frá Noregi, en hann
hefur komið nokkrum sinnum
fram á tónleikum hér áður.
Verkefnaskráin hefur á sér
nokkurn þjóðlagablæ. þar sem
tónskáldin þrjú, sem verk
verða leikin eftir, sóttu öll inn-
blástur að rniklu leyti í þjóðlög
landa sinna. Flutt verður svíta
eftir Kodály, fiðlukonsert eftir
Max Bruch og sinfónía eftir
Sibelius.
Max Bruch var þýzkt tón-
skáld og hljómsveitarstjóri.
Hann fæddist í Köln árið 1838,
en lézt árið 1920. Hann stjórn-
aði bæði kórurn og hljómsveit-
um um ævina og santdi mörg
Fréttaskýringaþátturinn
Landshorn er á dagskrá sjón-
varpsins kl. 21.20. Þar fjallar
Valdimar Jóhannesson um
samningamálin, hugsanleg
verkföll og afleiðingar þeirra,
ef af verður, og verður væntan-
lega leitað eftir áliti fulltrúa
vinnuveitenda og verkalýðs-
hre.vfingarinnar i landinu um
þessi mál.
Þá verður sýndur þáttur í
samantekt Ölafs Ragn -ssonar
um þróun loðnuveiða^na hér
við land siðasta áratuginn.
Loðnuútgerðin er nú orðin
snarari þáttur i efnahagslífi
þjóðarinnar en nokkurn gat ór-
að fyrir fyrir fáeinum árurn.
Ölafur tjáði okkur. að hann
myndi ræða við fiskifræðinga,
m.a. um það, hvort hætta væri
nú á ofveiði þessarar fiskteg-
undar.
Þá mun Vilborg Harðardóttir
ræða um afstöðu Framsóknar-
flokksins til varnarmálanna og
mismunandi skoðanir innan
flokksins á þeim málum.
Loks fjallar Steinunn Sigurð-
ardóttir um læknamál dreifbýl-
is, sent reyndar hefur verið ó-
leysanlegt vandamál um
margra ára skeið, og hvað frarn-
undan sé í þeim málum.
I
j Útvarp Reykjavfk
Föstudagur
8. fcbrúar
7.00 Moigunútvarp
Veðurfregnir kl. 7.00, R15 og 10.10.
Morgunleikfimi kL 7.20. Fréttir kl.
7.30, 8.15 (og forustugr.dagbl.), 9.00og
10.00. Morgunbæn kL 7.55. Morgun-
stund barnanna k.L 8.45: Vilborg Dag-
bjartsdóttir heldur áfram að lesa sög-
una „Börn eru bezta fólk“ eftirStefán
Jónsson (4). Morgunleikfimi kl. 9.20.
Tilkynningar kl. 9.30. Þingfréttir kl.
9.45. Létt lög á milli liða. Spiallað við
bændur kl. 10.05. Morgunpopp kl.
10.25:
Dors syngja og leika. Frönsk tónlist
kL 11.00: Konunglega fílharmóníu-
sveitin í Lundúnum leikur „L Ariesi-
enne ', svitu nr. 1 eftir Bizet./Itzhak
Perlmann fiðluleikari og Sinfóniu-
hljómsveit Lundúna leika „Tzigane“
konsertraps()diu eftir Ravel/Tékk-
neska filharmóniusveitin leikur „Sið-
degi fánsias“ eftir Debussy/HIjóm-
sveit Tónlistarskólans i Paris leikur
„La Péri“, dans eftir Pdul Dukas.
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynn-
ingar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynri-
ingar.
13.05 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Síðdegissagan: „Dyr standa opnari*
eftir Jökul Jakobsson
Höfundur les (8).
15.00 Miðdegistónleikar: Tónlist eftir
Edward German
Pro Arte hljómsveitin leikur þrjá
dansavið leikritið „Hinri k áttundi“ og
dansa úr „Nell Gw>n“; Sir Malcolm
Sargent stj.
Einsöngvarar, kór og Nýja sinfóniu-
hljómsveitin i Lundúnum flytja þætti
úr „Merry England"; Victor Olof stj.
15.45 Lesin dagskrá næstu vi ku
16.00 Frét tir. Tilkynningar. 16.15Veður-
fregnir.
16.20 Popphornið
17.10 Ú tvarpssaga bamanna: „Smygk
aramirf skerjagarðinum"
eftir Jón Björnsson. Margrét Helga Jó-
hannsdóttir les (6).
17.30 Framburðarkennsla f dönsku
17.40 Tónleikar. Tilkynningar.
18.30 Fréttir. 18.45 Veðurfregnir. 18.55
Tilkynningar.
19.00 Veðurspá
Fréttaspegill
19.20 Þingsjá
Ævar Kjartansson sér um þáttinn.
19.45 Heilnæmir llfshættir .
Bjöm L. Jónsson læknir flytur erindi
um safnhaugagerð eftir Niels Busk
garðyrkjustjóra.
20.00 Tónleikar Sinfónluhl jómsveitar ís-
lands
iHáskólabiói kvöldið áður.
St jórnandi: Jussi Jalas frá Finnlandi
Einleikari: Arve Tellefsen fráNoregi
a. „Háry Jánorf*. svita eftir Zoltán
Kodály.
b. F'iðlukonsert nr. 1 i g-moll eftir Max
Bruch.
c. Sinfónia nr. 2 i D-dúr op. 43 eftir
Jean Si belius.
— Jón Múli Arnason kjnnir tónleikana
21.35 Út\arpssagan: „Tristan og IsóP*
eftir Joseph Bédier
Einar Ól. Sveinsson islenzkaði. Kristin
Anna Þórarinsdóttir !es (2).
22.05 Fréttir
22.15 Veðurfregnir
Morðbréf Margeirs K. Laxdals, — sjö-
undiog siðasti hluti
Saga eftir Hrafn Gunnlaugsson í út-
varpsgerð höfundar.
Flytjendur með höfundi: Rúrik Har-
aldsson, Örn Þorláksson og Lárus Osk-
ar«on.
22.40 Draumvfsur
Sveinn Arnason og Sveinn Magnússon
kynna lög úrýmsum áttum.
23.40 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.